Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 28. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 1. jan. 2015

1264/2011

Reglugerð um veitingu leyfa til ættleiðingar.

1. gr.

Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu skal frá og með 1. janúar 2015 annast leyfisveitingar samkvæmt II. og VI. kafla laga um ættleiðingar, nr. 130 31. desember 1999, með síðari breytingum.

2. gr.

Leyst skal úr málum, sem er ólokið hjá embætti sýslumannsins í Búðardal þann 1. janúar 2012, hjá embætti sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 41. gr. laga um ættleiðingar, nr. 130 31. desember 1999, með síðari breytingu, sbr. og 1. gr. sömu laga, sbr. 10. gr. laga nr. 143 15. desember 2006, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 1120 28. desember 2006, um veitingu leyfa til ættleiðingar.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.