Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Stofnreglugerð

489/1985

Hafnarreglugerð fyrir Bolungarvík.

I. KAFLI. Höfnin og stjórn hennar.

1. gr. Hafnarsvæðið.

1.1. Hafnarsvæði Bolungarvíkurhafnar er fyrir mest allri strandlengju Bolungarvíkur og er nánar lýst þannig:

1.2. Takmörk á sjó eru:

Bein lína sem hugsast dregin úr Ófærukletti (innst á Stigahlíð) í Hólatá. 1.3. Takmörk á landi eru:

Strandlengjan, miðað við kambbrún, frá Bug að suðurmörkum húslóðar Hafnargötu 108 og þaðan austurkantur Hafnargötu að Hólsárbrú (neðri). Frá Hólsárbrú norðurkantur Grundarstígs að Síldar- og fiskimjölsverksmiðju, lína meðfram henni til norðurs í kambbrún og þaðan strandlengjan að Ós.

1.4. Landsvæði hafnarinnar skiptist í:

- Varnargarða og bryggjur.

- Farmstöðvar og önnur afgreiðslusvæði.

- Götur.

- Útgerðar-, iðnaðar- og baksvæði.

2. gr. Stjórn hafnarinnar.

2.1. Bolungarvíkurkaupstaður er eigandi hafnarinnar. Bæjarstjórn fer með stjórn hafnarmála undir yfirumsjón samgönguráðuneytisins.

2.2. Hafnarstjórn fer með framkvæmd hafnarmála í umboði bæjarstjórnar. Hafnarstjórn skal skipuð fimm fulltrúum, er bæjarstjórn kýs, og jafnmörgum til vara. Minnst einn aðalmanna í hafnarstjórn skal eiga sæti í bæjarstjórn.

Kjörtímabil hafnarstjórnar er hið sama og bæjarstjórnar.

2.3. Auk hinna kjörnu fulltrúa eiga bæjarstjóri og hafnarstjóri sæti í hafnarnefnd með málfrelsi og tillögurétt.

2.4. Hafnarstjórn kýs sér formann og stýrir harm fundum hennar og boðar til þeirra í samráði við hafnarstjóra.

3. gr. Hlutverk og valdssvið hafnarstjórnar.

3.1. Hafnarstjórn gerir fjárhagsáætlun fyrir hafnarsjóð þar sem fram kemur viðhald hinna ýmsu hafnarmannvirkja svo og nýbyggingar. Hafnarstjórn skal leggja fjárhagsáætlun fyrir bæjarstjórn til staðfestingar. Hafnarstjórn skal leita staðfestingar bæjarstjórnar á lántökum og öðrum fjárhagsskuldbindingum.

3.2. Hafnarstjórn hefur endanlegt ákvörðunarvald um:

- Ráðningu fastra starfsmanna sbr. 5. gr.

- Rekstur hafnarinnar svo sem ráðstöfun á aðstöðu þ.m.t. leiga á húsnæði í eigu hafnarinnar og landi hennar sem leigt er til skamms tíma.

- Leyfisveitingar til starfsemi á hafnarsvæðinu og hefir vald til að banna eða takmarka afnot hafnarsvæða fyrir starfsemi er hún telur torvelda eðlilega hafnarstarfsemi.

3.3 Hafnarnefnd gerir tillögur til bæjarstjórnar varðandi skipulagsmál á hafnarsvæðinu. Byggingamál á hafnarsvæðinu skulu hljóta umfjöllun hafnarnefndar og bygginganefndar áður en þau eru lögð fyrir bæjarstjórn. Innan hafnar má ekkí heldur gera nein hafnarmannvirki, né breyta þeim mannvirkjum sem nú eru og ekki heldur fylla upp, né dýpka út frá landi, nema leyfi hafnarnefndar og/eða bæjarstjórnar komi til.

Hafnarnefnd hefur eftirlit á hafnarsvæðinu með byggingu mannvirkja sem undanþegin eru ákvæðum byggingalaga nr. 54/1978.

4. gr. Hlutverk hafnarstjóra.

