Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 28. apríl 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 11. ágúst 2006 – 30. júní 2009 Sjá núgildandi

690/2006

Reglugerð um skipulag vinnutíma farstarfsmanna.

I. KAFLI Markmið.

1. gr. Markmið.

Markmið reglugerðar þessarar er að mæla fyrir um skipulag vinnutíma farstarfsmanna í flutningum á vegum.

2. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um farstarfsmenn í þjónustu flytjanda, sem stundar flutningastarfsemi á vegum sem reglugerð um aksturs- og hvíldartíma tekur til og er henni til fyllingar.

Ákvæði laga um hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum gilda um starfsmenn við flutninga sem falla utan gildissviðs reglugerðar þessarar.

3. gr. Skilgreiningar.

Í reglugerðinni merkja orð og orðasambönd eftirfarandi:

Farstarfsmaður; Starfsmaður flytjanda, það er ökumaður og aðrir í áhöfn hóp- eða vörubifreiðar sem aðstoða ökumann við önnur störf en akstur og einnig sá sem er í bifreið til þess að leysa ökumanninn af þegar hann tekur hvíld.

Vinnustaður farstarfsmanns;

  1. aðalstarfsstöð eða útibú flytjanda
  2. ökutæki sem áhöfn notar til flutninga og
  3. aðrir staðir þar sem starfsemi sem tengist flutningum er sinnt.

Vinnutími farstarfsmanns; sá tími sem fer í flutninga á vegum frá því að starfsmaður mætir til vinnu og þar til vinnu lýkur. Störf við flutninga eru einkum:

  1. akstur
  2. lestun og losun farms
  3. aðstoð við farþega til að fara í og úr ökutæki
  4. hreinsun og viðhald ökutækis og búnaðar þess
  5. önnur vinna sem er ætlað að tryggja öryggi ökutækis, farms þess og farþega eða til að uppfylla lagalegar skyldur sem tengjast beinlínis tilteknum flutningi, þ.m.t. eftirlit með lestun og losun farms, formsatriði á sviði stjórnsýslu sem snúa að lögreglu, tolli o.s.frv.
  6. sá tími sem farstarfsmaður skal vera á vinnustað, reiðubúinn að hefja vinnu, t.d. þegar hann bíður eftir að geta lestað eða losað ökutæki.

Biðtími;

  1. Önnur tímabil en þau sem tengjast vinnuhléum og hvíldartíma en telst á sama hátt ekki til vinnutíma. Einkum er átt við tímabil þegar farstarfsmaður fylgir ökutæki sem verið er að flytja með milli staða auk biðtíma vegna umferðarbanns. Farstarfsmaður þarf ekki að dvelja á vinnustað en skal vera reiðubúinn að koma til starfa, ef þess er óskað, til að hefja eða halda áfram akstri eða inna af hendi aðra vinnu.
  2. Þegar farstarfsmenn í sömu áhöfn eru í bifreið, sem er í akstri en eru ekki að störfum við akstur eða önnur verkefni.

Næturvinnutími; frá miðnætti til kl. 07.00, að lágmarki fjórar klukkustundir.

Vika; er sjö dagar sem hefst á miðnætti aðfaranótt mánudags og lýkur kl. 24.00 næsta sunnudag.

II. KAFLI Vinnutími.

4. gr. Hámarksfjöldi vinnustunda á viku.

Meðalfjöldi vinnustunda á viku skal ekki vera meiri en 48 klst. Hámarksfjöldi vinnustunda á viku má verða 60 klst. ef meðalfjöldi vinnustunda á viku fer ekki yfir 48 klst. í fjóra mánuði.

Reglugerð um aksturs- og hvíldartíma ökumanna skal ganga framar þessum reglum að því er varðar ökumenn, að því tilskildu að viðkomandi vinni ekki meira en 48 klst. á viku að meðaltali á fjögurra mánaða tímabili.

Starfi farstarfsmaður hjá fleiri en einum flytjanda í tiltekinni viku, skal hver flytjandi óska eftir skriflegum upplýsingum um hve margar stundir farstarfsmaðurinn vinnur fyrir hvern flytjanda í vikunni. Ber farstarfsmanninum að láta þessar upplýsingar í té.

