Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 21. des. 2021

1252/2020

Reglugerð um úthlutun og greiðslu fjárframlags ársins 2020 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða.

1. gr. Jöfnun örorkubyrði lífeyrissjóða.

Stuðla skal að því að mismunandi örorkubyrði lífeyrissjóða verði jöfnuð eins og nánar greinir í reglugerð þessari. Ríkissjóður veitir árlegu fjárframlagi til lífeyrissjóða til þess að ná því markmiði samkvæmt ákvæðum VI. kafla laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum.

Í samræmi við VI. kafla laga nr. 113/1990, skal fjárframlag ríkissjóðs til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2020 nema 0,325% af gjaldstofni tryggingagjalds skv. III. kafla laga nr. 113/1990. Framlagið skal byggjast á upplýsingum ríkisreiknings um áætlaðan gjaldstofn tryggingagjalds næstliðins árs.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið annast úthlutun og greiðslu framlags til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða samkvæmt reglugerð þessari.

2. gr. Skipting framlagsins milli lífeyrissjóða.

Framlagi til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða skal skipt milli lífeyrissjóða með eftirfarandi hætti:

  1. Fundin er hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í heildarörorkulífeyrisgreiðslum allra lífeyrissjóða á næstliðnu ári.
  2. Fundin er hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í skuldbindingum lífeyrissjóða til greiðslu örorku-lífeyris umfram 10% af heildarlífeyrisskuldbindingum sjóðanna í framtíðinni vegna væntanlegra iðgjalda miðað við tryggingafræðilega stöðu lífeyrissjóða við lok næstliðins árs. Nú hefur lífeyrissjóður nýtt heimild samkvæmt lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, til þess að ákveða lágmark tryggingaverndar þannig að iðgjaldi sé varið að hluta til öflunar lífeyrisréttinda í séreign og skal þá verðmæti iðgjaldsgreiðslna vegna réttinda sem aflað er í séreign talið til skuldbindinga sjóðsins í framtíðinni þegar fundin er hlutdeild sjóðsins skv. 1. málsl.
  3. Meðaltalshlutfall skv. 1. og 2. tölul. myndar hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í framlagi til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða.

3. gr. Úthlutun fjárframlags árið 2020.

Samkvæmt 19. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, skal fjárframlag til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2020 renna til lífeyrissjóða sem hafa starfsleyfi frá fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. ákvæði laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Áætlaður gjaldstofn tryggingagjalds árið 2019 nemur samkvæmt ríkisreikningi 2019 samtals kr. 1.583.485.326.975 og er áætlað fjárframlag ársins 2019 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða því með vísan til 1. gr. samtals kr. 5.146.327.313 og skiptist það milli lífeyrissjóða sem hér segir:

Lífeyrissjóður Fjárhæð kr. Hlutfall
Almenni lífeyrissjóðurinn 26.194.806 0,509%
Birta lífeyrissjóður 182.257.182 3,542%
Eftirlaunasjóður FÍA 10.035.338 0,195%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L060EsRb 952.071 0,019%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L050EsH 5.043.401 0,098%
Festa lífeyrissjóður 745.805.754 14,492%
Frjálsi lífeyrissjóðurinn 143.145.094 2,782%
Gildi lífeyrissjóður 1.983.394.545 38,540%
Íslenski lífeyrissjóðurinn 43.615.124 0,848%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L140LsA 2.367.311 0,046%
Lífeyrissjóður bankamanna-aldur 21.794.696 0,424%
Lífeyrissjóður bankamanna-hlutfall 17.703.366 0,344%
Lífeyrissjóður bænda 18.629.705 0,362%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L510LsN 385.975 0,008%
Lífeyrissjóður Rangæinga 36.281.608 0,705%
Lífeyrissjóður starfsmanna Akureyrarbæjar 3.293.649 0,064%
Lífeyrissjóður starfsm. Búnaðarbanka Íslands hf. 3.370.844 0,066%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L600LsH 1.672.556 0,033%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L400LK 3.216.455 0,063%
Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar 26.632.244 0,518%
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-A 317.399.737 6,168%
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-B 157.451.884 3,060%
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-A 147.082.035 2,858%
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-V 69.243.834 1,346%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L700LsV 2.290.116 0,045%
Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands 2.058.531 0,040%
Lífsverk lífeyrissjóður 14.049.474 0,273%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 377.302.987 7,332%
Lífeyrissjóður Vestmannaeyja 114.325.661 2,222%
Stapi lífeyrissjóður 601.091.030 11,680%
Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda 68.240.300 1,326%

