Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

727/2018

Reglugerð um tæki sem brenna gasi.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um tæki sem brenna gasi.

2. gr. Lögbært yfirvald.

Vinnueftirlit ríkisins gegnir hlutverki lögbærs yfirvalds í skilningi ákvæða reglugerðar (ESB) 2016/426, um tæki sem brenna loftkenndu eldsneyti og niðurfellingu á tilskipun 2009/142/EB.

3. gr. Tilkynningaryfirvald.

Velferðarráðuneytið gegnir hlutverki tilkynningaryfirvalds í skilningi ákvæða reglugerðar (ESB) 2016/426, um tæki sem brenna loftkenndu eldsneyti og niðurfellingu á tilskipun 2009/142/EB.

4. gr. Faggildingarstofa.

Faggildingarsvið Einkaleyfastofu gegnir hlutverki faggildingarstofu í skilningi ákvæða reglugerðar (ESB) 2016/426, um tæki sem brenna loftkenndu eldsneyti og niðurfellingu á tilskipun 2009/142/EB.

5. gr. Skyldur framleiðanda, innflytjenda og dreifingaraðila.

Leiðbeiningar og upplýsingar sem framleiðendum, innflytjendum og dreifingaraðilum ber að tryggja skv. 6. og 7. mgr. 7. gr., 3. og 4. mgr. 9. gr., og 2. mgr. 10. gr. reglugerðar (ESB) 2016/426, um tæki sem brenna loftkenndu eldsneyti og niðurfellingu á tilskipun 2009/142/EB skulu vera á íslensku. Leiðbeiningar og upplýsingar sem framleiðendum, innflytjendum og dreifingaraðilum ber að tryggja skv. 9. mgr. 7. gr., 9. mgr. 9. gr., 4. mgr. 14. gr. og 2. og 3. mgr. 15. gr. reglugerðar (ESB) 2016/426, um tæki sem brenna loftkenndu eldsneyti og niðurfellingu á tilskipun 2009/142/EB skulu vera á íslensku eða ensku.

6. gr. Eftirlit.

Um eftirlit með reglugerð þessari fer skv. 75. gr. laga, nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, með síðari breytingum.

7. gr. Viðurlög.

Um brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar fer skv. 99. gr. laga nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, með síðari breytingum.

8. gr. Innleiðing EES-gerðar.

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/426 frá 9. mars 2016 um tæki sem brenna loftkenndu eldsneyti og niðurfellingu á tilskipun 2009/142/EB sem vísað er til í V. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 9/2018 frá 9. febrúar 2018 með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af reglugerð þessari, II. viðauka samningsins, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans, skal öðlast gildi hér á landi. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 42 frá 2018, bls. 188.

9. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 3. gr., 34., 35., 38. og 47. gr. laga nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, með síðari breytingum, að fenginni umsögn stjórnar Vinnueftirlits ríkisins og að höfðu samráði við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið vegna faggildingarsviðs Einkaleyfastofu hvað varðar þátt faggildingarsviðs Einkaleyfastofu, sbr. lög nr. 24/2006, um faggildingu o.fl., öðlast þegar gildi

Jafnframt falla úr gildi reglur nr. 108/1996, um tæki sem brenna gasi.

Velferðarráðuneytinu, 5. júlí 2018.

Ásmundur Einar Daðason
félags- og jafnréttismálaráðherra.

Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.