Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 28. apríl 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 2. maí 2008 – 4. des. 2010 Sjá núgildandi

411/2008

Reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um sameiginlegt innkaupaorðasafn vegna opinberra innkaupa.

1. gr.

Við gerð og birtingu tilkynninga og auglýsinga um opinber innkaup og samninga, sbr. 78.-81. gr. laga um opinber innkaup nr. 84/2007, ber að hafa hliðsjón af sameiginlegu innkaupaorðasafni fyrir opinber innkaup (Common Procurement Vocabulary) sem vísað er til í þeim reglugerðum sem tilgreindar eru í 2. og 3. gr.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á eftirfarandi reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (EB), sem gilda skulu á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar:

  1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2195/2002 frá 5. nóvember 2002 um sameiginlegt innkaupaorðasafn (CPV), sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 180/2003 frá 5. desember 2003 um breytingu á XVI. viðauka (Opinber innkaup) samningsins um Evrópska efnahagssvæðið.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2151/2003 frá 16. desember 2003 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2195/2002 um sameiginlegt innkaupaorðasafn (CPV), sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 81/2004 frá 8. júní 2004 um breytingu á XVI. viðauka (Opinber innkaup) samningsins um Evrópska efnahagssvæðið.

3. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2195/2002 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 15/2006, 23. mars 2006, bls. 226.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 180/2003 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 15/2004, 25. mars 2004, bls. 19.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2151/2003 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 9/2007, 22. febrúar 2007, bls. 86.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 81/2004 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 59/2004, 25. nóvember 2004, bls. 14.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 78. gr. laga nr. 84/2007, um opinber innkaup, öðlast þegar gildi.

Fjármálaráðuneytinu, 15. apríl 2008.

F. h. r.

Baldur Guðlaugsson.

Ingvi Már Pálsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.