Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

375/2020

Reglugerð um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1014 um að mæla fyrir um ítarlegar reglur um lágmarkskröfur fyrir landamæraeftirlitsstöðvar (varðandi matvæli, fóður o.fl.).

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 2/2020, frá 7. febrúar 2020, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1014 frá 12. júní 2019 um að mæla fyrir um ítarlegar reglur um lágmarkskröfur fyrir landamæraeftirlitsstöðvar, þ.m.t. skoðunarmiðstöðvar, og um snið, flokka og skammstafanir til að nota til að skrá landamæraeftirlitsstöðvar og eftirlitsstaði. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 16, frá 12. mars 2020, bls. 213.

2. gr.

Matvælastofnun fer með framkvæmd þessarar reglugerðar.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 7. apríl 2020.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Ása Þórhildur Þórðardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.