4.1 Hafnarstjóri er skipaður of bæjarstjórn og fer með daglega stjórn hafnarinnar í umboði hafnarnefndar. Hafnarstjóri undirbýr mál sem leggja á fyrir hafnarnefnd og veitir viðtöku erindum til hennar. Hann sér um framkvæmd samþykkta hafnarnefndar og veitir hafnarnefnd og bæjaryfirvöldum upplýsingar um málefni hafnarinnar. Hann sér um að fjárhagsáætlun sé fylgt og ber ábyrgð á fjárreiðum hafnarsjóðs.

4.2 Hafnarstjóri skal vinna störf sín í samræmi við ákvæði hafnafaga og hafnarreglugerðar og fara að öðru leyti eftir samþykktum hafnarnefndar og bæjarstjórnar.

4.3 Hafnarstjóri sér um, að gætt sé reglu á höfninni og á landi hennar. Er öllum skylt að hlýða fyrirmælum hans, eða þeirra sem harm felur slík störf.

5. gr. Aðrir starfsmenn hafnarinnar.

5.1 Hafnarnefnd ræður aðra Pasta starfsmenn hafnarinnar aðra en hafnarstjóra, (samanber 3. gr.) svo marga sem þurfa þykir. Vikukaupsmenn og fólk til afleysinga ræður hafnarstjóri.

5.2 Hafnarstarfsmenn, sem hafa umsjón með eignum hafnarinnar, gæta reglu og sinna skipaþjónustu, skulu berg skilríki um starf sitt og/eða einkennisbúning samkvæmt ákvörðun hafnarnefndar.

5.3 Starfsmenn hafnarinnar skulu gæta allrar kurteisi í starfi. Þyki einhverjum sér óréttur gerður of starfsmönnum hafnarinnar getur harm kært það fyrir hafnarstjóra en skipun starfsmannsins ber að hlýða þegar í stað.

II. KAFLI Umferð skipa

6. gr. Skilgreining á skipi.

6.1 Skip telst í reglugerð þessari sérhvert fljótandi far, sem nota má sem flutningatæki, dvalarstað, vinnustað, framleiðslustað eða geymslustað.

7. gr. Almennar reglur við komu og brottför.

7.1 Við komu og brottför að degi til skulu skip önnur en íslensk fiskiskip hafa þjóðfána við hún.

7.2 Þjónusta við skip, svo sem vatnsafgreiðsla og tenging rafmagns skal unnin of hafnarverði. Skip skulu við komu, brottför og siglingu um hafnarsvæðið hafa opna talstöð á viðskiptabylgju Ólafsfjarðarhafnar.

7.3 Sérhvert skip skal boða áætlaða komu sína (ETA) til hafnarvarðar með fjarskiptasambandi eða gegnum umboðsmann með minnst 24 klst. fyrirvara, en fiskiskip í síðasta lagi með 1. klst. fyrirvara. Tilkynna skal brottför með minnst 3 klst. fyrirvara.

7.4 Skipstjóri skal við komu til hafnar gefa eftirfarandi upplýsingar eftir því sem við á:

- Skipsnafn, skipaskrárnúmer, þjóðerni, heimahöfn, stærð samkvæmt mælibréfi, djúpristu og síðasta viðkomustað.

- Nafn skipstjóra.

- Stærð áhafnar og fjölda farþega.

- Tegund og magn farms.

- Um hættulegan flutning, tegund (tækniheiti og IMDG - flokkun) og magn.

- Um hugsanlega sjúkdóma um borð.

- Nafn umboðsmanns.

Reglur þessar gilda ekki um herskip, varðskip, rannsóknarskip og fiskiskip né um áætlunarskip nem'a eftir því sem við á.

7.5 Búnaður skipa skal uppfylla kröfur alþjóðasamþykkta, sem íslensk stjórnvöld hafa staðfest svo og sérreglur Siglingamálastofnunar ríkisins. Skipstjórnarmenn skulu sýna hafnarverði skírteini um fullnægjandi búnað skipa sinna ef þess er óskað.

8. gr. Umferð um höfnina.

8.1 Skip sem kemur til hafnar skal leita upplýsinga hjá hafnarverði eða umboðsmanni hvar binda megi skipið við bryggju.

Óheimilt er að binda skip annars staðar en þar sem hafnarvörður vísar til.

