Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 6. maí 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 26. okt. 2017 – 1. júní 2023 Sjá núgildandi

900/2017

Reglugerð um tilkynningu atvika í almenningsflugi sem og greiningu á og eftirfylgni með þeim.

1. gr. Markmið.

  1. Markmiðið með reglugerð þessari er að bæta öryggi í flugi með því að tryggja tilkynningu, söfnun, geymslu, verndun, skipti á, miðlun og greiningu viðeigandi öryggisupplýsinga um almenningsflug.

    Þessi reglugerð tryggir:

    1. að gripið sé tímanlega til öryggisaðgerða, eftir því sem við á, á grundvelli greiningar á upplýsingum sem hefur verið safnað,
    2. að aðgengi að öryggisupplýsingum sé viðhaldið með því að innleiða reglur um trúnaðarkvöð og viðeigandi notkun upplýsinga og með samræmdri og aukinni vernd fyrir tilkynnendur og einstaklinga, sem tilgreindir eru í tilkynningum um atvik, og
    3. að áhætta í tengslum við flugöryggi sé tekin til athugunar og að brugðist sé við henni á Evrópska efnahagssvæðinu og á landsvísu.
  2. Meginmarkmiðið með því að tilkynna atvik er að koma í veg fyrir slys og flugatvik, ekki að skipta sök eða ábyrgð.

2. gr. Efni og gildissvið.

  1. Í þessari reglugerð er mælt fyrir um reglur:

    1. um tilkynningu atvika, sem stofna eða, ef ekki er gripið til aðgerða eða gerðar úrbætur, gætu stofnað í hættu loftfari, farþegum þess eða öðrum einstaklingum, tækjabúnaði eða uppsettum búnaði, sem hefur áhrif á starfrækslu loftfars, og tilkynning annarra viðeigandi öryggistengdra upplýsinga í þessu samhengi,
    2. um greiningu og framhaldsaðgerðir að því er varðar tilkynnt atvik og aðrar öryggistengdar upplýsingar,
    3. um vernd fagfólks í flugi,
    4. um viðeigandi notkun öryggisupplýsinga sem hefur verið safnað,
    5. um skráningu upplýsinga í miðlæga, evrópska gagnasafnið og
    6. um nafnleynd við miðlun upplýsinga til hagsmunaaðila í þeim tilgangi að láta slíkum aðilum í té upplýsingarnar, sem þeir þurfa á að halda, til að auka flugöryggi.
  2. Þessi reglugerð gildir um atvik og aðrar öryggistengdar upplýsingar þar sem almenningsloftför eiga í hlut.
  3. Reglugerð þessi gildir einnig fyrir loftför sem um getur í II. viðauka við reglugerð (EB) nr. 216/2008.

3. gr. Lögbært stjórnvald.

Samgöngustofa er lögbært stjórnvald samkvæmt reglugerð þessari og skulu atvik í almenningsflugi tilkynnt Samgöngustofu í samræmi við ákvæði reglugerðar þessarar.

4. gr. Refsiákvæði.

Brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar varða refsingu samkvæmt 141. gr. laga nr. 60/1998, um loftferðir, með síðari breytingum.

5. gr. Innleiðing EES-gerða.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirfarandi EES-gerðir, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins og bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 376/2014 frá 3. apríl 2014 um tilkynningu atvika í almenningsflugi sem og greiningu á og eftirfylgni með þeim, um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 996/2010 og um niðurfellingu tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2003/42/EB og reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1321/2007 og (EB) nr. 1330/2007, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 275/2015 frá 30. október 2015. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 376/2014 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 74 frá 10. desember 2015, bls. 491-516.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1018 frá 29. júní 2015 um skrá þar sem flokkuð eru atvik í almenningsflugi sem falla undir tilkynningarskyldu samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 376/2014, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 276/2015 frá 30. október 2015. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1018 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 74 frá 10. desember 2015, bls. 517-533.

6. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 47. gr. og 47. gr. a, sbr. 145. gr. laga nr. 60/1998, um loftferðir, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 53/2006 um tilkynningarskyldu flugslysa, alvarlegra flugatvika og atvika, með síðari breytingum.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 12. október 2017.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Björn Freyr Björnsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.