Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

512/1997

Reglugerð um skipulag og starfsemi Náttúrustofu Vesturlands í Stykkishólmi.

1. gr. Starfrækt skal Náttúrustofa Vesturlands í Stykkishólmi.

Stykkishólmsbær og önnur sveitarfélög í Vesturlandskjördæmi sem kunna að gerast aðilar að stofunni, eiga og reka stofuna með stuðningi ríkissjóðs.

Ríkissjóður greiðir laun forstöðumanns í fullu starfi. Framlag ríkissjóðs til stofnkostnaðar vegna húsnæðis- eða leigukostnaðar, eigi það við, til innréttinga-, bóka- og tækjakaupa getur numið allt að helmingi kostnaðar og fer eftir því sem ákveðið er í fjárlögum hverju sinni enda liggi fyrir trygging um jafnhátt framlag frá heimaaðilum. Ríkissjóður er eigandi þessa framlags sem hann leggur til stofnkostnaðar.

2. gr.

Auk framlags skv. 1. gr. hefur stofan tekjur af útseldri vinnu og annarri gjaldhæfri þjónustu. Renna þær óskiptar til stofunnar og hafa ekki áhrif á framlög ríkissjóðs og heimaaðila skv. 1. gr.

3. gr.

Þær eignir sem til stofnkostnaðar teljast skulu aðeins nýttar í þágu stofunnar nema fyrir liggi samþykki ráðuneytisins um annað.

4. gr. Hlutverk Náttúrustofu Vesturlands í Stykkishólmi er að:

  1. stunda vísindalegar rannsóknir á náttúru Vesturlands,
  2. safna gögnum og varðveita heimildir um náttúrufar og stuðla að almennum náttúrurannsóknum og skal einkum lögð áhersla á Vesturland og sérstöðu náttúrufars á þeim slóðum,
  3. stuðla að æskilegri landnýtingu, náttúruvernd og fræðslu um umhverfismál bæði fyrir almenning og í skólum á Vesturlandi,
  4. veita fræðslu um náttúrufræði og aðstoða við gerð náttúrusýninga á Vesturlandi,
  5. veita sveitarfélögum á Vesturlandi umbeðna aðstoð og ráðgjöf á verksviði stofunnar m.a. vegna verndar og nýtingar náttúrulegra auðlinda, skipulagsmála og mats á umhverfisáhrifum framkvæmda enda komi greiðsla fyrir,
  6. vinna markvisst með rannsóknum að því að auka þekkingu á náttúru Breiðafjarðar í samvinnu við Breiðarfjarðarnefnd, Náttúrufræðistofnun Íslands og Náttúrustofu Vestfjarða í Bolungarvík, sbr. lög nr. 54/1995, um verndun Breiðafjarðar.

5. gr.

Heimilt er Náttúrustofu Vesturlands í Stykkishólmi með sérstökum samningi að gerast aðili að sýningarsafni en fjárhagur hennar og safnsins skal vera aðskilinn.

6. gr.

Yfir Náttúrustofu í Stykkishólmi skal starfa sérstök stjórn, skipuð þremur mönnum og þremur til vara. Skal bæjarstjórn Stykkishólms tilnefna einn, stjórn Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi einn og ráðherra einn og skal hann vera formaður.

Sömu reglur gilda um varamenn. Skipunartími stjórna er milli reglulegra sveitarstjórnarkosninga.

Hlutverk stjórnar er að hafa eftirlit með rekstri stofunnar, fjalla um og samþykkja fjárhagsáætlanir og fylgjast með fjárhag hennar og starfsemi.

Kostnaður vegna starfa stjórnar greiðist af stofunni.

7. gr.

Stjórn stofunnar ræður forstöðumann í fullt starf. Hann skal hafa háskólapróf í náttúrufræði eða sambærilega þekkingu. Hann stjórnar daglegum rekstri stofunnar, gerir fjárhags- og starfsáætlanir, fer með fjármálaleg samskipti fyrir hönd stjórnar, ræður að henni starfslið með samþykki stjórnar og er í fyrirsvari fyrir stofuna.

Forstöðumaður skal sækja lögbundna fundi Náttúrufræðistofnunar Íslands og náttúrustofa til að samræma starfsemina og greina frá niðurstöðum rannsókna sem unnar hafa verið í stofunni.

8. gr.

Til að sinna hlutverki stofunnar skal sérfræðingum og aðstoðarmönnum þeirra á stofunni sem stunda almennar náttúrurannsóknir eða söfnun náttúrugripa og annarra heimilda um náttúruna frjáls för um lönd manna en forðast skulu þeir óþarfa átroðning og skylt er að greiða fullar bætur fyrir tjón sem þeir kunna að valda.

Sömu aðilum er í þessu skyni heimilt að safna náttúrugripum hvar sem er án þess að endurgjald komi fyrir. Þetta gildir þó ekki ef um er að ræða náttúrugripi sem fémætir eru fyrir landeiganda eða aðra rétthafa lands.

Komi í ljós við rannsókn verðmæti sem áður voru ókunn, ber rannsakanda að tilkynna rétthafa þess lands þar sem verðmætin eru.

9. gr.

Reglugerð þessi er sett skv. 2. mgr. 12. og 16. gr. laga nr. 60/1992 um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur og öðlast þegar gildi.

Umhverfisráðuneytinu, 31. júlí 1997.

Guðmundur Bjarnason.

Magnús Jóhannesson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.