Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 5. maí 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 30. apríl 2004
Sýnir breytingar gerðar 30. apríl 2004 af rg.nr. 354/2004

747/1997

Reglugerð um störf prófnefndar mannvirkjahönnuða.

I. kafli Prófnefnd.

1. gr.

Umhverfisráðherra skipar nefnd, prófnefnd mannvirkjahönnuða til fjögurra ára í senn. Í nefndinni eiga sæti þrír menn og jafn margir varamenn, allir sérfróðir um byggingarmálefni. Nefndin skiptir með sér verkum, ennfremur getur hún ráðið sér starfsmann.

Kostnaður vegna nefndarinnar skal borinn af staðfestingar-, kennslu- og prófgjöldum.

2. gr.

Hlutverk prófnefndar er að hafa umsjón með og ákveða tilhögun námskeiða fyrir væntanlega mannvirkjahönnuði, þ.m.t. að ákveða námsgreinar og prófkröfur, semja kennsluskrá, útbúa kennsluefni og ráða leiðbeinendur. Nefndin getur falið öðrum aðila námskeiðahaldið.

3. gr.

Prófnefnd heldur gerðabók. Í hana skal færa ákvarðanir nefndarinnar og niðurstöður prófa.

II. kafli Námskeið og próf.

4. gr.

Eftirfarandi mannvirkjahönnuðir geta sótt námskeið og gengist undir próf samkvæmt reglugerð þessari:

Arkitektar, byggingarfræðingar, tæknifræðingar, verkfræðingar, rafiðnfræðingar, innanhúshönnuðir og landslagshönnuðir sem hlotið hafa heimild iðnaðarráðherra til starfsheita í tækni- og hönnunargreinum.

5. gr.

NámskeiðPrófnefnd mannvirkjahönnuða skal halda námskeið og próf jafnaðiþví haldaloknu, árhið hvert.minnsta Skalárlega þaðog auglýstoftar rækilegaef s.s.nægur íþátttakendafjöldi dagblöðumfæst. Prófnefnd ákveðurskal þaðauglýsa efni sem prófað er úrnámskeið og hvernigpróf þvía.m.k. efni er skipttvisvar á milliári, námshluta.en Tiltil grundavallar ákvörðunhægt sé að halda námskeið og próf oftar en einu sinni hefurárlega prófnefndskulu tilskráðir hliðsjónarþátttakendur veravæntanlegirlágmarki mannvirkjahönnuðirfimmtán skuli búa yfir þekkingu í eftirfarandi greinum:

 Tilteknum atriðum í skipulags- og byggingarlögum og reglugerðum settum samkvæmtá þeim, tilteknum stöðlum og notkun þeirra og skráningu fasteigna samkvæmt lögum um fasteignamatnámskeiðum.

HeimiltAuglýsa skal fyrirhuguð námskeið í a.m.k. einu dagblaði sem gefið er prófnefndút á landsvísu. Í auglýsingu prófnefndar um námskeið og próf skal gera grein fyrir námsefni í meginatriðum.

 Próf skulu haldin innan mánaðar eftirfæranámskeiði námsgreinarlauk og skal prófnefnd ákveða prófdag í upphafi námskeiðs.
 Námskeið prófnefndar skiptist í fimm þætti:

 1.  Skipulags- og byggingarlög, S-hluti. Skipulagsáætlanir og mannvirki, samræmi við skipulag.
 2.  Skipulags- og byggingarlög, B-hluti. Almenn umfjöllun um byggingar reglugerð, höfundarétt og endurgervingu gamalla húsa.
 3.  Fjöleignarhúsalög og skráning mannvirkja.
 4.  Staðlar og vottun og RB-tækniblöð.
 5.  Brunavarnir skv. byggingarreglugerð, mengunarvarnarreglugerð og lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, nr. 28/1980.

 Prófnefnd er heimilt að flytja námsefni á milli hlutaþátta svoeða bæta við námsgreinum og skal bætaþað greinumþá viðkoma námshlutafram eðaí fækkaupphafi þeimnámskeiðs.

6. gr.

Prófnefnd er heimilt að veita þátttakanda, sem um það sækir, undanþágu frá því að þreyta tiltekinn hluta prófs. Skilyrði slíkrar undanþágu er að þátttakandi framvísi vottorði frá viðurkenndri menntastofnun um að hann hafi staðist sambærilegar námskröfur og gerðar eru til þátttakenda á námskeiðinu, að mati prófnefndar.

7. gr.

