Fara beint í efnið

Prentað þann 2. maí 2024

Stofnreglugerð

1418/2023

Reglugerð um desemberuppbætur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna árið 2023.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um desemberuppbætur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna fyrir desember 2023.

Tryggingastofnun ríkisins annast framkvæmd reglugerðarinnar.

2. gr. Desemberuppbót.

Foreldri langveiks eða alvarlega fatlaðs barns sem fær greiðslu í desember 2023 samkvæmt lögum um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna á rétt á desemberuppbót að fjárhæð 75.775 kr. enda hafi foreldrið fengið mánaðarlegar greiðslur allt árið 2023.

Foreldri sem hefur fengið greiðslur skemur en tólf mánuði á árinu 2023 á rétt á hlutfallslegri desemberuppbót skv. 1. mgr. í samræmi við þann tíma sem foreldrið hefur fengið greiðslur á árinu samkvæmt lögum um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna. Miða skal við 1/12 fyrir hvern mánuð.

Desemberuppbót skv. 2. mgr. skal þó aldrei nema lægri fjárhæð en 18.944 kr.

3. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 31. gr. laga nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1421/2022, um desemberuppbætur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna árið 2022.

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 18. desember 2023.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Jóna Guðný Eyjólfsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.