Fara beint í efnið

Prentað þann 20. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 1. jan. 2023

1651/2021

Reglugerð um fjárhæðir greiðslna fyrir árið 2022 samkvæmt lögum um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar.

1. gr.

Fjárhæðir greiðslna samkvæmt lögum nr. 40/2009, um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2022:

  1. Hámarksfjárhæð tekjutengdra greiðslna skv. 1. málsl. 3. mgr. 10. gr. skal nema 852.093 kr. á mánuði.
  2. Lágmarksfjárhæð tekjutengdra greiðslna skv. 2. málsl. 3. mgr. 10. gr. skal nema 221.097 kr. á mánuði.
  3. Fjárhæð greiðslna til líffæragjafa í námi skv. 1. mgr. 15. gr. skal nema 221.097 kr. á mánuði.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 18. gr., sbr. 8. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 15. gr., laga nr. 40/2009, um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar, öðlast gildi 1. janúar 2022. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1335/2020, um fjárhæðir greiðslna fyrir árið 2021 samkvæmt lögum um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar.

Félagsmálaráðuneytinu, 29. desember 2021.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson
félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra.

Gunnhildur Gunnarsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.