Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Stofnreglugerð

1580/2021

Reglugerð um fjárhæðir bóta slysatrygginga almannatrygginga fyrir árið 2022.

1. gr.

Fjárhæðir bóta samkvæmt II. kafla laga nr. 45/2015 um slysatryggingar almannatrygginga skulu vera sem hér segir fyrir árið 2022:

  1. Dagpeningar, skv. 3. mgr. 11. gr., 2.478 kr. á dag.
  2. Dagpeningar vegna barns á framfæri, skv. 3. mgr. 11. gr., 556 kr. á dag.
  3. Upphæð miskabóta skv. 12. gr. fer að reiknireglu 4. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993.
  4. Dánarbætur, skv. a-lið, 1. mgr. 13. gr., 4.900.000 kr. eingreiðsla.
  5. Dánarbætur, skv. 2. mgr. 13. gr., 1.005.866 kr. eingreiðsla.

2. gr.

Ákvæði til bráðabirgða við reglugerðina verður svohljóðandi:

Ef útreikningur skv. 1. mgr. 17. gr. laga nr. 108/2021 á eingreiðslu frá sjúkratryggingastofnun liggur ekki fyrir 1. janúar 2022 til þeirra sem áður hafa fengið mánaðarlegar lífeyrisgreiðslur frá Tryggingastofnun skulu þær lífeyrisgreiðslur framlengjast, þ.e. viðeigandi hlutfall af 52.631 kr. á mánuði þar til útreikningur á eingreiðslu liggur fyrir. Ef við á gildir hið sama um barnalífeyri, þ.e. viðeigandi hlutfall af 38.540 kr. á mánuði fyrir hvert barn.

Ef útreikningur skv. 3. mgr. 17. gr. laga nr. 108/2021 á eingreiðslu frá sjúkratryggingastofnun liggur ekki fyrir 1. janúar 2022 til þeirra sem áður hafa fengið mánaðarlegar dánarbætur frá Tryggingastofnun skulu þær dánarbætur framlengjast, þ.e. 57.539 kr. á mánuði þar til útreikningur á eingreiðslu liggur fyrir. Ef við á gildir hið sama um barnalífeyri, þ.e. 38.540 kr. á mánuði fyrir hvert barn.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 23. gr. og 2. mgr. 25. gr. laga nr. 45/2015, um slysatryggingar almannatrygginga, með síðari breytingum, sbr. 13. mgr. 32. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2022.

Heilbrigðisráðuneytinu, 16. desember 2021.

Willum Þór Þórsson
heilbrigðisráðherra.

Guðlaug Einarsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.