8.2 Skip mega ekki láta vélar ganga of svo miklu afli að öðrum skipum eða hafnarvirkjum stafi hætta of straumi frá aðal- eða þverskrúfum.

8.3 Skylt er að gæta allrar varúðar í meðferð elds og ljósa í skipum á höfninni.

8.4 Sérhvert skip, sem ekki er bundið við bryggju eða hafnarbakka, skal hafa uppi fyrirskipuð ljós og dagmerki.

8.5 Skemmti- og smábátar, þar með taldir ára- og seglbátar, skulu svo sem frekast er unnt forðast siglingaleiðir stærri skipa, sem eru á leið til eða frá höfninni. Ennfremur skal sýna sérstaka aðgæslu er skip njóta aðstoðar dráttarbáta eða eru að leggja að og frá viðlegu.

8.6 Ekkert skip má liggja við dufl eða akkeri á höfninni, nema með leyfi hafnarvarðar.

9. gr. Skip í viðlegu.

9.1 Skip telst í viðlegu, er það liggur við hafnarbakka, bryggju, þ. m. t. utan á öðru skipi, eða föst legufæri og er í eða bíður eftir afgreiðslu eða þjónustu.

9.2 Skip hljóta viðlegu í sömu röð og þau koma til hafnar. Undantekin eru skip, sem hafa fasta viðlegu eða umsamin forgangsafnot hafnarbakka svo og skemmtiferðaskip.

9.3. Ekki má festa skip við hafnarbakka eða bryggjur nema við festarhringa eða festarstólpa. Festum skal þannig komið fyrir að þær hindri sem minnst umferð á bryggju eða hafnarbakka og skulu festar auðkenndar með veifum eða öðrum varúðarmerkjum. Þyki hafnarstjóra þess ekki nægilega gætt getur harm krafist að bætt sé úr því tafarlaust.

9.4. Þegar búíð er að leggja skipi við bryggju má ekki flytja það innan hafnar án leyfis hafnarstjóra en skyldur er skipstjóri að flytja skipið ef hafnarstjóri skipar svo fyrir. Skip sem ekki er verið að lesta eða losa eða eru ekki í rekstri mega aldrei liggja svo í höfninni að þau tálmi vinnu við önnur skip og skal skylt að hlýða boðum hafnarinnar um flutning þeirra. Færist hlutaðeigandi undan að færa skipið samkvæmt ákvæðum þessa töluliðs eða dragist flutningur þess yfir þann tíma, er hafnarstjóri hefur fyrirskipað er hafnarstjóra heimilt að láta flytja skipið á kostnað og ábyrgð skipseiganda.

9.5. Í sérhverju skipi skal að jafnaði vera einn maður að minnsta kosti er tekið geti á móti skipunum starfsmanna hafnarinnar og framkvæmt þær. Skal harm sjá um að óviðkomandi aðilar hafi ekki aðgang að skipinu og ber eigandi fulla ábyrgð á öllu því tjóni er leiða kann of vanrækslu í þessu efni. Heimilt er hafnarstjóra að fallast á gæslu sérstakra öryggisvarða enda séu hjá hafnarvörðum nöfn skipstjórnarmanna sem kalla má út vegna veðurs eða annarra orsaka.

9.6. Hafnarverðir ákveða legur fyrir skip 12 brl. og minni við viðeigandi mannvirki eftir því sem rými leyfir. Þegar skip er sjósett eða siglt í höfn skal eigandi tilkynna það hafnarvörðum. Skip þessi eru á ábyrgð eigenda sama hvort þau eru á floti í höfninni eða á landi hennar. Heimilt er að fela félögum smábátaeigenda umsýslu á ákveðnum svæðum undir eftirliti hafnarstjóra samkvæmt nánari reglum.

10. gr. Skip í 1ægí.

10.1. Skip telst í lægi er það liggur fyrir akkeri eða öðrum legufærum og er ekki í rekstri.

10.2. Skipum sem leggja skal í lægi má aðeins leggja á þeim stöðum er hafnarstjóri leyfir. Skipunum skal lagt undir umsjá hafnarstjóra og legufæri ákveðin í samráði við harm enda liggi fyrir samþykki tryggingarfélags skipsins.

