Fara beint í efnið

Prentað þann 7. maí 2024

Eldri útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 1. okt. 2015 – 30. maí 2018 Sjá núgildandi
Sýnir breytingar gerðar 1. okt. 2015 af rg.nr. 864/2015

1127/2014

Reglugerð um kröfur um afköst og rekstrarsamhæfi kögunar í samevrópska loftrýminu.

1. gr. Markmið.

Markmið reglugerðar þessarar er að tryggja samræmi í afköstum, rekstrarsamhæfi og skilvirkni kerfa sem gegna hlutverki við veitingu kögunargagna, kerfishluta þeirra og tengdra verkferla innan evrópska netsins fyrir rekstrarstjórnun flugumferðar.

2. gr. Gildissvið.

Gildissvið reglugerðar þessarar tekur til flugs sem starfrækt er sem almenn flugumferð og í samræmi við blindflugsreglur innan EUR og AFI svæðis Alþjóðaflugmálastofnunarinnar.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. skulu 3. og 4. mgr. 7. gr. reglugerðar (ESB) nr. 1207/2011 gilda um alla almenna flugumferð innan lofthelgi Íslands.

3. gr. Lögbært yfirvald og framkvæmd.

Samgöngustofa telst lögbært yfirvald samkvæmt reglugerð þessari og hefur eftirlit með framkvæmd hennar.

4. gr. Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerðeftirfarandi gerðir með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

  1.  Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1207/2011 frá 22. nóvember 2011 um kröfur um afköst og rekstrarsamhæfi kögunar í samevrópska loftrýminu, með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 236 frá 13. desember 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 4 frá 23. janúar 2014, bls. 503.

  2.  Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1028/2014 frá 26. september 2014 um breytingu á framkvæmdarreglugerð Evrópusambandsins (ESB) nr. 1207/2011 um kröfur um afköst og rekstrarsamhæfi kögunar fyrir samevrópska loftrýmið, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 112 frá 30. apríl 2015, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34, 18. júní 2015, bls. 192.

5. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. mgr. 57. gr. a, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast gildi 1. janúar 2015.

 Innanríkisráðuneytinu, 18. desember 2014. 

 Ólöf Nordal. 

 Ragnhildur Hjaltadóttir. 

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.