Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 20. apríl 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 29. des. 2021

564/2008

Reglugerð fyrir HEF veitur ehf.

I. KAFLI Rekstrarform, tilgangur o.fl.

1. gr. Eignarhald.

HEF veitur ehf. er einkahlutafélag sem er í eigu Fljótsdalshéraðs og er starfrækt sem sjálfstætt fyrirtæki, í reglugerð þessarri nefnt HEF.

2. gr. Tilgangur.

Tilgangur HEF er að virkja jarðhita svo og aðra orkugjafa og rekstur hitaveitu sem selur vatn í heildsölu og í smásölu eftir því sem ákveðið kanna að verða og hagkvæmt þykir. Í þessu skyni skal hitaveitan leita eftir samningum um borunar- og virkjunarrétt, bora eftir vatni og virkja þegar hagkvæmt þykir, leggja veitukerfi og annast sölu á vatni og varma til notenda.

3. gr. Veitusvæði.

Veitusvæði HEF er þéttbýli á Fljótsdalshéraði og önnur svæði innan lögsagnarumdæmis sveitarfélagsins sem tengd verða veitunni á grundvelli samninga og ákvarðana þar um.

Sveitarstjórn Fljótsdalshéraðs fyrir hönd Fljótsdalshéraðs framseldi þann 28. apríl 2005 einkaleyfi sitt til HEF á dreifingu og sölu á heitu vatni til ársloka 2040.

II. KAFLI Stjórn HEF veitur ehf.

4. gr. Stjórn.

Stjórn HEF veitur ehf. fer með stjórn HEF samkvæmt lögum um einkahlutafélög, nr. 138/1994, og er kosin á lögmætum hluthafafundi. Stjórnin skal skipuð 3-5 mönnum og 3-5 til vara. Stjórnin er ákvörðunarbær þegar meirihluti hennar sækir fund. Einfaldur meirihluti atkvæða ræður úrslitum.

Rétt til setu á fundum stjórnar, með málfrelsi og tillögurétt, hefur framkvæmdastjóri HEF sbr. 6. gr.

5. gr. Verksvið stjórnar.

Helstu verkefni stjórnar eru:

  1. Annast stefnumótun um uppbyggingu, rekstur og þjónustusvið hitaveitunnar.
  2. Gera áætlanir um öflun og dreifingu á heitu vatni og vinna að framkvæmd þeirra í samræmi við gildandi lög á hverjum tíma.
  3. Gera gjaldskrá fyrir HEF.
  4. Gera meiriháttar samninga um sölu á heitu vatni.
  5. Gera árlega fjárhagsáætlun og eftir atvikum langtímaáætlun, skv. gildandi lögum og reglum.
  6. Gefa hluthöfum þær skýrslur sem óskað er eftir.
  7. Semja nánari reglur um einstök framkvæmdaatriði reglugerðarinnar.

6. gr. Framkvæmdastjóri.

Stjórnin ræður framkvæmdastjóra HEF. Framkvæmdastjóri annast daglegan rekstur HEF. Hann ræður starfsmenn til veitunnar eftir þörfum. Framkvæmdastjóri situr fundi stjórnar og hefur þar málfrelsi og tillögurétt.

7. gr. Fjárhagur.

HEF skal hafa sjálfstæðan fjárhag og sjálfstætt reikningshald. Reikningsár HEF er almanaksárið. Tekjum HEF skal varið til að standa straum af nauðsynlegum rekstri og stofnkostnaði þannig að tryggður sé öruggur rekstur veitunnar, svo og til greiðslu afborgana og vaxta af skuldum fyrirtækisins vegna stofnkostnaðar. Ráðstöfun hagnaðar eða jöfnun taps skal ákveðin af stjórn.

III. KAFLI Almenn ákvæði.

8. gr. Húsveita, kaupandi o.fl.

Eigandi húseignar, eða annarra mannvirkja er hafa húsveitur tengdar HEF, telst eigandi húsveitu. Kaupandi vatns er sá sem skráður er fyrir viðkomandi mæli eða hemli hjá HEF hverju sinni.

