Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 16. júní 2023

555/2020

Reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.

1. gr.

Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirfarandi reglugerðir framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sbr. 3. gr. laga nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið og bókun 1 við EES-samninginn.

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 231/2013 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/61/ESB að því er varðar undanþágur, almenn rekstrarskilyrði, vörsluaðila, vogun, gagnsæi og eftirlit. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 57 frá 13. október 2016, bls. 437-531 með breytingum samkvæmt eftirfarandi gerð:

    1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1255 um breytingu á framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 231/2013 að því er varðar áhættu tengda sjálfbærni og sjálfbærniþætti sem rekstraraðilar sérhæfðra sjóða skulu taka tillit til. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 37 frá 11. maí 2023, bls. 38-40.

    .

  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/514 um upplýsingar sem lögbærum yfirvöldum ber að veita Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnuninni skv. 3. mgr. 67. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2011/61/ESB. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 57 frá 13. október 2016, bls. 535-542.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 447/2013 um að koma á málsmeðferð fyrir rekstraraðila sérhæfðra sjóða sem velja að tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/61/ESB taki til þeirra. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 57 frá 13. október 2016, bls. 543-544.
  4. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1618 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) nr. 231/2013 að því er varðar varðveisluskyldur vörsluaðila. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 5 frá 30. janúar 2020, bls. 622-626.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 202/2016 frá 30. september 2016 um upptöku reglugerða skv. a-c-lið 1. mgr. í IX. viðauka (frjálsir fjármagnsflutningar) við EES-samninginn er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 13 frá 23. febrúar 2017, bls. 36.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 308/2019 frá 13. desember 2019 um upptöku reglugerðar skv. d-lið 1. mgr. í IX. viðauka (frjálsir fjármagnsflutningar) við EES-samninginn er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 14 frá 5. mars 2020, bls. 67.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 138/2022 frá 29. apríl 2022 um upptöku reglugerðar skv. 1. tölul. a-liðar 1. mgr. í IX. viðauka (frjálsir fjármagnsflutningar) við EES-samninginn er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 61 frá 22. september 2022, bls. 90.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 3., 6., 7., 15., 19., 22.-30., 32., 36.-39., 41.-43., 45., 47.-49., 62., 64., 110. og 117. gr. laga nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 3. júní 2020.

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Elísabet Júlíusdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.