Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 28. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 1. maí 2020

1110/2012

Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur sjúkraflutningamanna og bráðatækna og skilyrði til að hljóta starfsleyfi.

I. KAFLI Almenn ákvæði.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um sjúkraflutningamenn og bráðatækna sem hafa starfsleyfi landlæknis skv. 2. gr.

II. KAFLI Starfsleyfi.

2. gr. Starfsheiti.

Rétt til að kalla sig sjúkraflutningamann og starfa sem slíkur hér á landi hefur sá einn sem fengið hefur til þess leyfi landlæknis.

Rétt til að kalla sig bráðatækni og starfa sem slíkur hér á landi hefur sá einn sem fengið hefur leyfi landlæknis.

3. gr. Skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis.

Leyfi skv. 1. mgr. 2. gr. má veita þeim sem lokið hafa námi í sjúkraflutningum samkvæmt námskrá sem landlæknir viðurkennir og starfsþjálfun sem uppfyllir viðmið sem sett eru af fagráði sjúkraflutninga.

Leyfi skv. 2. mgr. 2. gr. má veita þeim sem lokið hafa viðurkenndu námi á háskólastigi í bráðatækni frá menntastofnun sem viðurkennd er sem slík af heilbrigðisyfirvöldum hér á landi og heilbrigðisyfirvöldum þess ríkis þar sem námið var stundað.

Einnig er heimilt að veita starfsleyfi, skv. 1. og 2. mgr. 2. gr., á grundvelli menntunar frá ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) og Sviss. Um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi sjúkraflutningamanns og bráðatæknis sem uppfyllir skilyrði tilskipunar 2005/36/EB, um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi, með síðari breytingum, fer samkvæmt reglugerð um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstarfsmanna frá öðrum EES-ríkjum, nr. 461/2011.

Þá er heimilt að veita starfsleyfi þeim sem lokið hafa sambærilegu prófi frá menntastofnun í ríki utan EES eða Sviss sem viðurkennd er sem slík af heilbrigðisyfirvöldum hér á landi og heilbrigðisyfirvöldum þess ríkis þar sem námið var stundað.

Umsækjandi um starfsleyfi sem sjúkraflutningamaður eða bráðatæknir skv. 2. gr. frá ríki utan EES og Sviss sem Ísland hefur ekki samið við um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi skal meðal annars leggja fram gögn um ríkisfang, innihald náms og námslengd, ásamt prófskírteini, starfsleyfi ef starfsgreinin er löggilt í því ríki sem umsækjandi kemur frá, fyrirhuguð störf hér á landi svo og önnur gögn og vottorð sem landlæknir telur nauðsynleg vegna útgáfu starfsleyfis.

Áður en umsókn um starfsleyfi er tekin til efnislegrar meðferðar þarf eftir atvikum að liggja fyrir staðfest afrit umsóknar um atvinnu- og dvalarleyfi ásamt undirrituðum ráðningarsamningi.

Heimilt er að gera kröfu um að umsækjandi búi yfir kunnáttu í íslensku og hafi þekkingu á íslenskri heilbrigðislöggjöf svo og öðrum lögum og stjórnvaldsfyrirmælum sem talin eru nauðsynleg til að geta starfað sem sjúkraflutningamaður eða bráðatæknir, einkum vegna öryggis og samskipta við sjúklinga.

Hafi að mati landlæknis ekki verið sýnt fram á að nám umsækjanda uppfylli kröfur skv. 1. og 2. mgr. er heimilt að krefjast þess að umsækjandi gangist undir próf sem sýni fram á að hann búi yfir þeirri faglegu þekkingu og hæfni sem krafist er af sjúkraflutningamanni og bráðatækni. Viðeigandi menntastofnun og fagráð sjúkraflutninga skal skipuleggja prófið í samráði við landlækni.

Starfsleyfi skv. 4. mgr. er gefið út við komu umsækjanda til starfa hér á landi.

4. gr. Umsagnir.

Áður en leyfi er veitt skv. 2. gr. á grundvelli menntunar utan Íslands skv. 4. mgr. 3. gr. skal landlæknir leita umsagnar viðeigandi menntastofnunar eða fagráðs sjúkraflutninga, sbr. reglugerð um framkvæmd og skipulag sjúkraflutninga, nr. 262/2011, um það hvort umsækjandi uppfylli skilyrði um menntun skv. 1. og 2. mgr. 3. gr. til að hljóta starfsleyfi.

Landlækni er heimilt að leita umsagnar annarra aðila eftir þörfum.

III. KAFLI Réttindi og skyldur.

5. gr. Faglegar kröfur og ábyrgð.

Sjúkraflutningamaður og bráðatæknir skulu sýna sjúklingi virðingu og sinna störfum sínum af árvekni og trúmennsku og í samræmi við þær faglegu kröfur sem gerðar eru til stéttarinnar á hverjum tíma.

Sjúkraflutningamanni og bráðatækni ber að þekkja skyldur sínar og virða siðareglur stéttar sinnar, viðhalda þekkingu sinni og faglegri færni og tileinka sér nýjungar er varða starfið.