Húseigandi ber ábyrgð á því að réttur aðili sé skráður notandi á hverjum tíma.

9. gr. Afhending og meðferð vatns, eignarréttur o.fl.

HEF afhendir heitt vatn um veitukerfi sitt í samræmi við gildandi reglugerð og gjaldskrá á hverjum tíma.

Framkvæmdastjóra HEF er heimilt að semja sérstaklega um sölu á vatni utan almennra söluskilmála. Slíkir samningar skulu háðir samþykki stjórnar.

HEF er heimilt að nota aftur heitt vatn, sem runnið hefur gegnum hitakerfi hvers húseiganda (bakrennslisvatn), endurgjaldslaust. Heimilt er að leyfa frekari nýtingu þess, svo sem til upphitunar í gripahúsum, bílastæðum, gróðurhúsum o.s.frv.

Óheimilt er að leiða afrennslisvatn í frárennsli heitara en 35ºC. HEF getur krafist þess að settur sé hitastýrður loki á afrennsli, ef grunur leikur á að afrennslisvatnið sé of heitt.

HEF ber enga ábyrgð á tjóni er kann að leiða af notkun bakrennslisvatns, s.s. frostskemmdum o.þ.h. Óheimilt er að tengja vatnsdælur, varmadælur og annan slíkan búnað við framrás eða bakrás hitaveitu. Húseiganda er heimilt að setja varmaskipta á heitt neysluvatn og vatn til kyndingar, enda kosti hann þá framkvæmd sjálfur.

10. gr. Breytingar á þrýstingi, magni o.fl.

Óviðráðanlegar breytingar á þrýstingi eða magni á heitu vatni eru án ábyrgðar HEF. Sama gildir um hitastig heita vatnsins. Um breytingar, er stafa af öðrum ástæðum, skal HEF tilkynna notendum með hæfilegum fyrirvara sé þess nokkur kostur.

Þar sem svo hagar til að þrýstingsmunur er umtalsverður á kerfum hita- og vatnsveitu kann að vera nauðsynlegt að setja þrýstiminnkara á húskerfi til að jafna þrýsting. Húseiganda ber að setja slíkan búnað upp á sinn kostnað telji pípulagningameistari hússins, byggingarfulltrúi eða HEF það nauðsynlegt.

11. gr. Rekstrartruflanir o.fl.

Ef nauðsyn krefur, vegna viðgerða á dælustöðvum, vatnsgeymum, vatnsæðum og öðrum lögnum veitukerfa HEF eða af öðrum ástæðum, getur HEF fyrirskipað takmörkun á vatnsnotkun, takmarkað vatnsrennsli eða lokað fyrir vatn, eftir því sem þörf krefur hverju sinni, enda tilkynni HEF fyrirfram um slíkar takmarkanir, ef unnt er.

HEF ber ekki fjárhagslega ábyrgð á tjóni sem leiða kann af rekstrartruflunum er kunna að verða á veitukerfunum svo sem vegna frosta, rafmagnstruflana, náttúruhamfara eða annarra óviðráðanlegra atvika. Sama gildir ef rennsli í vatnsæð er stöðvað um stundarsakir vegna viðgerða eða annarra nauðsynlegra framkvæmda veitunnar. Þurfi að takmarka notkun á heitu vatni ákveður HEF hvar og hvernig takmarkanir fara fram. Takmörkun um skamman tíma hefur ekki áhrif á skyldu til greiðslu mælaleigu eða fasta- og hemlagjalda.

Stöðvun á rekstri veitunnar eða hluta hennar vegna viðhalds eða tenginga skal tilkynna fyrirfram ef unnt er og HEF skal kappkosta að koma á eðlilegum rekstri svo fljótt sem verða má.

