Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 6. maí 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 28. apríl 2021 – 28. des. 2023 Sjá núgildandi

458/2021

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1871 um viðmiðunarpunkta fyrir aðgerðir vegna óleyfilegra lyfjafræðilega virkra efna sem eru fyrir hendi í matvælum úr dýraríkinu.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í XIII. kafla, II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 18/2021, frá 5. febrúar 2021, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1871 frá 7. nóvember 2019 um viðmiðunarpunkta fyrir aðgerðir vegna óleyfilegra lyfjafræðilega virkra efna sem eru fyrir hendi í matvælum úr dýraríkinu og um niðurfellingu á ákvörðun 2005/34/EB. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 22, frá 25. mars 2021, bls. 451.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 93/1995, um matvæli og lögum nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, öll með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 12. apríl 2021.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.