Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 29. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 3. mars 2012

1170/2008

Reglugerð um löggæsluskilríki Landhelgisgæslu Íslands.

1. gr.

Löggæsluskilríki Landhelgisgæslunnar eru sérstök skilríki sem gefin eru út af Landhelgisgæslunni til handhafa lögregluvalds, sbr. 21. gr. laga um Landhelgisgæslu Íslands.

Starfsmenn Landhelgisgæslunnar, sem eru handhafar lögregluvalds, skulu bera á sér löggæsluskilríki við framkvæmd starfa sinna. Eingöngu skal gefa út löggæsluskilríki til fastráðinna starfsmanna sem vegna starfa sinna þurfa að nota þau að mati forstjóra.

Skilríkin eru eign Landhelgisgæslunnar.

2. gr.

Löggæsluskilríkin skulu vera samsett úr tveimur einingum, skilríkjakorti og öryggiskorti, og er stærð hvors korts um sig 70 x 100 mm. Skulu þau prentuð á sérstakan öryggispappír.

Á skilríkjakortinu skal vera merki Landhelgisgæslu Íslands í efra vinstra horni (10 mm breitt) og í efra hægra horni skal vera skjaldarmerki lýðveldisins í lit (10 mm breitt). Milli þessara merkja skal vera áletrunin "Landhelgisgæslan" með svörtu letri. Grunnlitur skal vera hvítur með Landhelgisgæslumerkinu sem vatnsmerki (65 mm milli horna). Dökkblá yrjuð rönd skal umlykja skilríkjakortið, 15 mm breið að ofan, 10 mm að neðan og 4 mm breið á hliðum.

Á öryggiskortinu skal vera merki Landhelgisgæslu Íslands (57 mm milli horna) fyrir miðju. Efst skal vera áletrunin "Landhelgisgæslan" og síðan með smækkuðu letri "Icelandic Coast Guard". Þá kemur áletrun með rauðum stöfum: "Handhafi lögregluvalds", og þar fyrir neðan til hægri með svörtu smáu letri: "skv. lögum um Landhelgisgæslu Íslands nr. 52/2006." Neðst skal vera áletrunin "Ísland". Grunnlitur skal vera hvítur með stóru Landhelgisgæslumerki sem vatnsmerki, sem "flæðir út yfir" kortið. Dökkblá yrjuð rönd skal umlykja öryggiskortið, 15 mm breið að ofan, 10 mm að neðan og 4 mm breið á hliðum.

Á bakhlið beggja kortanna skulu vera upplýsingar á íslensku og ensku um hvers konar skilríki er að ræða ásamt reglum um hvað gera skuli ef glatað skilríki finnst. Litir og vatnsmerki skulu vera þeir sömu á bakhlið, en bláa röndin neðst skal vera 1 sm breið.

3. gr.

Þessar upplýsingar skulu skráðar á skilríkjakortið:

  1. Raðnúmer skilríkis.
  2. Brjóstmynd (35 x 45 mm) af skírteinishafa í litum á ljósum bakgrunni. Starfsmenn Landhelgisgæslunnar skulu vera í hvítri skyrtu með svart hálsbindi eða hálstau án einkennishúfu.
  3. Eiginnafn og kenninafn starfsmanns.
  4. Útgáfudagur.
  5. Kennitala starfsmanns.
  6. Undirskrift og útgáfustimpill forstjóra Landhelgisgæslunnar.
  7. Gildistími skilríkis.

Þessar upplýsingar skulu skráðar á öryggiskortið:

  1. Raðnúmer skilríkis.
  2. Gildistími skilríkis.

4. gr.

Öryggi skilríkjanna skal felast í gæðum pappírsins og vatnsmerkjunum. Skilríkin skulu jafnframt brædd í plast.

Skilríkjakortið og öryggiskortið skal varðveita í svörtu skinnveski. Veskið skal vera ein opna með tveimur plastvösum sem kortunum er smeygt í þannig að framhlið þeirra sjáist þegar veskið er opnað, öryggiskortið að ofan og skilríkjakortið að neðan.

5. gr.

Handhafi lögregluvalds skal jafnan hafa skilríkin meðferðis við framkvæmd löggæslustarfa. Honum er óheimilt að nota skilríkin í öðrum tilgangi en fellur undir löggæslustörf skv. lögum um Landhelgisgæslu Íslands.

6. gr.

Óeinkennisklæddur starfsmaður Landhelgisgæslunnar skal við störf að jafnaði gera það ljóst, að hann sé handhafi lögregluvalds, áður en hann ber upp erindi sitt. Þetta getur hann gert með því að framvísa löggæsluskilríkjunum.

Handhafar löggæsluskilríkja skulu verða við ósk um að sýna skilríkin þegar þeir eru við störf. Þó er heimilt að víkja frá þessu ef það er ógerlegt vegna aðstæðna.

Þegar starfsmaður Landhelgisgæslunnar með lögregluvald er við störf á starfssvæði Landhelgisgæslunnar og þess er óskað að hann sýni skilríki sín, skal hann verða við því. Einnig skal hann gera grein fyrir hvert erindi eða verkefni hans er. Starfsmaður Landhelgisgæslunnar sem aðstoðar við löggæslu í landi, skal einnig bera löggæsluskilríki.

7. gr.

Nú glatast löggæsluskilríki eða þeim er stolið og skal þá strax tilkynna það starfsmannastjóra Landhelgisgæslunnar þar sem skráð verður að skilríkin séu glötuð. Starfsmannastjóri í umboði forstjóra gefur þá út ný skilríki.

Finnist glötuð skilríki skal afhenda þau aftur til handhafa þeirra hafi ný skilríki ekki verið gefin út.

8. gr.

Þegar handhafi löggæsluskilríkja hættir störfum skal hann skila löggæsluskilríkjum sínum til starfsmannastjóra Landhelgisgæslunnar sem tekur við þeim í umboði forstjóra.

Ef um tímabundna brottvísun er að ræða skal skilríkjunum skilað. Þegar viðkomandi hefur störf á ný skal afhenda honum sömu skilríki aftur.

Fari handhafi löggæsluskilríkja í launalaust leyfi skal hann skila inn löggæsluskilríkjum sínum.

9. gr.

Landhelgisgæslan skal halda skrá yfir útgefin löggæsluskilríki þar sem fram komi raðnúmer skilríkis, nafn handhafa skilríkis og kennitala, útgáfudagur og hvenær skilríki voru afhent og hvenær þeim er skilað. Í skránni skulu einnig vera upplýsingar um glötuð skilríki. Endurheimt skilríki skal varðveita hjá Landhelgisgæslunni.

10. gr.

Gildistími löggæsluskilríkja er 5-10 ár að mati starfsmannastjóra hverju sinni og styttri ef fyrirfram er vitað hvenær starfsmaður hættir störfum. Einnig skal endurnýja skilríki ef upplýsingar á þeim eru orðnar ógreinilegar eða útlit viðkomandi hefur breyst það mikið að hann þekkist ekki af myndinni að mati starfsmannastjóra.

11. gr.

Reglugerð þessi, sem er sett samkvæmt heimild í 21. gr. laga um Landhelgisgæslu Íslands, nr. 52 14. júní 2006, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.