Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

558/2001

Reglugerð um holræsi og holræsagjöld í Skaftárhreppi.

I. KAFLI Um holræsi.

1. gr.

Þegar Skaftárhreppur hefur látið leggja holræsi í veg, götu eða annað opið svæði, eða þar sem sveitarfélagið hefur tekið að sér viðhald og endurnýjun eldri holræsa, er þeim lóðareigendum og húsráðendum sem þar eiga hús að, eða í námunda við, skylt að leggja á sinn kostnað ræsi frá húsinu er flytji allt skólp frá því út í aðalræsi. Þar sem lagðar hafa verið aðskildar lagnir fyrir skólp og yfirborðsvatn skal lóðarhafi einnig leggja aðskildar lagnir að aðalræsum og tengja. Þar sem engin lögn er fyrir hendi eða lögð hefur verið sameiginleg lögn fyrir skólp og yfirborðsvatn skal lóðarhafi gera svelg og tengja yfirborðsvatn af húsi sínu og lóð þangað.

Nú lætur sveitarfélagið leggja sérstaka lögn fyrir yfirborðsvatn og er þá lóðarhafa skylt að tengja yfirborðsvatn sitt þangað. Vanræki einhver að láta gera holræsi frá húsi að göturæsi innan hæfilegs frests getur sveitarstjórn látið vinna verkið á hans kostnað. Sama gildir ef húseigandi vanrækir viðhald heimæðar.

2. gr.

Allar framkvæmdir sem varða holræsakerfi á vegum Skaftárhrepps, svo sem viðhald, endurbætur, viðbætur og umsjón, annast sveitarfélagið eða þeir aðilar sem sveitarstjórn felur það, undir hennar stjórn. Er engum heimilt að leggja ræsi í aðalræsi nema með leyfi sveitarstjórnar og er mönnum skylt að lúta í einu og öllu fyrirmælum um gerð og legu ræsis. Allar lagnir svo og frágangur skulu vera í samræmi við gildandi staðla á hverjum tíma.

3. gr.

Ekki er heimilt að veita frárennsli er valdið getur skemmdum á holræsakerfinu eða truflað rekstur þess út í göturæsi. Þar er m.a. átt við eiturmengað, olíumengað, próteinríkt, fituríkt eða blóðblandað fráveituvatn. Þar sem hætta er á að skólp innihaldi ofangreind efni ber húseiganda skylda til fjarlægja þau eða gera óskaðleg áður en því er veitt út í holræsakerfið, sbr. ákvæði mengunarvarnareglugerðar.

4. gr.

Við nýbyggingar og breytingar á ræsum í lóð er lóðarhafa skylt að leggja fram til samþykktar uppdrátt í tvíriti er sýni legu, halla, stærð og gerð ræsa. Sá sem uppdrátt gerir skal undirrita hann með eigin hendi og ber hann ábyrgð á að uppdrátturinn sé í samræmi við gildandi reglugerðir og staðla. Þegar byggingarfulltrúi hefur samþykkt uppdrátt stimplar hann og áritar bæði eintökin. Annað eintakið skal varðveitt í skjalasafni byggingarfulltrúa, hitt eintakið skal liggja fyrir á byggingarstað. Ekki má hefja framkvæmdir við lagnir fyrr en samþykktur uppdráttur liggur fyrir.

Samþykki byggingarfulltrúa rýrir á engan hátt ábyrgð þess sem uppdráttinn gerir.

5. gr.

Heimilt er sveitarstjórn Skaftárhrepps að yfirtaka núverandi holræsakerfi einstakra aðila samkvæmt samkomulagi við hlutaðeigendur eða samkvæmt mati ef ágreiningur verður.

II. KAFLI Um holræsagjöld.

6. gr.

Kostnaður við holræsakerfi á vegum Skaftárhrepps greiðist úr sveitarsjóði. Til að standa straum af þeim kostnaði ber hverjum húseiganda sem tengir heimæð við aðalæð að greiða allan kostnað af lagningu heimæðarinnar.

Stofngjald holræsis vegna nýbygginga er 80 kr. fyrir hvern samþykktan rúmmetra húsnæðis og greiðist til sveitarsjóðs. Gjaldið framreiknast miðað við byggingarvísitölu sem er 245,8 stig í desember 2000.

7. gr.

Hverjum þeim sem á hús eða húshluta í Skaftárhreppi eða leigir lóð í sveitarfélaginu við götu eða opið svæði sem holræsi hefur verið lagt í á vegum sveitarfélagsins ber að greiða árlegt holræsagjald til sveitarsjóðs.

Upphæð holræsagjaldsins skal vera 0,15% af fasteignamati allra húsa og lóða samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 94/1976, með síðari breytingum. Sé ekkert mannvirki á lóð greiðist ekki holræsagjald.

8. gr.

Holræsagjald greiðist af hús- og íbúðareiganda, lóðareiganda ef um eignarlóð er að ræða, en af leigutaka ef um leigulóð er að ræða og bera þessir aðilar ábyrgð á greiðslu gjaldsins. Holræsagjaldið má taka lögtaki og má gera lögtak í hinni skattskyldu eign án tillits til eigendaskipta. Nýtur holræsagjaldið lögveðréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.

9. gr.

Sveitarstjórn getur samþykkt að fella niður eða lækka holræsagjald hjá tekjulitlum elli- og örorkulífeyrisþegum samkvæmt heimild í 5. mgr. 87. gr. vatnalaga, sbr. lög nr. 137/1995.

10. gr.

Gjalddagar holræsagjalds eru þeir sömu og gjalddagar fasteignaskatta og greiðist holræsagjaldið með fasteignasköttum.

Reglugerð þessi, sem samin er og samþykkt af sveitarstjórn Skaftárhrepps, staðfestist hér með samkvæmt X. kafla vatnalaga, nr. 15/1923, til að öðlast gildi við birtingu.

Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um holræsi og holræsagjöld á Kirkjubæjarklaustri í Vestur-Skaftafellssýslu nr. 136/1979.

Félagsmálaráðuneytinu, 28. júní 2001.

F. h. r.
Húnbogi Þorsteinsson.

Guðjón Bragason.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.