Fara beint í efnið

Prentað þann 17. maí 2024

Eldri útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 4. nóv. 2022 – 17. mars 2023 Sjá núgildandi
Sýnir breytingar gerðar 28. sept. 2021 – 4. nóv. 2022 af rg.nr. 1071/2021, 729/2022 og 1197/2022

777/2021

Reglugerð um gildistöku á reglugerð (ESB) 2021/953 um ramma um útgáfu, sannprófun og viðurkenningu samvirkandi vottorða um bólusetningu, próf og bata til að auðvelda frjálsa för á meðan COVID-19 heimsfaraldurinn stendur yfir.

1. gr.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar áMeð reglugerð þessari eru eftirtaldar EES-gerðir innleiddar í íslenskan rétt:

  1.  Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/953 um ramma um útgáfu, sannprófun og viðurkenningu samvirkandi vottorða um bólusetningu, próf og bata til að auðvelda frjálsa för á meðan COVID-19 heimsfaraldurinn stendur yfir, sbr. fylgiskjal 1, sem tekin var upp í EES-samninginsamninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 187/2021 frá 30. júní 2021 og talin er upp á eftir lið 9f í 10. tölulið V. viðauka (frelsi launþega til flutninga) og 9á eftir 10. töluliðlið við VIII. viðauka (staðfesturéttur) við EES-samninginn.

    Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 66, frá 14. október 2021, bls. 94-115.
  2.  Framseld reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2288 um breytingu á viðaukanum við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/953 að því er varðar viðurkenningartímabil bólusetningarvottorða sem gefin eru út með sniði stafræna ESB-vottorðsins vegna COVID þar sem fram kemur hvenær röð grunnbólusetninga lauk, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 41/2022 frá 23. febrúar 2022 og talin er upp í 10. lið í V. viðauka og lið 11 í VIII. viðauka við EES-samninginn. Framselda reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 29, frá 5. maí 2022, bls. 269-272.
  3.  Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/256 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/953 að því er varðar útgáfu vottorða um bata á grundvelli mótefnavakahraðprófa, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 72/2022 frá 18. mars 2022 og talin er upp í 10. lið í V. viðauka og lið 11. í VIII. viðauka við EES-samninginn. Framselda reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 32, frá 19. maí 2022, bls. 369-373.
  4.  Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/503 frá 29. mars 2022 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/953 sem varðar það að veita ólögráða börnum undanþágu frá viðurkenningartímabili bólusetningarvottorða sem gefin eru út með sniði stafræna ESB-vottorðsins vegna COVID, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 136/2022 frá 29. apríl 2022 og talin er upp í 10. lið í V. viðauka og lið 11 í VIII. viðauka við EES-samninginn. Framselda reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 47, frá 14. júlí 2022, bls. 171-173.

2. gr.

Sóttvarnalæknir gefur út eftirfarandi samræmd vottorð í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/953 um ramma um útgáfu, sannprófun og viðurkenningu samvirkandi vottorða um bólusetningu, próf og bata til að auðvelda frjálsa för á meðan COVID-19 heimsfaraldurinn stendur yfir:

  1. Vottorð sem staðfestir að handhafi þess hafi fengið COVID-19 bóluefni innan Evrópska efnahagssvæðisins eða fengið að öðru leyti bólusetningu í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/953 ("bólusetningarvottorð"),
  2. vottorð um niðurstöðu, tegund og dagsetningu NAAT-prófs eða skyndiprófs sem er að finna í sameiginlegu og uppfærðu skránni yfir skyndipróf vegna COVID-19 sem komið var á fót á grundvelli tilmæla ráðsins 2021/C 24/01 ("prófvottorð"), eða
  3. vottorð sem staðfestir, í kjölfar jákvæðrar niðurstöðu NAAT-prófs sem framkvæmt er af fagfólki í heilbrigðisþjónustu eða starfsfólki sem hæft er til að framkvæma próf, að handhafi þess hafi náð bata eftir SARS-CoV-2 sýkingu íaf kjölfar jákvæðs NAAT-prófs eða hafi staðfestingu á ónæmissvörun við SARS-CoV-2 með sermi- eða mótefnaprófun, ásamt dagsetningu fyrsta jákvæða NAAT-prófsins eða dagsetningu sermifræðilegrar prófunar fyrir mótefnum gegnvöldum SARS-CoV-2 ("vottorð um bata"batavottorð).

3. gr.

Vottorð sem gefið er út á grundvelli 2. gr. skal vera í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/953 um ramma um útgáfu, sannprófun og viðurkenningu samvirkandi vottorða um bólusetningu, próf og bata til að auðvelda frjálsa för á meðan COVID-19 heimsfaraldurinn stendur yfir.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 13. og 18. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 Reglugerð þessi fellur úr gildi 1. júlí 2022.

 Heilbrigðisráðuneytinu, 30. júní 2021. 

 F. h. r.

 Runólfur Birgir Leifsson. 

 Rögnvaldur G. Gunnarsson. 

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.