Eftirlit og viðhald legufæra er á ábyrgð skipseiganda. Meðan skip liggur mannlaust lægi skal ekki sjaldnar en tvisvar í mánuði farið út í það til þess að líta eftir hvort legufæri eða annað hafi haggast eða bilað og ef svo reynist skal lagfæra það svo fljótt sem auðið er.

Áður en skipstjóri fer of skipinu skal harm skriflega tilgreina hafnarstjóra siglingafróðan mann sem búsettur sé í Bolungarvík sem hafa skal umsjón skipsins á hendi. Beinir hafnarstjóri til hans öllum fyrirskipunum sem skipið varða. Sér harm um að þeim sé fullnægt. Verði dráttur á því skal hafnarstjóri láta fullnægja þeim en skipseigandi greiði allan kostnað sem of því leiðir.

III. KAFLI Afnot hafnarvirkja og landsvæða.

11. gr. Lestun og losun, almennt.

11.1. Afnot hafnarvirkja og lands er öllum heimil að fengnu leyfi hafnaryfirvalda og gegn greiðslu samkvæmt gjaldskrá.

11.2. Hafnarstjórn ber enga ábyrgð á varningi eða öðrum eignum sem geymdar eru á hafnarsvæðinu.

11.3. Við lestun og losun skal viðhafa fyllstu gætni til að koma í veg fyrir óeðlilegt slit mannvirkja og búnaðar. Ekki má draga þunga hluti eftir hafnarbökkum né sturta varningi of bílum án eðlilegs hlífðarlags.

11.4. Hafnarstjóri getur sett hraða- og þungatakmarkanir á hafnarsvæðinu. Í sérstökum tilfellum er þó hafnarstjóra heimilt að veita undanþágu frá slíku.

11.5. Óheimilt er að geyma tækjabúnað á hafnarsvæðinu utan eigin leigusvæða án leyfis hafnaryfirvalda.

11.6. Þeir munir eða vörur sem skipað er upp eða láta á í skip mega ekki liggja á bryggju, hafnarbakka eða annars staðar á landi hafnarinnar en á þeim stöðum sem ætlaðir eru til geymslu á slíkum varningi. Hafnarstjóri getur flutt vörur og muni sem geymdir eru í óleyfi burt á kostnað og ábyrgð eiganda eða umboðsmanns hans.

11.7. Við lestun og losun á vikri, sandi, kolum og öðru þess háttar er skylt að hafa nægilega sterkar hlífar milli skips og hafnarbakka svo að ekkert falli fyrir borð. Sé þessa eigi gætt getur hafnarstjóri stöðvað verkið uns bætt hefur verið úr því sem áfátt er.

11.8. Þegar lokið er lestun eða losun skal sá er séð hefur um lestun eða losun láta ræsta bryggju þá eða hafnarbakka sem notuð hefur verið. Farist það fyrir skal hafnarstjóri sjá um að það sé gert en afgreiðslumaður skipsins greiði allan kostnað sem of því leiðir.

12. gr. Meðferð eldfims og hættulegs varnings.

12.1. Skip sem flytja sprengiefni, eldfima vökva, lofttegundir undir þrýstingi (flöskugas) eða efni sem við vissar aðstæður valda eld- eða sprengihættu mega ekki leggjast að bryggju fyrr en leyfi hefur verið vent til þess.

Skipstjóra eða umboðsmanni ber að tilkynna hafnarstjóra og slökkviliðsstjóra um farminn 24 klst. fyrir áætlaðan komutíma. Tilkynningaskyldan nær til efna sem samkvæmt alþjóðareglum (International Maritime Dangerous Goods Code), flokkast í flokka 1, 2, 3, 4 og 5. Í tilkynningu skal greina tækniheiti efna og UN-tölu þeirra skv. IMDG-reglum, magn, pökkun og lestun.

Sem dæmi um hættulegan varning má nefna: Púður, dýnamit, geomit, hlaðnar patrónur, bensín, steinolíu, aceton, terpentínu, toluol, kosangas, kalciumkarbit, ammoníumnítrat, natriumklorat.

