Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

414/2013

Reglugerð um innleiðingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 623/2012 um breytingu á II. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2005/36/EB um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi.

1. gr.

Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 222/2012 frá 7. desember 2012 um breytingu á VII. viðauka (Gagnkvæm viðurkenning á starfsmenntun og hæfi) við EES-samninginn gildir reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB), nr. 623/2012 frá 7. desember um breytingu á viðauka II með tilskipun Evrópusambandsins og ráðsins nr. 2005/36/EB um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi.

2. gr.

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB), nr. 623/2012 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 14, 20. árgangi 2013, bls 703.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 18, 20. árgangi 2013, bls. 29.

3. gr.

Ef ósamræmi er á milli íslensks og ensks texta reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 623/2012 skal skýra íslenska textann með hliðsjón af enska textanum.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 9. gr. laga nr. 26/2010 um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi, öðlast þegar gildi.

Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 11. apríl 2013.

Katrín Jakobsdóttir.

Ásta Magnúsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.