Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

645/2018

Reglugerð um hámark ábyrgðar Ábyrgðasjóðs launa.

1. gr.

Hámarksábyrgð á kröfum launamanna skv. a- og b-lið 5. gr., sbr. einnig 6. gr. laga nr. 88/2003, um Ábyrgðasjóð launa, með síðari breytingum, skal vera 633.000 kr. miðað við hvern mánuð. Hámarksábyrgð á kröfum skv. c-lið 5. gr., sbr. einnig 6. gr. laganna, skal vera 1.014.000 kr.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 1. mgr. 6. gr. laga nr. 88/2003, um Ábyrgðasjóð launa, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. júlí 2018. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1211/2014, um hámark ábyrgðar Ábyrgðasjóðs launa.

Velferðarráðuneytinu, 11. júní 2018.

Ásmundur Einar Daðason
félags- og jafnréttismálaráðherra.

Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.