Fara beint í efnið

Ríkisborgararéttur fyrir börn og ungmenni

Ungmenni 18-20 ára

Tilkynning um ríkisborgararétt fyrir 18-20 ára

Ungmenni, sem búið hefur samfellt á Íslandi frá 13 ára aldri, getur öðlast íslenskan ríkisborgararétt með því að tilkynna Útlendingastofnun skriflega þá ósk sína eftir að 18 ára aldri er náð en áður en hann verður 21 árs.

Skilyrði

  • Umsækjandi skal vera eldri en 18 ára og yngri en 21 árs og

  • skal hafa átt lögheimili og haft samfellda löglega dvöl hér á landi frá því hann náði 13 ára aldri.

Umsókn

Umsóknir er aðeins hægt að leggja fram á pappírsformi.

Þeim má skila í þar til gerðan póstkassa í anddyri Útlendingastofnunar að Dalvegi 18 í Kópavogi eða með því að senda umsókn í bréfpósti á sama heimilisfang. Áður en það er gert er nauðsynlegt að greiða fyrir umsókn með millifærslu í banka og þarf greiðslukvittun að fylgja umsókn til staðfestingar. Einnig er hægt að leggja inn umsókn og greiða fyrir í afgreiðslu Útlendingastofnunar.

Kostnaður

Afgreiðslugjald er 13.500 krónur, sjá upplýsingar um greiðslu afgreiðslugjalds. Umsókn er ekki tekin til vinnslu fyrr en greiðsla hefur borist.

Fylgigögn

Sjá nánari leiðbeiningar varðandi kröfur til skjala. Ekki þarf vottun á íslensk vottorð.

  1. Umsókn í frumriti, vel útfyllt og undirrituð af umsækjanda.

  2. Afrit erlends vegabréfs umsækjanda.

  3. Staðfest afrit af frumriti fæðingarvottorðs.

    Frumritið skal vera vottað með ‚apostille‘ vottun eða tvöfaldri staðfestingu, og síðan tekið af því staðfest afrit.

  4. Staðfest afrit eða frumrit þýðingar löggilts skjalaþýðanda á fæðingarvottorði.

    Þetta á við ef erlend vottorð eru á öðru tungumáli en ensku eða Norðurlandamáli.

  5. Búsetutímavottorð frá Þjóðskrá

    Vottorðið tilgreinir í hvaða landi eða löndum umsækjandi hefur átt lögheimili frá upphafi lögheimilisskráningar á Íslandi til dagsins í dag.

  6. Skólavottorð, ef við á.
    Vottorð frá grunnskóla og/eða framhaldsskóla sem umsækjandi hefur gengið í.

Lög

Íslenskur ríkisborgararéttur er veittur ungmennum 18 til 20 ára samkvæmt 1. málsgrein 3. greinar laga um íslenskan ríkisborgararétt númer 100/1952.

Þjónustuaðili

Útlend­inga­stofnun