Full vatnsgjöld, svo og fastagjald hitaveitu eða mælaleigu ber að greiða, þótt lokun fari fram og HEF ber ekki fjárhagslega ábyrgð á tjóni, er leiða kann af rekstrartruflunum, er verða vegna vinnu við veitukerfi HEF, rafmagnstruflana eða af öðrum óviðráðanlegum ástæðum. HEF er ekki skylt að greiða bætur vegna takmörkunar á vatnsafhendingu eða vegna tímabundinnar lækkunar á hitastigi heita vatnsins.

12. gr. Viðhald húsveitu.

Í samræmi við skyldur samkvæmt byggingarlögum og reglugerðum er húsráðendum skylt að halda vel við vatnslögnum og vatnstækjum innanhúss.

13. gr. Endursala.

Kaupendum er óheimil endursala á heitu vatni nema um það sé sérstaklega samið.

IV. KAFLI Gjaldskrár og söluskilmálar.

14. gr. Gild umsókn um tengingu húsveitu.

Skilyrði fyrir sölu á vatni er að í gildi sé samþykkt umsókn um tengingu viðkomandi húsveitu við veitukerfi HEF. Sækja skal um tengingu á þar til gerðu eyðublaði.

15. gr. Samningur um kaup á heitu vatni.

Upphaf og lok samnings um kaup á heitu vatni er við skráningu tilkynningar hjá HEF þess efnis. Tilkynningin skal undirrituð af báðum aðilum, þ.e. þeim er hyggst hætta viðskiptum og þeim er tekur við.

16. gr. Mælar, hemlar, stærð, gerð, prófanir o.fl.

HEF ákveður stærð og gerð hemla og rennslismæla sem notaðir eru í mælagrindur. Miðað er við að fyrirtæki noti rennslismæla en eigendur íbúðarhúsnæðis geta valið á milli rennslismælis eða hemils fyrir heitt vatn. HEF breytir stillingu hemils eftir óskum húseiganda fyrsta árið, sem hús hans er tengt við hitakerfið, en síðan verður hemilsstillingu að jafnaði breytt einu sinni á ári og skal skrifleg beiðni um breytingu koma fram við HEF fyrir 1. september ár hvert. Hámarksstilling hemils gildir allt árið þótt heitavatnsnotkun verði minni hluta úr ári. Minnsta sala gegnum hemil skal vera 1 mínútulítri. Selt vatnsmagn standi ávallt á heilum eða hálfum mínútulítra.

Ef kaupandi óskar að hemill eða mælir sé prófaður skal hann senda skriflega beiðni þar um til hitaveitunnar. Komi í ljós við þá athugun að frávik sé 5% eða minna, er heimilt að gera kaupanda að greiða álestrargjald. Sé frávik meira skal HEF greiða kostnað við prófunina og leiðrétta reikning kaupanda í samræmi við niðurstöður hennar, þó ekki fyrir lengra tímabil en tvo mánuði nema kaupandi eða HEF, eftir því sem við á, geti sannað að um lengra tímabil hafi verið að ræða, þó lengst fjögur ár.

17. gr. Fastagjald og gjald fyrir mælda notkun.

Gjaldi vegna kaupa á heitu vatni er skipt í fast gjald, gjald eftir hemli (lítri á mínútu) og gjald fyrir hvern seldan rúmmetra vatns samkvæmt rennslismæli auk mælaleigu. Greiðsla fastagjalds eða mælaleigu hefst þegar uppsetningu mælagrindar er lokið, óháð því hvenær vatnskaup hefjast.

Kaupandi skal greiða fastagjaldið/mælaleigu þrátt fyrir stöðvun á vatnsafhendingu vegna vanskila eða annarra vanefnda kaupanda þar til samningur um kaup á heitu vatni er úr gildi fallinn vegna uppsagnar.

18. gr. Reikningar, uppgjör o.fl.

Kaupandi skal greiða HEF fyrir heitt vatn samkvæmt gildandi gjaldskrá HEF. Við breytingar á gjaldskrá skal reikningsfæra notkun í beinu hlutfalli við gildistíma hverrar gjaldskrár á því tímabili sem reikningurinn tekur til. HEF má byggja reikninga á áætlun um vatnskaup og innheimta samkvæmt slíkri áætlun.

