Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 5. maí 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 2. nóv. 2018 – 17. júní 2021 Sjá lokaútgáfu

961/2018

Reglugerð um enduraðlögunarstyrk og ferðastyrk til umsækjanda um alþjóðlega vernd.

1. gr.

Þegar umsækjandi um alþjóðlega vernd hefur dregið umsókn sína til baka, hann fengið synjun um vernd og ákvörðun hefur verið tekin um aðstoð til sjálfviljugrar heimfarar í samstarfi við Útlendingastofnun, Alþjóðafólksflutningastofnunina (IOM) eða önnur sambærileg samtök er Útlendingastofnun heimilt að greiða honum ferðastyrk og/eða enduraðlögunarstyrk sem stuðla á að árangursríkri enduraðlögun einstaklingsins í heimaríki og styðja viðkomandi við að koma þar undir sig fótunum á nýjan leik.

Ferða- og/eða enduraðlögunarstyrkur greiðist í samræmi við eftirfarandi töflu.

Flokkur Ríki Ferðastyrkur, til greiðslu á Keflavíkurflugvelli Enduraðlögunarstyrkur greiddur í heimaríki, allt að Heildarupphæð á hvern einstakling, allt að
1.1 Fullorðinn Afganistan
Íran
Írak
Nígería
Sómalía
Palestína
Pakistan
200 evrur 800 evrur 1.000 evrur
1.2 Barn Afganistan
Íran
Írak
Nígería
Sómalía
Palestína
Pakistan
100 evrur 500 evrur 600 evrur
2.1 Fullorðinn Alsír
Egyptaland
Kasakstan
Marokkó
200 evrur 500 evrur 700 evrur
2.2 Barn Alsír
Egyptaland
Kasakstan
Marokkó
100 evrur 200 evrur 300 evrur
3 Fylgdarlaust barn Ofangreind upprunaríki 200 evrur 800 evrur 1.000 evrur
4.1 Fullorðinn Önnur ríki 200 evrur 200 evrur
4.2 Barn Önnur ríki 100 evrur 100 evrur
4.3 Fylgdarlaust barn Önnur ríki 200 evrur 200 evrur

Umsækjandi um alþjóðlega vernd getur óskað eftir ferða- og/eða enduraðlögunarstyrk samhliða því sem hann óskar eftir aðstoð við sjálfviljuga heimför. Beiðni um aðstoð við sjálfviljuga heimför og e.a. ferða- og/eða enduraðlögunarstyrk skal lögð fram innan þess frests sem umsækjanda hefur verið veittur til sjálfviljugrar heimfarar.

Útlendingastofnun hefur heimild til þess að greiða framangreinda styrki á meðan styrktarveitingin rúmast innan þeirra fjárheimilda sem stofnunin hefur. Þá á útlendingur eingöngu rétt á enduraðlögunarstyrk einu sinni.

Skilyrði fyrir greiðslu ferða- og/eða enduraðlögunarstyrks er að umsækjandi undirriti skuldaviðurkenningu hjá Útlendingastofnun þess efnis að hann samþykki að endurgreiða veittan styrk komi til þess að hann sæki síðar um dvalarleyfi hér á landi.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Dómsmálaráðuneytinu, 16. október 2018.

Sigríður Á. Andersen.

Haukur Guðmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.