Fara beint í efnið

Prentað þann 27. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 3. feb. 2024

1241/2023

Reglugerð um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/932 um samræmt, hagnýtt fyrirkomulag við framkvæmd opinbers eftirlits að því er varðar aðskotaefni í matvælum, um sértækt viðbótarinnihald landsbundinna eftirlitsáætlana til margra ára og sértækar viðbótarráðstafanir vegna undirbúnings þeirra.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum, sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinnar ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/932 frá 9. júní 2022 um samræmt, hagnýtt fyrirkomulag við framkvæmd opinbers eftirlits að því er varðar aðskotaefni í matvælum, um sértækt viðbótarinnihald landsbundinna eftirlitsáætlana til margra ára og sértækar viðbótarráðstafanir vegna undirbúnings þeirra. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 78/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 40, frá 25. maí 2023, bls. 95.

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995 um matvæli, lög nr. 54/1990 um innflutning dýra og lög nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

3. gr.

Brot gegn reglugerð þessari varðar sektum eða fangelsi. Um þvingunarúrræði og viðurlög vísast til laga nr. 93/1995 um matvæli, laga nr. 54/1990 um innflutning dýra og laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 31. gr. a. laga nr. 93/1995 um matvæli, 13. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, 6. gr. laga nr. 66/1998 um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr og 74. gr. laga nr. 14/2022 um dýralyf.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 14. nóvember 2023.

Svandís Svavarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.