Fara beint í efnið

Prentað þann 18. apríl 2024

Stofnreglugerð

376/2010

Reglugerð um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 755/2008 um breytingu á viðauka II með tilskipun 2005/36/EB um viðurkenningu á menntun og hæfi í samræmi við ákvæði 11. gr. c (ii).

1. gr.

Reglugerð þessi er sett í samræmi við ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 127/2008, frá 5. desember 2008 um að fella inn í EES-samninginn og taka upp í innlendan rétt ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 755/2008 um breytingu á viðauka II með tilskipun 2005/36/EB um viðurkenningu á menntun og hæfi í samræmi við ákvæði 11. gr. c (ii).

2. gr.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 755/2008, merkt fylgiskjal I, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á VII. viðauka við EES-samninginn, nr. 127/2008 frá 5. desember 2008, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5, 16. árg., bls. 1.

3. gr.

Ef ósamræmi er á milli íslensks og ensks texta reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 755/2008 skal skýra íslenska textann með hliðsjón af enska textanum.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 9. gr. laga nr. 26/2010 um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi, öðlast þegar gildi.

Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 27. apríl 2010.

Katrín Jakobsdóttir.

Ásta Magnúsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.