Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

487/2003

Reglugerð um skiptingu arðs af hreindýraveiðum.

1. gr.

Umhverfisstofnun skiptir arði af sölu veiðileyfa og afurða felldra dýra að fenginni umsögn hreindýraráðs. Skulu eingöngu þeir sem fyrir ágangi hreindýra verða á lönd sín njóta arðsins. Við úthlutun veiðileyfa er leyfum skipt niður á ágangssvæði. Með ágangssvæði er átt við nánar skilgreint svæði, þar sem ágangur hreindýra er svipaður á öllu svæðinu.

Úthluta skal arði á einstök ágangssvæði í samræmi við úthlutuð veiðileyfi á svæðinu. Umhverfisstofnun gerir ár hvert tillögu til umhverfisráðuneytisins um fjölda og mörk ágangssvæða að fengnum tillögum hreindýraráðs og Náttúrustofu Austurlands. Skal þar tekið mið af dreifingu hreindýra á síðustu 10 árum, en tillit skal taka til breytinga á ágangi og dreifingu hreindýra á undangengnu ári séu umtalsverð frávik milli ára.

Af hverju felldu dýri fara kr. 5.000 til ábúenda eða umráðenda, eftir atvikum, þeirrar jarðar sem dýr er fellt á. Eftirstöðvar skiptast sem hér segir:

  1. Á allar jarðir innan hvers ágangssvæðis sem verða fyrir ágangi (40%):

    1. Samkvæmt fasteignamati lands, fjórðungur.
    2. Samkvæmt landstærð (mæld eða flokkuð), þrír fjórðu hlutar.
  2. Samkvæmt mati á ágangi (60%):

    1. Lítill ágangur, 5%.
    2. Nokkur ágangur, 10%.
    3. Töluverður ágangur 25%.
    4. Mikill ágangur 60%.

Heimilt er að hnika frá ágangi um allt að 5% ef veigamiklar ástæður mæla með.

Umhverfisstofnun metur ágang á einstakar jarðir með hliðsjón af ofangreindu að fenginni umsögn Náttúrustofu Austurlands. Óheimilt er að láta arð af hreindýraveiðum ganga til þeirra sem ekki heimila hreindýraveiðar á landi sínu.

2. gr.

Umhverfisstofnun skal leggja fram drög að úthlutunargerð til kynningar í viðkomandi sveitarfélögum. Innan tveggja vikna geta landeigendur eða ábúendur gert skriflegar athugasemdir við skiptingu arðs. Að þeim tíma liðnum metur Umhverfisstofnun þær athugasemdir sem borist hafa og úthlutar síðan arði til þeirra ábúenda eða landeigenda þeirra jarða sem arðs njóta. Úthluta skal hreindýraarði til ábúanda viðkomandi jarðar nema samkomulag sé um annað við landeigendur eða ef ábúð er ekki á jörðinni. Tilkynna skal um úthlutun formlega og tilgreina kærufrest.

Arður skal greiddur út fyrir áramót vegna síðasta veiðitímabils. Heimilt er að kæra úthlutun Umhverfisstofnunar til umhverfisráðherra til úrskurðar.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 14. gr. laga nr. 64/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum með síðari breytingum, öðlast gildi þegar í stað og gildir fyrir ráðstöfun arðs sem fellur til frá og með árinu 2003 að telja. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð með sama heiti nr. 485/2002.

Umhverfisráðuneytinu, 2. júlí 2003.

F. h. r.
Ingimar Sigurðsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.