Próf skulu haldin innan mánaðar eftir að námskeiði er lokið. Skal próftími vera 4 klukkustundir og vægi einstakra þátta námsefnisins tilkynnt a.m.k. 7 virkum dögum fyrir próf. Til að standast próf skal þátttakandi hljóta einkunnina 5,0 úr hverjum þætti námsefnisins og að lágmarki 6,0 í samanlagðri meðaleinkunn. Gefa skal einkunnir með einum aukastaf.

8. gr.

Prófnefnd er skylt að gangast fyrir sjúkraprófi hafiGeti þátttakandi ekki getað sótt próf vegna veikinda. Skalskal hannprófnefnd framvísagangast læknisvottorðifyrir sjúkraprófi gegn framvísun læknisvottorðs vegna veikindanna. Sjúkrapróf skal haldið tveimur vikum eftir próf, komi ekki fram óskir um annað. Þó skal ekki líða lengri tími en mánuður frá prófi.

 Standist nemandi ekki próf skv. 7. gr. er prófnefnd heimilt að halda upptökupróf án námskeiðs. Heimilt er prófnefnd að ákveða að einungis sé prófað úr þeim þætti/þáttum prófsins þar sem nemandi náði ekki lágmarkaeinkuninni 5,0, að því tilskildu að samanlagðri meðaleinkunn 6,0 hafi verið náð.

Prófnefnd ákveður hvaða dag upptökupróf skuli haldið en það skal að jafnaði gert innan mánaðar frá prófinu. Prófnefnd getur og ákveðið að upptökupróf skuli haldið í lok næsta skipulagða námskeiðs og gilda þá ákvæði 7. gr. um framkvæmd þess.

 Þátttakanda sem ekki nær lágmarkseinkunn á upptökuprófi er heimilt að haldagangast sérstakt upptökupróf fyrir þá þátttakendur sem ekki ná tilskilinni lágmarkseinkunn. Ef slíktundir próf er ekki haldið er þeim heimiltnýjuþreytaþví próftilskildu úr viðkomandihann þáttumsæki námsefnisins,námskeið næstog þegargreiði prófnámskeiðsgjöld erusbr. haldin9. gr.

III. kafli Námskeiðagjöld o. fl.

9. gr.

Umhverfisráðherra ákveður að fenginni tillögu prófnefndar námskeiðagjöld. Þau skiptast í staðfestingargjald, kennslugjald og prófgjald. Við ákvörðun námskeiðagjalda skal miða við að nemendur greiði allan kostnað af námskeiði og prófi.

Staðfestingargjald sem skal nema einum fimmta af námskeiðsgjöldum greiðir þátttakandi er hann skráir sig á námskeiðið og er það óafturkræft þótt hann hætti við þátttöku.

Kennslugjald greiðir þátttakandi eigi síðar en 7 virkum dögum eftir að kennsla hefst. Kennslugjald endurgreiðist vegna brottfalls úr námskeiði ef sérstakar ástæður mæla með.

Prófgjald greiðir þátttakandi eigi síðar en 7 virkum dögum fyrir próf. Skal þátttaka óheimil í prófi nema hann hafi staðið skil á prófgjaldi.

 Er það óafturkræft þótt þátttakandi þreyti ekki prófið.

 Óski þátttakandi eftir því að sækja einungis námskeið án þess að þreyta próf skal hann greiða sem svarar tveimur þriðju af námskeiðsgjöldum. Þeir er fengið hafa undanþágu frá prófi í einstökum þáttum námsefnisins skulu greiða hlutfallslegt prófgjald.

Fyrir Við ákvörðun námskeiðagjaldaupptökupróf skal miðaþátttakandi viðgreiða sem nemendursvarar greiði allan kostnaðþriðjungi af námskeiði og prófinámskeiðsgjöldum.

10. gr.

Prófnefnd skal fjalla um umsókn mannvirkjahönnuðar um löggildingu áður en hún er veitt.

11. gr.

Ákvæði reglugerðar þessarar hrófla ekki við eldri rétti hönnuða til þess að leggja teikningar fyrir bygginganefnd.

Þeir aðilar sem taldir eru upp í 4. gr. og við gildistöku reglugerðarinnar hafa lokið hluta reynslutíma sem nauðsynlegur er samkvæt byggingarlögum nr. 54/1978, með síðari breytingum, til að öðlast löggildingu skulu eiga kost á að ljúka honum eftir eldri reglum.

12. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 48. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með breytingu nr. 135/1997 og öðlast gildi 1. janúar 1998.

 Umhverfisráðuneytinu, 29. desember 1997. 

 Guðmundur Bjarnason. 

 Ingimar Sigurðsson. 

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.