Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 1. júní 2022

1650/2021

Reglugerð um fjárhæðir bóta almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2022.

1. gr.

Fjárhæðir bóta samkvæmt III. og VI. kafla laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, og greiðslur samkvæmt 63. gr. sömu laga, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2022:

Lífeyristryggingar kr. á mánuði kr. á ári
Ellilífeyrir, skv. 1. mgr. 23. gr. 278.271 3.339.252
Hálfur ellilífeyrir, skv. 2. mgr. 23. gr. 139.136 1.669.632
Örorkulífeyrir, skv. 4. mgr. 18. gr. 52.631 631.572
Örorkustyrkur, skv. 1. mgr. 19. gr. 38.908 466.896
Örorkustyrkur, skv. 2. mgr. 19. gr. 52.631 631.572
Barnalífeyrir, skv. 6. mgr. 20. gr. 38.540 462.480
Aldurstengd örorkuuppbót (100%), skv. 2. mgr. 21. gr. 52.631 631.572
Tekjutrygging, skv. 3. mgr. 22. gr. 168.542 2.022.504
Annað kr. á dag kr. á mánuði kr. á ári
Ráðstöfunarfé, skv. 8. mgr. 48. gr. 83.533 1.002.396
Dagpeningar utan stofnunar, skv. 9. mgr. 48. gr. 4.057
Fyrirframgreiðsla meðlags, skv. 1. mgr. 63. gr. 38.540 462.480

2. gr.

Fjárhæðir bóta samkvæmt lögum nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2022:

kr. á mánuði kr. á ári
Mæðra- og feðralaun með tveimur börnum, skv. 2. mgr. 2. gr. 11.158 133.896
Mæðra- og feðralaun með þremur börnum
eða fleiri, skv. 2. mgr. 2. gr. 29.009 348.108
Barnalífeyrir, skv. 1. mgr. 3. gr. 38.540 462.480
Umönnunargreiðslur (100%), skv. 1. mgr. 4. gr. 208.532 2.502.384
Makabætur og umönnunarbætur (80%), skv. 5. gr. 176.937 2.123.244
Dánarbætur, skv. 1. mgr. 6. gr. 57.406 688.872
Dánarbætur, skv. 2. mgr. 6. gr. 43.002 516.024
Endurhæfingarlífeyrir, skv. 1. mgr. 7. gr. 52.631 631.572
Heimilisuppbót, skv. 2. mgr. 8. gr. 70.317 843.804
Heimilisuppbót, skv. 3. mgr. 8. gr. 56.969 683.628
Uppbót vegna reksturs bifreiðar, skv. 2. mgr. 10. gr. 19.453 233.436

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr., laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, og 14. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2022. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1333/2020, um fjárhæðir bóta almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2021.

Félagsmálaráðuneytinu, 29. desember 2021.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson
félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra.

Gunnhildur Gunnarsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.