Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 29. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 7. apríl 2015

444/2009

Reglugerð um innleiðingu ákvarðana framkvæmdastjórnar EB um samvinnu milli yfirvalda sem bera ábyrgð á framkvæmd laga um neytendavernd að því er varðar gagnkvæma aðstoð.

1. gr.

Á grundvelli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið og ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 88/2008 frá 4. júlí 2008 skulu eftirtaldar ákvarðanir öðlast gildi hér á landi, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIX. viðauka við EES-samninginn (Neytendavernd), bókun I (um altæka aðlögun) og öðrum ákvæðum samningsins:

  1. Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2007/76/EB frá 22. desember 2006 um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2006/2004 um samvinnu milli innlendra yfirvalda sem bera ábyrgð á framkvæmd laga um neytendavernd að því er varðar gagnkvæma aðstoð.
  2. Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2008/282/EB frá 17. mars 2008 um breytingu á ákvörðun 2007/76/EB um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2006/2004 um samvinnu milli innlendra yfirvalda sem bera ábyrgð á framkvæmd laga um neytendavernd að því er varðar gagnkvæma aðstoð.
  3. Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2011/141/ESB frá 1. mars 2011 um breytingu á ákvörðun 2007/76/EB um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2006/2004 um samvinnu milli innlendra yfirvalda sem bera ábyrgð á framkvæmd laga um neytendavernd að því er varðar gagnkvæma aðstoð.

2. gr.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 88/2008 er birt á bls. 18-19 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 64, 15. árgangi en ákvarðanir framkvæmdastjórnarinnar nr. 2007/76/EB og nr. 2008/282/EB fylgja sem fylgiskjöl með reglugerð þessari.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 88/2008 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 64, 23. október 2008, bls. 18-19.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. gr. laga nr. 56/2007, um samvinnu stjórnvalda á Evrópska efnahagssvæðinu um neytendavernd, öðlast þegar gildi.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.