Fara beint í efnið

Prentað þann 28. apríl 2024

Stofnreglugerð

1236/2023

Reglugerð um gildistöku framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1342 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/848 er varða reglur um upplýsingar sem þriðju lönd, eftirlitsyfirvöld og eftirlitsaðilar eiga að senda vegna eftirlits með viðurkenningu þeirra skv. 2. og 3. mgr. 33. gr. reglugerðar ráðsins (EB) nr. 834/2007 að því er varðar innfluttar lífrænt ræktaðar vörur og ráðstafanir sem á að gera vegna beitingar á þessu eftirliti.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinnar ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1342 frá 27. maí 2021 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/848 er varða reglur um upplýsingar sem þriðju lönd, eftirlitsyfirvöld og eftirlitsaðilar eiga að senda vegna eftirlits með viðurkenningu þeirra skv. 2. og 3. mgr. 33. gr. reglugerðar ráðsins (EB) nr. 834/2007 að því er varðar innfluttar lífrænt ræktaðar vörur og ráðstafanir sem á að gera vegna beitingar á þessu eftirliti. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 36/2022, frá 4. febrúar 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 18, frá 17. mars 2022, bls. 529.

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli og 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli og lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 14. nóvember 2023.

Svandís Svavarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.