Sjúkraflutningamaður og bráðatæknir skulu þekkja lög og reglugerðir sem gilda um heilbrigðisstarfsmenn og heilbrigðisþjónustu og önnur lög og stjórnvaldsfyrirmæli eftir því sem við á.

Sjúkraflutningamaður og bráðatæknir bera eftir því sem við á ábyrgð á þeirri greiningu og meðferð sem þeir veita í samræmi við verkferla sem samþykktir eru af umsjónarlækni sjúkraflutninga í hverju heilbrigðisumdæmi.

Sjúkraflutningamaður og bráðatæknir skulu virða faglegar takmarkanir sínar og leita eftir aðstoð eða vísa sjúklingi til annars heilbrigðisstarfsmanns eftir því sem nauðsynlegt er, svo sem ef þeir telja sig ekki geta veitt viðeigandi heilbrigðisþjónustu.

6. gr. Upplýsingaskylda og færsla sjúkraskrár.

Um upplýsingaskyldu sjúkraflutningamanns og bráðatæknis gagnvart sjúklingi fer samkvæmt ákvæðum laga um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997.

Um skyldu sjúkraflutningamanns og bráðatæknis til að veita landlækni upplýsingar, meðal annars vegna eftirlits og til gerðar heilbrigðisskýrslna, fer samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007.

Sjúkraflutningamaður og bráðatæknir skulu, eftir því sem við á, færa sjúkraskrá samkvæmt ákvæðum laga um sjúkraskrár, nr. 55/2009, og reglugerðum sem settar eru samkvæmt þeim.

7. gr. Nemar.

Sjúkraflutningamaður og bráðatæknir bera ábyrgð á því að nemar, sem þeim er falið að veita leiðsögn, hafi næga hæfni og þekkingu og fái nauðsynlegar leiðbeiningar og tilsögn til að inna af hendi störf sem þeir fela þeim.

8. gr. Trúnaður og þagnarskylda.

Sjúkraflutningamaður og bráðatæknir skulu gæta fyllstu þagmælsku um allt það sem þeir komast að í starfi sínu um heilsufar sjúklings, ástand, sjúkdómsgreiningu, horfur og meðferð ásamt öðrum persónulegum upplýsingum. Þetta gildir ekki bjóði lög annað eða rökstudd ástæða er til þess að rjúfa þagnarskyldu vegna brýnnar nauðsynjar.

Samþykki sjúklings eða forráðamanns, ef við á, leysir sjúkraflutningamann og bráðatækni undan þagnarskyldu.

Þagnarskylda samkvæmt þessari grein nær ekki til atvika sem sjúkraflutningamanni og bráðatækni ber að tilkynna um samkvæmt öðrum lagaákvæðum. Í þeim tilvikum ber sjúkraflutningamanni og bráðatækni skylda til að koma upplýsingum um atvik á framfæri við þar til bær yfirvöld.

Um trúnaðar- og þagnarskyldu sjúkraflutningamanns og bráðatæknis gilda jafnframt ákvæði laga um réttindi sjúklinga, ákvæði laga um sjúkraskrár og önnur lög eftir því sem við á.

IV. KAFLI Ýmis ákvæði.

9. gr. Gjaldtaka.

Um gjaldtöku vegna útgáfu starfsleyfis fer skv. 10. gr. laga um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991.

Um gjaldtöku vegna hvers konar umsýslu landlæknis vegna umsókna um starfsleyfi til viðbótar gjaldi skv. 1. mgr. og vegna prófa í faglegri þekkingu og færni fer samkvæmt reglugerð um gjaldtöku vegna umsókna um starfsleyfi og sérfræðileyfi heilbrigðisstarfsmanna, nr. 951/2012.

10. gr. Almenn ákvæði.

Ákvæði laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, laga um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007, laga um sjúkraskrár, nr. 55/2009, laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, laga um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997, svo og önnur lög og stjórnvaldsfyrirmæli gilda eftir því sem við á um sjúkraflutningamenn og bráðatækna.

10. gr. a. Gildi eldri leyfa.

Þeir sem hlotið hafa starfsleyfi sem sjúkraflutningamenn samkvæmt reglugerð nr. 504/1986, um menntun, réttindi og skyldur sjúkraflutningamanna, með síðari breytingum, halda þeim réttindum óskertum.

11. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 5., 30. og 31. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012 öðlast gildi 1. janúar 2013. Frá sama tíma fellur brott reglugerð um menntun, réttindi og skyldur sjúkraflutningamanna, nr. 504/1986, með síðari breytingum.

Ákvæði til bráðabirgða.

Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. er landlækni heimilt til 1. maí 2021 að veita þeim starfsleyfi sem hafa menntun í sjúkraflutningum samkvæmt reglugerð nr. 504/1986, um menntun, réttindi og skyldur sjúkraflutningamanna, með síðari breytingum, og hafa viðhaldið kunnáttu sinni með því að hafa starfað við greinina frá því að framangreindu námi lauk.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.