Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Stofnreglugerð

729/2001

Reglugerð um fráveitugjald í Kópavogsbæ.

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um fráveitugjald í lögsagnarumdæmi Kópavogs.

2. gr.

Hverjum þeim sem á hús eða húshluta í Kópavogi, eða á eða leigir lóð í bænum við götu eða opið svæði, þar sem götuholræsi liggja, eða leiðir fráveituvatn í fráveitukerfi bæjarins, ber að greiða árlegt fráveitugjald til bæjarsjóðs Kópavogs, sbr. 12. gr. reglugerðar um fráveitu í Kópavogsbæ.

Fráveitugjaldið skal vera 0,13% af fasteignamati, sbr. lög um skráningu og mat fasteigna nr. 94/1976 með síðari breytingum. Sé ekkert mannvirki á lóð greiðist ekki fráveitugjald. Ekki skal reikna fráveitugjald af húsi það ár sem bygging þess hefst.

3. gr.

Fráveitugjald greiðist af hús- og íbúðareiganda, lóðareiganda ef um eignarlóð er að ræða, en af leigutaka ef um leigulóð er að ræða og bera þessir aðilar ábyrgð á greiðslu gjaldsins. Fráveitugjaldið er aðfararhæft og má gera aðför í hinni skattskyldu eign án tillits til eigendaskipta. Fráveitugjaldið nýtur lögveðsréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.

4. gr.

Gjalddagar fráveitugjalds eru hinir sömu og gjalddagar fasteignaskatts og greiðist fráveitugjaldið með fasteignaskatti.

Reglugerð þessi, sem sett er af bæjarstjórn Kópavogsbæjar skv. X. kafla vatnalaga, nr. 15/1923, staðfestist hér með til að öðlast gildi við birtingu. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um holræsagjöld í Kópavogi nr. 347/1974, með síðari breytingum.

Félagsmálaráðuneytinu, 20. september 2001.

F. h. r.
Berglind Ásgeirsdóttir.

Guðjón Bragason.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.