Þar til vatnsmælir hefur verið settur upp, eða ef vatnsmælir bilar áætlar HEF heitavatnsnotkun með hliðsjón af eðlilegri þörf viðkomandi húss/mannvirkis. Reikningar, sem byggjast á staðreyndri vatnsnotkun, nefnast álestrarreikningar, en reikningar sem byggjast á áætlaðri notkun, nefnast áætlunarreikningar.

Vatnsnotkun samkvæmt mælum skal staðreyna eigi sjaldnar en á 12 mánaða fresti. Þegar vatnsnotkun hefur verið staðreynd skal hún reikningsfærð og gerð upp fyrir tímabilið milli álestra og koma þá áætlunarreikningar til frádráttar.

Kaupandi getur þó jafnan, gegn greiðslu mælaálestrargjalds, krafist aukaálestrar og uppgjörs. Ennfremur getur hann óskað eftir breytingu á áætlun um vatnskaupin vegna nýrra forsendna. Reikninga skal senda kaupanda á notkunarstað eða annan stað sem hann tiltekur. Reikninga ber að greiða á tilgreindum gjalddaga og eigi síðar en á eindaga. Sé reikningur eigi greiddur innan tilgreinds frests (fyrir eindaga) er fram kemur á reikningi, reiknast dráttarvextir frá gjalddaga. Útsending reikninga fyrir vatnsnotkun skal fara fram eigi sjaldnar en annan hvern mánuð.

V. KAFLI Lagning veitukerfa, viðhald o.fl.

19. gr. Veitukerfið.

HEF lætur leggja og á allar lagnir veitukerfisins. Með veitukerfi er átt við aðveituæðar, stofnæðar, dreifiæðar, götuæðar svo og heimæðar og lagnir innanhúss til og með stofnkrana, vatnsmæli eða hemli enda er skylt að þeir séu á inntaki, sbr. 22. gr. um inntaksrými.

20. gr. Heimæðar.

Sækja skal um lagningu heimæða til HEF á þar til gerðu eyðublaði þegar framkvæmdir hefjast á lóð. Umsókn skulu fylgja viðeigandi teikningar samþykktar af byggingaryfirvöldum Fljótsdalshéraðs og skal á þeim gerð grein fyrir afstöðu húss/mannvirkis og væntanlegum inntaksstað fyrir heitt vatn. Hönnuðir skulu hafa samráð við HEF um væntanlega legu lagna á lóð og gera grein fyrir þeim á teikningum.

HEF er heimilt að leggja heimæð eða sameiginlega heimæð um lóð, og húseigandi skal sjá fyrir inntaksstað fyrir heitt vatn við útvegg kjallara eða fyrstu hæðar ef húsið er kjallaralaust, ásamt nauðsynlegu rými fyrir mælagrind og annað tilheyrandi tengingu við veituna. HEF ber ekki skylda til að leggja heimæðar meðan frost er í jörðu eða á tímabilinu frá 1. október til 1. júní nema greiðsla á áföllnum aukakostnaði komi til.

21. gr. Um tengibúnað.

Sækja skal um uppsetningu tengibúnaðar og kaup á vatni á þar til gerðum eyðublöðum. Umsóknin skal undirrituð af eiganda hússins eða fullgildum umboðsmanni hans ásamt pípulagningameistara þeim sem verkið á að annast. Mælagrind hitaveitu er sett upp þegar heimæðargjald hefur verið greitt.

22. gr. Um lagningu heimæða og gerð inntaksrýmis.

Við hönnun húsa skal gera ráð fyrir og staðsetja á uppdrætti rými fyrir stofnloka heimæðar mæli eða hemil og annan búnað í eigu HEF. Inntaksrými skal uppfylla ákvæði byggingarreglugerðar.Tengja skal öryggisloka hitakerfis við frárennslislagnir. Inntaksrými skal vera aðgengilegt starfsmönnun HEF.

