Fara beint í efnið

Prentað þann 2. maí 2024

Stofnreglugerð

1411/2023

Reglugerð um fjárhæðir bóta almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2024.

1. gr.

Fjárhæðir bóta samkvæmt lögum nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, og greiðslur samkvæmt 42. gr. sömu laga, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2024:

Lífeyristryggingar kr. á mánuði kr. á ári
Ellilífeyrir, skv. 21. gr. 333.194 3.998.328
Hálfur ellilífeyrir, skv. 21. gr. 166.597 1.999.164
Örorkulífeyrir, skv. 26. gr. 63.020 756.240
Örorkustyrkur, skv. 1. mgr. 27. gr. 46.588 559.056
Örorkustyrkur, skv. 2. mgr. 27. gr. 63.020 756.240
Tekjutrygging, skv. 2. mgr. 28. gr. 201.807 2.421.684
Aldursviðbót (100%), skv. 29. gr. 63.020 756.240
Barnalífeyrir, skv. 6. mgr. 40. gr. 46.147 553.764
Annað kr. á dag kr. á mánuði kr. á ári
Ráðstöfunarfé, skv. 3. mgr. 38. gr. 100.020 1.200.240
Dagpeningar utan stofnunar, skv. 4. mgr. 38. gr. 4.858
Fyrirframgreiðsla meðlags, skv. 1. mgr. 42. gr. 46.147 553.764

2. gr.

Fjárhæðir bóta samkvæmt lögum nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2024:

kr. á mánuði kr. á ári
Mæðra- og feðralaun með tveimur börnum, skv. 2. mgr. 2. gr. 13.361 160.332
Mæðra- og feðralaun með þremur börnum
eða fleiri, skv. 2. mgr. 2. gr. 34.734 416.808
Barnalífeyrir, skv. 3. gr. 46.147 553.764
Umönnunargreiðslur (100%), skv. 1. mgr. 4. gr. 249.690 2.996.280
Makabætur og umönnunarbætur (80%), skv. 5. gr. 211.859 2.542.308
Dánarbætur, skv. 1. mgr. 6. gr. 68.736 824.832
Dánarbætur, skv. 2. mgr. 6. gr. 51.490 617.880
Endurhæfingarlífeyrir, skv. 3. mgr. 7. gr. 63.020 756.240
Heimilisuppbót, skv. 2. mgr. 8. gr. 84.197 1.010.364
Heimilisuppbót, skv. 3. mgr. 8. gr. 68.213 818.556
Uppbót vegna reksturs bifreiðar, skv. 10. gr. 23.293 279.516

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 63. gr, sbr. 62. gr. laga um almannatryggingar, með síðari breytingum, og 14. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2024. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 690/2023, um fjárhæðir bóta almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2023.

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 18. desember 2023.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Jóna Guðný Eyjólfsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.