5. gr. Vinnuhlé.

Ökumaður skal taka sér hlé frá akstri í samræmi við ákvæði reglugerðar um aksturs- og hvíldartíma ökumanna.

Farstarfsmenn, aðrir en ökumaður, skulu taka sér hlé frá störfum eigi síðar en eftir 6 stunda vinnu. Sé heildarfjöldi vinnustunda 6-9 stundir skal hlé vera a.m.k. 30 mínútur en a.m.k. 45 mínútur ef heildarfjöldinn er meiri en 9 stundir. Hléi má skipta í tímabil sem ekki eru styttri en 15 mínútur.

6. gr. Hvíldartími.

Í reglugerð þessari gilda sömu reglur um hvíldartíma farstarfsmanna og eru í reglugerð um aksturs- og hvíldartíma ökumanna.

7. gr. Næturvinna.

Þegar unnin er næturvinna, skal fjöldi dagvinnustunda ekki fara yfir tíu stundir á hverjum sólarhring.

III. KAFLI Önnur ákvæði.

8. gr. Undanþágur.

Með almennum samningum eða samningum milli aðila vinnumarkaðarins má víkja frá ákvæðum 4. og 7. gr. af hlutlægum eða tæknilegum ástæðum er varða vinnufyrirkomulag. Sé það ekki unnt er heimilt að veita undanþágu með almennum lögum eða stjórnsýslufyrirmælum, að því tilskildu að samráð hafi verið haft milli aðila vinnumarkaðarins og að átak hafi verið gert til að hvetja til skoðanaskipta.

Viðmiðunartímbil við útreikning á undanþágu frá hámarksfjölda vinnustunda á viku, sbr. 4. gr. skal ekki vera lengra en sex mánuðir.

9. gr. Upplýsingar og skrár.

Farstarfsmönnum skal gerð grein fyrir kröfum sem varða skipulag vinnutíma sem koma fram í innri reglum flytjanda eða samningum milli aðila vinnumarkaðarins séu þeir til staðar.

Farstarfsmaður skal skrá vinnutíma sinn. Flytjandi bera ábyrgð á skráningu og skal geyma skrár í a.m.k. tvö ár frá því að viðkomandi tímabili lýkur. Sé þess óskað, skal flytjandi láta farstarfsmanni í té afrit af gögnum um unnar stundir.

Vinnutími ökumanns skal skráður með sama hætti og aksturs- og hvíldartími þeirra samkvæmt reglugerð um ökurita og notkun hans. Vinnutími annarra farstarfsmanna skal skráður með sama hætti eftir því sem unnt er en að öðrum kosti á skráningarskýrslu þar sem fram koma, eftir því sem við á, þær upplýsingar sem tilgreindar eru í 13. gr. reglugerðar um ökurita. Umferðarstofa skal útbúa eyðublað fyrir skráningarskýrslu.

10. gr. Hagstæðari ákvæði.

Heimilt er aðilum vinnumarkaðarins að semja um hagstæðari skilmála en fram koma í reglugerð þessari að því er varðar heilsuvernd og öryggi farstarfsmanna sem sjá um flutninga á vegum. Sama á við um setningu löggjafar sem veitir farstarfsmönnum aukin réttindi í störfum sínum.

11. gr. Refsiákvæði.

Brot á reglugerð þessari varða refsingu samkvæmt XIV. kafla umferðarlaga nr. 50/1987 með síðari breytingum og reglugerð um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim.

12. gr. Innleiðing.

Með reglugerð þessari er innleidd tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2002/15/EB frá 11. mars 2002 um skipulag á vinnutíma farstarfsmanna sem sjá um flutninga á vegum sem vísað er til í tölulið 24d í XIII. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 50/2003, frá 31. júlí 2003 sem birtist í EES-viðbæti 39, bls. 16.

13. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 44. gr. b umferðarlaga nr. 50/1987 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Samgönguráðuneytinu, 25. júlí 2006.

Sturla Böðvarsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.