HEF annast lagningu eigin veitukerfis og tengingu við húsveitur. Þó skal húseigandi/húsbyggjandi koma fyrir inntaksvinklum og/eða ídráttarinntaksbeygjum í samráði við HEF. HEF ákveður hvort lagt er einfalt eða tvöfalt (framrásar- og bakrásarkerfi) kerfi að húsi. Við framkvæmdir skal HEF halda raski í lágmarki og ganga þrifalega um. Jafnframt skal HEF færa allt til fyrra horfs, eftir því sem við verður komið. Húseigandi á ekki kröfu til sérstakrar greiðslu vegna lagningar veitukerfa HEF.

23. gr. Kostnaður við tengingu.

HEF kostar lagningu eigin veitukerfis, en húseigandi greiðir heimæðargjald samkvæmt gjaldskrá, fyrir hverja heimæð með mæli eða hemli.

24. gr. Kostnaður við breytingar.

Kostnað við breytingar á húsveitu eða hitunarkerfi húss vegna tengingar við hitaveituna skal húseigandi greiða.

Húseigandi greiðir breytingar á heimæðum sem nauðsynlegar eru vegna framkvæmda hans.

Húseigandi skal fyrirfram sækja um leyfi til hverra þeirra framkvæmda, sem kunna að hafa í för með sér röskun á veitukerfi HEF.

25. gr. Áhleypingar.

Engir aðrir en umboðsmenn HEF mega hleypa vatni úr kerfi veitunnar á hitakerfi húsa í fyrsta sinn eftir tengingu. Pípulagningameistari skal annast prófun hitalagna í samráði við byggingarfulltrúa sem sér um úttekt kerfisins og vera viðstaddur þegar vatni er hleypt á hitakerfið.

26. gr. Aðgangur að veitukerfi, lögnum o.fl.

HEF hefur rétt til aðgangs að húsnæði því, sem tengt er veitukerfi hennar, til viðhalds, eftirlits og breytinga.

Í þeim undantekningartilfellum, þar sem inntak hitaveitu og mælagrind eru ekki í sama herbergi, skal lögn þar á milli vera óhulin eða í stokk sem auðvelt er að opna, og ber húseigandi ábyrgð á tjóni er leki á slíkri millilögn kann að valda.

Óheimilt er að hylja mælagrind á þann hátt að það valdi erfiðleikum við viðhald og viðgerðir og eigi má setja hillur eða annað ofan við mæli þannig að það hindri eðlilegan aflestur, og getur HEF krafist úrbóta sé frágangur umhverfis mælagrind ekki í samræmi við ákvæði reglugerðarinnar. HEF getur lagfært slíka ágalla á kostnað húseiganda verði dráttur á úrbótum, sbr. 30. gr.

27. gr. Viðhald heimæða.

Við viðhald heimæðar skulu starfsmenn HEF halda raski í lágmarki og ganga snyrtilega um. Sé nauðsynlegt vegna bilunar eða endurnýjunar á heimæð að grafa upp heimæðina er starfsmönnum veitunnar það heimilt, en færa skulu þeir lóð til fyrra horfs eins og unnt er.

Starfsmönnum HEF er heimilt vegna endurnýjunar heimæðar að leggja hana á öðrum stað frá dreifiæð í hús, telji þeir það heppilegra til að forðast skemmdir. Enn fremur er starfsmönnum heimilt að höfðu samráði við húseiganda, að fara með heimæð inn í hús á öðrum stað, ef ekki er unnt að nota þann stað sem fyrir er, nema valda miklu og/eða óbætanlegu tjóni. Hafi húseigandi gróðursett trjáplöntur, steypt veggi, stéttar, bifreiðastæði eða annað sambærilegt yfir heimæð, eða lagt yfir hana snjóbræðslukerfi, ber HEF ekki ábyrgð á því tjóni sem kann að verða vegna nauðsynlegra aðgerða veitunnar, nema tjónið verði rakið til gáleysis starfsmanna hennar.

Eigandi fasteignar á ekki kröfu á sérstakri greiðslu fyrir óþægindi vegna viðhalds eða endurnýjunar heimæðar.

