Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 3. maí 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 1. des. 2022
Sýnir breytingar gerðar 1. des. 2022 af rg.nr. 1298/2022

1126/2014

Reglugerð um skilgreiningu sameiginlegra verkefna, um ákvörðun stjórnunarhátta og um tilgreiningu hvata sem styðja við framkvæmd evrópsku mynsturáætlunarinnar um rekstrarstjórnun flugumferðar.

1. gr. Markmið.

Markmið reglugerðar þessarar er skilgreining sameiginlegra verkefna sem vísað er til í 15. gr. a reglugerðar (ESB) nr. 550/2004 (þjónustureglugerðarinnar), þ.e. verkefna sem styðja við árangursríka framkvæmd evrópsku mynsturáætlunarinnar um rekstrarstjórnun flugumferðar.

2. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um evrópska netið fyrir rekstrarstjórnun flugumferðar.

3. gr. Lögbært yfirvald.

Samgöngustofa telst lögbært yfirvald samkvæmt reglugerð þessari og sér um eftirlit með framkvæmd hennar.

4. gr. Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirfarandi reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (ESB), með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins og bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

  1. Reglugerð (ESB) nr. 409/2013 frá 3. maí 2013 um skilgreiningu sameiginlegra verkefna, um ákvörðun stjórnunarhátta og um tilgreiningu hvata sem styðja við framkvæmd evrópsku mynsturáætlunarinnar um rekstrarstjórnun flugumferðar, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 28 frá 14. febrúar 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 12 frá 27. febrúar 2014, bls. 198.
  2. ReglugerðFramkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/116 frá 1. febrúar 2021 um að koma á fót fyrsta sameiginlega verkefninu sem styður við framkvæmd evrópsku mynsturáætlunarinnar um rekstrarstjórnun flugumferðar, sem kveðið er á um í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 550/2004, um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 409/2013 og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 716/2014 frá 27. júní 2014 um fyrstu sameiginlegu áætlunina (Pilot Common Project) til stuðnings framkvæmdar á evrópsku mynsturáætluninni um rekstrarstjórnun flugumferðar, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 65222/20152022 frá 208. marsjúlí 20152022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 2353 frá 2311. aprílágúst 20152022, bls. 30250-78.

5. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. mgr. 57. gr. a, 5. mgr. 75. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast gildi 1. janúar 2015.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.