Fara beint í efnið

Ríkisborgararéttur fyrir börn og ungmenni

Börn og ungmenni án ríkisfangs eða með vernd

Tilkynning um ríkisborgararétt fyrir barn án ríkisfangs eða með vernd

Barn eða ungmenni, sem er ríkisfangslaust eða hefur hlotið alþjóðlega vernd og hefur haft fasta búsetu og dvalist hér á landi samfellt í að minnsta kosti þrjú ár, öðlast íslenskan ríkisborgararétt með því að tilkynna Útlendingastofnun skriflega þá ósk sína fyrir 21 árs aldur. Forsjáraðili skal leggja fram tilkynninguna sé um að ræða barn yngra en 18 ára.

Skilyrði

  • Umsækjandi skal vera yngri en 21 árs,

  • vera ríkisfangslaus eða hafa hlotið alþjóðlega vernd og

  • hafa haft samfellda fasta búsetu hér á landi í að minnsta kosti þrjú ár.

Umsókn

Umsóknir er aðeins hægt að leggja fram á pappírsformi.

Þeim má skila í þar til gerðan póstkassa í anddyri Útlendingastofnunar að Dalvegi 18 í Kópavogi eða með því að senda umsókn í bréfpósti á sama heimilisfang. Áður en það er gert er nauðsynlegt að greiða fyrir umsókn með millifærslu í banka og þarf greiðslukvittun að fylgja umsókn til staðfestingar. Einnig er hægt að leggja inn umsókn og greiða fyrir í afgreiðslu Útlendingastofnunar.

Kostnaður

Afgreiðslugjald er 13.500 krónur, sjá upplýsingar um greiðslu afgreiðslugjalds. Umsókn er ekki tekin til vinnslu fyrr en greiðsla hefur borist.

Fylgigögn

Sjá nánari leiðbeiningar varðandi kröfur til skjala. Ekki þarf vottun á íslensk vottorð.

  1. Umsókn í frumriti, vel útfyllt og undirrituð af umsækjanda.

  2. Afrit erlends vegabréfs umsækjanda.

  3. Staðfest afrit af frumriti fæðingarvottorðs.

    Frumritið skal vera vottað með ‚apostille‘ vottun eða tvöfaldri staðfestingu, og síðan tekið af því staðfest afrit.

  4. Staðfest afrit eða frumrit þýðingar löggilts skjalaþýðanda á fæðingarvottorði.

    Þetta á við ef erlend vottorð eru á öðru tungumáli en ensku eða Norðurlandamáli.

  5. Búsetutímavottorð frá Þjóðskrá

    Vottorðið tilgreinir í hvaða landi eða löndum umsækjandi hefur átt lögheimili frá upphafi lögheimilisskráningar á Íslandi til dagsins í dag.

Lög

Íslenskur ríkisborgararéttur er veittur barni eða ungmenni sem er ríkisfangslaust eða hefur hlotið alþjóðlega vernd samkvæmt 2. málsgrein 3. greinar laga um íslenskan ríkisborgararétt númer 100/1952.

Þjónustuaðili

Útlend­inga­stofnun