12.2. Losun á vöru sem um ræðir í þessari grein skal að jafnaði framkvæmd strax og skip hefur lagst að bryggju og á undan losun á öðrum varningi. Við lestun skal slíkur farmur lestaður síðast og skal skip láta úr höfn strax að lestun lokinni.

Álíti hafnarstjóri að hætta geti stafað of lestun eða losun eldfimrar vöru getur harm stöðvað verkið uns nauðsynlegar varúðarráðstafanir hafa verið gerðar.

12.3. Skylt er að hafa öryggisvörð við skip sem lesta eða losa eldfimar vörur. Hafnarstjóri getur ákveðið að lestun og losun slíkrar vöru fari fram við sérstaka hafnarbakka þar sem tryggast er talið.

Varningur skal geymdur á svæði sem hafnarstjóri samþykkir. Setja skal sérstakar reglur um nánari framkvæmd og ákvæði þessarar greinar sbr. ráðleggingar Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar (IMO), um öryggi við flutning, meðferð og geymslu á hættulegum efnum á hafnarsvæðum.

Skip sem flytja eldfim efni skulu á daginn hafa uppi rautt flagg (merkjatákn B), á framsiglu en á nóttunni rautt ljósker. Í skipum sem flytja eldfim efni má eigi kveikja eld eða ljós nema undir kötlum skipsins eða í eldavél skipsins og á lögboðnum ljóskerjum. Tóbaksreykingar eru bannaðar í þeim skipum og á því svæði þar sem unnið er að fermingu eða affermingu eldfims varnings.

IV. KAFLI Um hafnargjöld í Bolungarvík.

13. gr. Um hafnargjöld.

13.1. Gjöld til hafnarsjóðs skulu innheimt samkvæmt gjaldskrám er settar skulu í samræmi við ákvæði 13. gr. hafnalaga.

V . KAFLI Ýmis ákvæði.

14. gr. Löggæsla á hafnarsvæði, umferð og fleira.

14.1. Lögreglan í Bolungarvík hefur á hendi almenna löggæslu á hafnarsvæðinu.

14.2. Þeim sem ekkert lögmætt erindi eiga er bannað að dvelja á landi hafnarinnar ef þeir með því tálma lestun og losun eða önnur störf sem þar eru unnin. Banna má ónauðsynlegan akstur hvers konar ökutækja um bryggjur, hafnarbakka, farmstöðvar og önnur afgreiðslusvæði.

Fólk sem fer um hafnarsvæðið er þar á eigin áhættu og ábyrgð.

14.3. Bannað er að skjóta of byssum eða öðrum skotvopnum við höfnina eða á henni. Sömuleiðis er bannað að skjóta flugeldum á hafnarsvæðinu án leyfis.

14.4. Sand- og malarnám og önnur slík starfsemi er bönnuð á hafnarsvæðinu án leyfis. Fiskveiðar á hafnarsvæðinu mega ekki trufla eðlilega umferð og afgreiðslu. Bannað er að leggja veiðarfæri á merktar siglingaleiðir og er heimilt að fjárlægja slík veiðarfæri bótalaust.

14.5. Hafnarstjóra skal þegar tilkynnt um allt það sem bjargað er í höfninni en harm gefur lögreglunni skýrslu um það.

15. gr. Bryggjur, skipsflök og hlutir í hirðuleysi.

15.1. Ef skip lendir á grynningum eða sekkur þar sem það að áliti hafnarstjóra tálmar greiðri notkun hafnarinnar skal færa það burtu svo fljótt sem auðið er. Verði dráttur á því má hafnarstjóri láta færa skipið burt á kostnað eigandans og er honum heimilt að láta selja skipið til lúkningar kostnaðinum ef nauðsyn krefur. Skipsflök má ekki draga á land á hafnarsvæðinu án leyfis.

15.2. Ef skip, bátar, bryggjur, flutningatæki á landi eða annar búnaður er í hirðuleysi á hafnarsvæðinu og/eða veldur óþrifnaði eða hættu þá skal hafnarstjóri fyrirskipa úrbætur innan ákveðins frests. Sé slíkum fyrirmælum ekki sinnt má fjarlægja viðkomandi hlut á kostnað eiganda án nokkurrar skaðabótaskyldu.