Samtals


5.146.327.313


100,000%

Við greiðslu fjárframlags ársins 2021, í október 2021, skal endurreikna, og leiðrétta ef þörf er á, fjárframlag ársins 2020 á grundvelli endurskoðaðra upplýsinga um gjaldstofn tryggingagjalds ársins 2019.

4. gr. Leiðrétting fjárframlags ársins 2019.

Endurskoðaður gjaldstofn tryggingagjalds vegna ársins 2017 er kr. 1.519.025.825.541. Mismunur áætlaðs gjaldstofns tryggingagjalds ársins 2018 skv. 3. gr. reglugerðar nr. 1166/2019, um úthlutun og greiðslu fjárframlags ársins 2019 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða, og endurskoðaðs gjaldstofns tryggingagjalds vegna ársins 2018 er kr. 5.065.938.645 til lækkunar. Fjárframlag ríkissjóðs til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2019 nam 0,325% af gjaldstofni tryggingagjalds, sbr. lög nr. 177/2006, um breyting á lögum nr. 113/1990, um tryggingagjald. Leiðrétting fjárframlags ársins 2019, frá því sem það var ákvarðað með reglugerð nr. 1166/2019, nemur því samtals kr. 16.464.301 til lækkunar. Áætlað fjárframlag ársins 2020 eins og það er ákvarðað skv. 3. gr. lækkar þær fjárhæðir sem tilgreindar eru í eftirfarandi töflu:

Lífeyrissjóður Fjárhæð kr. Hlutfall
Almenni lífeyrissjóðurinn 78.782 0,479%
Birta lífeyrissjóður 603.831 3,668%
Eftirlaunasjóður FÍA 33.999 0,207%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L060EsRb 2.964 0,018%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L050EsH 14.736 0,090%
Festa lífeyrissjóður 2.373.176 14,414%
Frjálsi lífeyrissjóðurinn 517.640 3,144%
Gildi lífeyrissjóður 6.159.903 37,414%
Íslenski lífeyrissjóðurinn 135.996 0,826%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L140LsA 8.808 0,054%
Lífeyrissjóður bankamanna-aldur 63.141 0,384%
Lífeyrissjóður bankamanna-hlutfall 55.979 0,340%
Lífeyrissjóður bænda 61.577 0,374%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L510LsN 1.317 0,008%
Lífeyrissjóður Rangæinga 115.333 0,701%
Lífeyrissjóður starfsmanna Akureyrarbæjar 12.678 0,077%
Lífeyrissjóður starfsm. Búnaðarbanka Íslands hf. 12.760 0,078%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L600LsH 4.198 0,026%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L400LK 9.055 0,055%
Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar 84.627 0,514%
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-A 961.520 5,840%
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-B 545.136 3,311%
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-A 519.616 3,156%
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-V 194.444 1,181%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L700LsV 8.397 0,051%
Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands 6.586 0,040%
Lífsverk lífeyrissjóður 40.749 0,248%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 1.218.035 7,398%
Lífeyrissjóður Vestmannaeyja 341.718 2,076%
Stapi lífeyrissjóður 2.037.385 12,375%
Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda 240.215 1,459%

Samtals


16.464.301


100,000%

5. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 22. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi. Jafnframt er felld úr gildi eldri reglugerð nr. 1166/2019 sama efnis.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 1. desember 2020.

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Anna V. Ólafsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.