Fara beint í efnið

Prentað þann 2. maí 2024

Stofnreglugerð

441/2024

Reglugerð um aðgang að og birtingu upplýsinga úr kjörskrá.

I. KAFLI Almenn ákvæði.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um birtingu upplýsinga úr kjörskrá og framlagningu hennar við kosningar til Alþingis og sveitarstjórna, við forsetakjör og þjóðaratkvæðagreiðslur og um heimildir frambjóðenda og stjórnmálasamtaka sem bjóða fram lista til nýtingar kjörskrárgagna og meðferð þeirra á kjörskrá, hér nefnd framboð.

II. KAFLI Aðgangur að upplýsingum úr kjörskrá.

2. gr. Uppfletting í kjörskrá.

Þegar Þjóðskrá Íslands hefur auglýst gerð kjörskrár í samræmi við 1. mgr. 30. gr. kosningalaga skal hún tryggja að fyrir hendi sé rafræn uppfletting í kjörskrá þannig að kjósandi geti með innslætti á kennitölu fengið upplýsingar um nafn, lögheimili, sveitarfélag og kjörstað kjósanda. Lokað skal fyrir rafræna uppflettingu í kjörskrá daginn eftir kjördag. Öðrum en Þjóðskrá Íslands og landskjörstjórn er óheimilt að útbúa rafræna uppflettingu í kjörskrá.

3. gr. Framlagning kjörskrár.

Kjörskrá skal aðgengileg almenningi til skoðunar á skrifstofu sveitarstjórnar, eða öðrum hentugum stað sem sveitarstjórn ákveður, eigi síðar en 21 degi fyrir kjördag. Sveitarstjórn skal tilkynna, t.d. á vef sínum, hvar kjörskrá liggur frammi. Eftir að kjörskrá hefur verið lögð fram skal hún liggja frammi á almennum skrifstofutíma til kjördags.

III. KAFLI Aðgangur og not framboða á kjörskrá.

4. gr. Aðgangur framboða að kjörskrá.

Þegar auglýst hefur verið að gerð kjörskrár sé lokið, sbr. 30. gr. kosningalaga, geta framboð óskað eftir aðgangi að kjörskrá hjá Þjóðskrá Íslands. Aðgangur að kjörskrá skal veittur án endurgjalds. Aðgangurinn felur ekki í sér sérvinnslu upplýsinga úr kjörskrá, en hægt er að óska eftir slíkri vinnslu og greiða fyrir samkvæmt gjaldskrá Þjóðskrár Íslands á hverjum tíma.

Þjóðskrá Íslands skal veita aðgang að kjörskrá með öruggum hætti og eins og framast er unnt á því skráarformi sem óskað er. Skal fulltrúi framboðs staðfesta móttöku á kjörskránni.

5. gr. Heimil not kjörskrár.

Heimilt er að nýta aðgang að kjörskrá í þágu eftirlits með framkvæmd kosninga, til að sannreyna hverjir séu kjósendur og til að koma upplýsingum á framfæri við þá í aðdraganda kosninga, þó að gættum skilyrðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og annarra laga sem við eiga.

Framboð skulu fara eftir skilmálum Þjóðskrár Íslands um aðgang að skránni og rétta notkun á henni.

6. gr. Óheimil not kjörskrár.

Óheimilt er að birta kjörskrá opinberlega eða miðla henni til þriðja aðila í heild eða að hluta. Aðgangur framboða að kjörskrá heimilar ekki merkingar við kjósendur í kjörskrá á kjördegi.

Óheimilt er að samkeyra kjörskrá við skrá sem hefur að geyma persónuupplýsingar nema að gættum ákvæðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

7. gr. Eyðing gagna.

Kjörskrá og önnur tengd gögn sem framboð hafa í sínum vörslum, á hvaða formi sem er, skal eytt við fyrsta mögulega tækifæri eftir að notkun þeirra lýkur en þó eigi síðar en viku eftir kjördag. Framboð skulu tilkynna Þjóðskrá Íslands um eyðingu gagnanna þegar hún hefur farið fram.

IV. KAFLI Önnur ákvæði.

8. gr. Meðferð og vinnsla persónuupplýsinga.

Við vinnslu og meðferð persónuupplýsinga skal gera viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til að tryggja viðunandi öryggi persónuupplýsinga með hliðsjón af lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

9. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 3. mgr. 30. gr. og 2. mgr. 31. gr. kosningalaga nr. 112/2021 og tekur þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um aðgang að og birtingu upplýsinga úr kjörskrá nr. 387/2022.

Dómsmálaráðuneytinu, 8. apríl 2024.

Guðrún Hafsteinsdóttir.

Haukur Guðmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.