Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 17. maí 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 17. sept. 2013 – 7. júlí 2016 Sjá lokaútgáfu

832/2013

Reglugerð um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 874/2012, frá 12. júlí 2012, um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/30/ESB að því er varðar orkumerkingar rafmagnsljósapera og lampa.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 11q í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 77/2013, frá 13. maí 2013, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka og IV. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 874/2012, frá 12. júlí 2012, um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/30/ESB að því er varðar orkumerkingar rafmagnsljósapera og lampa.

2. gr.

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 874/2012 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 37/2013, 27. júní 2013, bls. 219.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 8. gr. laga nr. 72/1994, um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi orkunotkun heimilistækja o.fl., öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 3. september 2013.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Ingvi Már Pálsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.