Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

968/2010

Reglugerð um úthlutun og greiðslu fjárframlags ársins 2010 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða.

1. gr. Jöfnun örorkubyrði lífeyrissjóða.

Stuðla skal að því að mismunandi örorkubyrði lífeyrissjóða verði jöfnuð eins og nánar greinir í reglugerð þessari. Til þess að ná því markmiði skal ríkissjóður veita árlegu fjárframlagi til lífeyrissjóða samkvæmt ákvæðum VI. kafla laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum.

Í samræmi við VI. kafla laga nr. 113/1990, skal fjárframlag ríkissjóðs til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2010 nema 0,325% af gjaldstofni tryggingagjalds skv. III. kafla laga nr. 113/1990. Framlagið skal byggjast á upplýsingum ríkisreiknings um áætlaðan gjaldstofn tryggingagjalds næstliðins árs.

Fjármálaráðuneytið annast úthlutun og greiðslu framlags til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða samkvæmt reglugerð þessari.

2. gr. Skipting framlagsins milli lífeyrissjóða.

Framlagi til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða skal skipt milli lífeyrissjóða með eftirfarandi hætti:

  1. Fundin er hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í heildarörorkulífeyrisgreiðslum allra lífeyrissjóða á næstliðnu ári.
  2. Fundin er hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í skuldbindingum lífeyrissjóða til greiðslu örorkulífeyris umfram 10% af heildarlífeyrisskuldbindingum sjóðanna í framtíðinni vegna væntanlegra iðgjalda miðað við tryggingafræðilega stöðu lífeyrissjóða við lok næstliðins árs. Nú hefur lífeyrissjóður nýtt heimild samkvæmt lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, til þess að ákveða lágmark tryggingaverndar þannig að iðgjaldi sé varið að hluta til öflunar lífeyrisréttinda í séreign og skal þá verðmæti iðgjaldsgreiðslna vegna réttinda sem aflað er í séreign talið til skuldbindinga sjóðsins í framtíðinni þegar fundin er hlutdeild sjóðsins skv. 1. málsl.
  3. Meðaltalshlutfall skv. 1. og 2. tölul. myndar hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í framlagi til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða.

3. gr. Úthlutun fjárframlags árið 2010.

Samkvæmt 19. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, skal fjárframlag til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2010 renna til lífeyrissjóða sem hafa starfsleyfi frá fjármálaráðherra, sbr. ákvæði laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Áætlaður gjaldstofn tryggingagjalds árið 2009 nemur samkvæmt ríkisreikningi 2009 samtals kr. 789.548.173.352 og er áætlað fjárframlag ársins 2010 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða því með vísan til 1. gr. samtals kr. 2.566.031.563 og skiptist það milli lífeyrissjóða sem hér segir:

Lífeyrissjóður Fjárhæð kr. Hlutfall
Almenni lífeyrissjóðurinn 36.335.007 1,416%
Eftirlaunasjóður FÍA 6.492.060 0,253%
Eftirlaunasjóður Reykjanesbæjar 1.077.733 0,042%
Eftirlaunasjóður Sláturfélags Suðurlands 872.451 0,034%
Eftirlaunasjóður starfsmanna Glitnis banka 25.660 0,001%
Eftirlaunasj. starfsm. Hafnarfjarðarkaupstaðar 1.590.940 0,062%
Eftirlaunasj. starfsm. Útvegsbanka Íslands 461.886 0,018%
Festa lífeyrissjóður 250.162.417 9,749%
Frjálsi lífeyrissjóðurinn 74.825.480 2,916%
Gildi lífeyrissjóður 934.446.054 36,416%
Íslenski lífeyrissjóðurinn 18.937.313 0,738%
Kjölur lífeyrissjóður 4.824.139 0,188%
Lífeyrissjóður Akraneskaupstaðar 2.232.447 0,087%
Lífeyrissjóður bankamanna - aldurs 16.371.281 0,638%
Lífeyrissjóður bankamanna - hlutfalls 12.162.990 0,474%
Lífeyrissjóður bænda 15.293.548 0,596%
Lífeyrissjóður Eimskipafélags Íslands 0 0,000%
Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga 17.936.561 0,699%
Lífeyrissjóður Neskaupstaðar 410.565 0,016%
Lífeyrissjóður Rangæinga 15.883.735 0,619%
Lífeyrissjóður starfsmanna Akureyrarbæjar 2.104.146 0,082%
Lífeyrissjóður starfsm. Búnaðarbanka Íslands hf. 1.898.863 0,074%
Lífeyrissjóður starfsm. Húsavíkurkaupstaðar 795.470 0,031%
Lífeyrissjóður starfsmanna Kópavogsbæjar 2.206.787 0,086%
Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar 21.041.459 0,820%
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-A 79.444.337 3,096%
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-B 98.202.028 3,827%
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-A 24.941.827 0,972%
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-V 12.522.234 0,488%
Lífeyrissjóður starfsmanna Vestmannaeyjabæjar 1.180.375 0,046%
Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands 1.077.733 0,042%
Lífeyrissjóður verkfræðinga 5.029.422 0,196%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 253.164.674 9,866%
Lífeyrissjóður Vestfirðinga 59.942.497 2,336%
Lífeyrissjóður Vestmannaeyja 73.568.125 2,867%
Lífeyrissjóðurinn Skjöldur 102.641 0,004%
Sameinaði lífeyrissjóðurinn 97.560.520 3,802%
Stafir lífeyrissjóður 73.696.426 2,872%
Stapi lífeyrissjóður 293.015.144 11,419%
Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda 54.194.587 2,112%
Samtals 2.566.031.563 100,000%

Við greiðslu fjárframlags ársins 2011, í október 2011, skal endurreikna, og leiðrétta ef þörf er á, fjárframlag ársins 2010 á grundvelli endurskoðaðra upplýsinga um gjaldstofn tryggingagjalds ársins 2009.

4. gr. Leiðrétting fjárframlags ársins 2009.

Endurskoðaður gjaldstofn tryggingagjalds vegna ársins 2008 er kr. 867.513.928.643. Mismunur áætlaðs gjaldstofns tryggingagjalds ársins 2008 skv. 3. gr. reglugerðar nr. 1068/2009, um úthlutun og greiðslu fjárframlags ársins 2009 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða, og endurskoðaðs gjaldstofns tryggingagjalds vegna ársins 2008 er kr. 31.006.087.736 til hækkunar. Fjárframlag ríkissjóðs til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2009 nam 0,25% af gjaldstofni tryggingagjalds, sbr. lög nr. 177/2006, um breyting á lögum nr. 113/1990, um tryggingagjald. Leiðrétting fjárframlags ársins 2009, frá því sem það var ákvarðað með reglugerð nr. 1068/2009, nemur því samtals kr. 77.515.219 og skiptist það milli lífeyrissjóða á samningssviði Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands sem hér segir:

Lífeyrissjóður Fjárhæð kr. Hlutfall
Eftirlaunasjóður Sláturfélags Suðurlands 34.882 0,045%
Festa lífeyrissjóður 9.022.771 11,640%
Gildi lífeyrissjóður 34.323.739 44,280%
Kjölur lífeyrissjóður 251.924 0,325%
Lífeyrissjóður Rangæinga 476.719 0,615%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 10.747.485 13,865%
Lífeyrissjóður Vestfirðinga 2.255.693 2,910%
Lífeyrissjóður Vestmannaeyja 2.608.387 3,365%
Sameinaði lífeyrissjóðurinn 4.577.274 5,905%
Stafir lífeyrissjóður 2.790.548 3,600%
Stapi lífeyrissjóður 10.425.797 13,450%
Samtals 77.515.219 100,00%

5. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 22. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Fjármálaráðuneytinu, 29. nóvember 2010.

F. h. r.

Hafdís Ólafsdóttir.

Lilja Sturludóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.