16. gr. Varnir gegn mengun og óþrifnaði.

16.1. Engum úrgangi eða rusli má kasta í höfnina.

16.2. Bannaður er hvers konar hvalskurður í og við höfnina. Eigi má draga, reka eða flytja á annan hátt inn í höfnina hvali, skipsflök eða neitt það sem valdið getur óþrifnaði, umferðartruflun eða óþægindum í höfninni nema leyfi hafnarstjóra komi til.

16.3. Öllum skipum, farartækjum svo og verksmiðjum og öðrum atvinnurekstri er stranglega bannað að dæla eða láta renna í höfnina olíur, lýsi, olíusora eða annað sem mengun veldur.

Skip sem hyggjast taka fljótandi eldsneyti skulu áður hafa gert ráðstafanir svo olía renni ekki í sjóinn of þilfari verði óhapp, m. a. með því að loka afrennslisleiðum frá þilfari.

Afgreiðsluaðila er óheimilt að afgreiða olíu til skipa sem ekki hafa að mati hafnarstarfsmanna gengið forsvaranlega frá þessum atriðum.

Um varnir gegn mengun sjávar og viðurlög við mengunarbrotum fer samkvæmt gildandi lagaákvæðum á hverjum tíma.

17. gr. Beiðni um og skilyrði fyrir þjónustu.

17.1. Allir þeir sem æskja afgreiðslu fyrir skip, láns á tækjum eða aðstoðar á einn eða annan hátt hjá höfninni skulu snúa sér beint til skrifstofu hafnarinnar með beiðni þar að lútandi.

Heimilt er hafnarstjóra að neita þeim aðilum um aðstoð eða afgreiðslu sem eru í vanskilum með gjöld til hafnarinnar.

18. gr. Hverjum gefa skal fyrirmæli.

18.1. Fyrirmæli samkvæmt reglugerð þessari skal gefa skipstjóra en stýrimanni ef skipstjóri er ekki á skipi og eigi heldur umboðsmaður hans samkvæmt gr. 9.5. Ef stýrimaður er fjarverandi má gefa einhverjum öðrum of skipshöfninni skipunina og er það jafngilt sem skipstjóri hefði fengið skipunina sjálfur.

19. gr. Um skaðabótaskyldu.

19.1. Um skaðabótaskyldu vegna skemmda á höfninni, mannvirkjum hennar eða áhöldum, fer eftir almennum reglum.

Ef samningum verður ekki við komið um skaðabætur má ákveða þær of tveimur dómkvöddum mönnum. Hvorum aðila fyrir sig er heimilt að krefjast yfirmats en gera skal það áður en 1 mánuður er liðinn frá því að matsgerð er lokið. Yfirmat skal framkvæmt of 3 dómkvöddum mönnum. Kostnaðinn við yfirmat greiðir sá sem krafðist yfirmats ef það gengur honum ekki í vil.

19.2. Nú veldur skip skemmdum í höfninni eða skipstjóri verður brotlegur við ákvæði reglugerðar þessarar og er þá óheimilt að flytja skipið úr höfninni, áður en málið er útkljáð, nema fullnægjandi trygging sé sett fyrir greiðslu að dómi hafnarstjóra. Bótakröfum hafnarsjóðs fylgir lögtaksréttur sbr. 38. gr. hafnarlaga.

20. gr. Brot, sektarákvæði og meðferð mála.

20.1. Brot gegn reglugerð þessari varðar sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt almennum lögum.

Sektirnar renna í hafnarsjóð Bolungarvíkur. Til tryggingar sektum og vangoldnum gjöldum má leita kyrrsetningar sbr. 39. gr. hafnarlaga.

20.2. Með mál út of brotum á reglugerð þessari skal fara að hætti opinberra mála. Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt hafnalögum, nr. 69, 28. maí 1984, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtast til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt fellur úr gildi hafnarreglugerð fyrir Bolungarvík, nr. 284/1972, sbr. nr. 137/1975.

Samgönguráðuneytið, 20. desember 1985.

Matthías Bjarnason.

Ólafur S. Valdimarsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.