Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 28. apríl 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 8. jan. 2015 – 24. des. 2015 Sjá núgildandi

1248/2014

Reglugerð um rannsóknir og forvarnir gegn slysum og flugatvikum í almenningsflugi.

1. gr. Innleiðing á EES-gerð.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 996/2010 frá 20. október 2010 um rannsóknir og forvarnir gegn slysum og flugatvikum í almenningsflugi og um niðurfellingu á tilskipun 94/56/EB. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 36 frá 12. júní 2014, bls. 176.

2. gr. Framkvæmd.

Rannsóknarnefnd samgönguslysa, yfirvald öryggisrannsókna á Íslandi, annast framkvæmd þessarar reglugerðar.

3. gr. Refsiheimild.

Um brot gegn reglugerð þessari fer eftir ákvæðum 41. gr. laga nr. 18/2013, um rannsókn samgönguslysa.

Hver sem hindrar starfsmenn eða nefndarmenn rannsóknarnefndar samgönguslysa við rannsóknarstörf sín skal sæta sektum.

Hver sá sem upplýsir um innihald þeirra gagna sem fjallað er um í 14. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 996/2010, eins og hún er innleidd hér á landi, skal sæta sektum.

Brot gegn 9. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 996/2010, eins og hún er innleidd hér á landi, varðar sektum.

4. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 40. gr., sbr. og a.-n. liði sömu greinar, laga nr. 18/2013, um rannsókn samgönguslysa, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 10. desember 2014.

Ólöf Nordal.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.