Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Stofnreglugerð

622/2016

Reglugerð um innleiðingu reglugerðar ráðsins (EB), á sviði samkeppnismála, nr. 411 frá 26. febrúar 2004 um að fella úr gildi reglugerð (EBE) nr. 3975/87 og breyta reglugerðum (EBE) nr. 3976/87 og (EB) nr. 1/2003 með tilliti til flutninga í lofti milli Bandalagsins og þriðju landa (3) skal felld inn í samninginn.

1. gr.

Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 39/2005 frá 11. mars 2005 gildir eftirtalin EB-gerð hér á landi, með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XIV. viðauka við EES-samninginn um samkeppni, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð ráðsins (EB) nr. 411/2004 frá 26. febrúar 2004 um að fella úr gildi reglugerð (EBE) nr. 3975/87 og breyta reglugerðum (EBE) nr. 3976/87 og (EB) nr. 1/2003 með tilliti til flutninga í lofti milli Bandalagsins og þriðju landa (3).

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 411/2004 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 14, 20. mars 2008, bls. 269-270.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 32. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 4. júlí 2016.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Sigrún Brynja Einarsdóttir.

Ólafur Egill Jónsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.