Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

603/2001

Reglugerð um holræsagjald í Hveragerðisbæ.

1. gr.

Hverjum þeim sem á hús eða húshluta í Hveragerðisbæ eða leigir lóð í sveitarfélaginu við götu eða opið svæði sem holræsi hefur verið lagt í ber að greiða árlegt holræsagjald til sveitarsjóðs.

Upphæð holræsagjaldsins skal vera 0,25% af fasteignamati allra húsa og lóða samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 94/1976, með síðari breytingum. Sé ekkert mannvirki á lóð greiðist ekki holræsagjald.

2. gr.

Holræsagjald greiðist af hús- og íbúðareiganda, lóðareiganda ef um eignarlóð er að ræða en af leigutaka ef um leigulóð er að ræða og bera þessir aðilar ábyrgð á greiðslu gjaldsins.

Holræsagjaldið má taka lögtaki og má gera lögtak í hinni skattskyldu eign án tillits til eigendaskipta.

Holræsagjaldið nýtur lögveðsréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.

3. gr.

Gjalddagar holræsagjalds eru þeir sömu og gjalddagar fasteignaskatts og greiðist holræsagjaldið með fasteignaskatti.

Reglugerð þessi, sem samin er og samþykkt af bæjarstjórn Hveragerðisbæjar, staðfestist hér með skv. X. kafla vatnalaga nr. 15/1923 til þess að öðlast gildi við birtingu. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um holræsi í Hveragerðishreppi nr. 292/1964.

Félagsmálaráðuneytinu, 24. júlí 2001.

F. h. r.
Húnbogi Þorsteinsson.

Guðjón Bragason.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.