Fara beint í efnið

Prentað þann 28. apríl 2024

Stofnreglugerð

1171/2023

Reglugerð um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/279 um ítarlegar reglur um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/848 varðandi eftirlit og aðrar ráðstafanir til að tryggja rekjanleika og reglufylgni í lífrænni framleiðslu og merkingu lífrænt ræktaðra vara.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 38/2022, frá 4. febrúar 2022, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/279 frá 22. febrúar 2021 um ítarlegar reglur um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/848 varðandi eftirlit og aðrar ráðstafanir til að tryggja rekjanleika og reglufylgni í lífrænni framleiðslu og merkingu lífrænt ræktaðra vara. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 18, frá 17. mars 2022, bls. 568.

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli og II. kafla laga nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

Matvælastofnun er heimilt að framselja opinbert eftirlit með lífrænni framleiðslu og merkingu lífrænna vara til faggildra vottunarstofa, sbr. 23. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli.

Eftirlit með smásölu lífrænna vara er í höndum heilbrigðisnefnda sveitarfélaga, sbr. 6. gr. k laga nr. 93/1995, um matvæli.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli og 7. gr. laga nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 23. október 2023.

Svandís Svavarsdóttir.

Iðunn María Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.