VI. KAFLI Innheimta vanskila, viðurlög við brotum o.fl.

28. gr. Um stöðvun vatnsafhendingar vegna vanskila.

HEF hefur rétt til að stöðva afhendingu á heitu vatni til kaupanda sem greiðir ekki áætlunar- eða álestrarreikning eða vanrækir skyldur sínar samkvæmt reglugerð þessari. Til slíkra aðgerða má þó fyrst grípa að undangenginni skriflegri aðvörun sem sendist kaupanda með fimm daga fyrirvara. HEF ber ekki ábyrgð á hugsanlegum afleiðingum slíkrar lokunar.

HEF hefur rétt til að krefja kaupanda um greiðslu gjalds samkvæmt gjaldskrá hafi komið til stöðvunar vatnsafhendingar af ástæðum sem um getur í 1. mgr. Heimilt er HEF að krefjast greiðslu þessarar áður en heitavatnsafhending er hafin á ný. Þó ekki komi til stöðvunar á afhendingu á heitu vatni er HEF heimilt að krefja kaupanda um gjald vegna undirbúnings að stöðvun. Fastagjald/mælaleiga greiðist þó vatnsafhending hafi verið stöðvuð.

29. gr. Innsigli, ólögmæt notkun o.fl.

Starfsmenn HEF innsigla hemla og vatnsmæla, svo og annan þann inntaksbúnað í eigu HEF, er þurfa þykir. Þessi innsigli mega engir aðrir en starfsmenn HEF rjúfa. Ef rofið er innsigli á búnaði HEF varðar það refsingu samkvæmt almennum hegningarlögum, sama á við um ólögmæta vatnsnotkun (vatnsstuld).

Ef skjótra aðgerða er þörf vegna hættuástands er heimilt að rjúfa innsigli en þá skal viðkomandi strax tilkynna HEF um atvikið (neyðartilvik).

Húseigandi ber ábyrgð á meðferð búnaðar og lagna innanhúss sem eru í eigu HEF og greiðir hann kostnað við viðgerð eða endurnýjun búnaðar sem verður fyrir skemmdum af hans völdum eða þeirra aðila sem hann ber ábyrgð á.

Húseiganda/kaupanda ber tafarlaust að tilkynna, til HEF, ef vart verður bilunar á búnaði og tækjum veitunnar.

Enginn má af- eða endurtengja hitaveituna nema þeir sem HEF hefir veitt umboð til þess.

Sé húsveita tengd heitavatnskerfi HEF í heimildarleysi, getur HEF aftengt húsveituna fyrirvaralaust.

Fara skal með slíkt brot sem ólögmæta vatnsnotkun. Verði uppvíst að vatn hafi verið notað á annan hátt en um er samið, að raskað hafi verið mælitækjum eða tengingum breytt þannig að ekki komi fram öll notkun, skal HEF áætla það vatnsmagn sem notað hefur verið með ólögmætum hætti og innheimta sérstaklega.

30. gr. Vanræksla.

Vanræki húseigandi að vinna verk, sem honum ber samkvæmt reglugerð þessari að framkvæma, eða sé verk ekki unnið á viðunandi hátt, er HEF heimilt að láta vinna það á hans kostnað, hafi hann ekki orðið við tilmælum um að vinna verkið innan tiltekins frests.

31. gr. Aðför - fjárnám.

Öll gjöld vegna heits vatns þ.m.t. heimæðargjald samkvæmt reglugerð þessari og gjaldskrá má innheimta með fjárnámi, skv. 10. tl. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 90/1989 um aðför, og 79. gr. orkulaga nr. 58/1967, með síðari breytingum.

32. gr. Viðurlög.

Brot á reglugerð þessari varða sektum, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt lögum.

Með mál út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála.

33. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í orkulögum nr. 58/1967, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi. Með gildistöku þessarar reglugerðar fellur úr gildi eldri reglugerð um Hitaveitu Egilsstaða og Fella.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.