Fara beint í efnið

Prentað þann 2. maí 2024

Stofnreglugerð

735/2023

Reglugerð um heimild til flutnings á allt að 25% af aflamarki í grálúðu, gulllaxi og ufsa frá fiskveiðiárinu 2022/2023 yfir á fiskveiðiárið 2023/2024.

1. gr.

Heimilt er að flytja allt að 25% af aflamarki í grálúðu, gulllaxi og ufsa frá fiskveiðiárinu 2022/2023 yfir á fiskveiðiárið 2023/2024.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett skv. heimild í 16. gr., sbr. 3. mgr. 11. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 6. júlí 2023.

Svandís Svavarsdóttir.

Agnar Bragi Bragason.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.