Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

370/2018

Reglugerð um aðgang að flugafgreiðslu á flugvöllum.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um starfsemi flugafgreiðsluaðila og rekstraraðila flugvalla á flugvöllum sem opnir eru fyrir flugumferð í atvinnuskyni við eftirfarandi aðstæður:

  1. 1. mgr. 7. gr. gildir um alla flugvelli án tillits til umfangs umferðar um þá.
  2. 2. mgr. 7. gr. gildir um alla flugvelli sem opnir eru fyrir flugumferð í atvinnuskyni þar sem árleg umferð nemur ferðum að minnsta kosti einnar milljónar farþega eða 25.000 tonnum af farmi.
  3. 6. gr. gildir um flugvelli þar sem árleg umferð nemur að minnsta kosti ferðum þriggja milljóna farþega eða 75.000 tonnum af farmi; eða þar sem umferð hefur numið að minnsta kosti ferðum tveggja milljóna farþega eða 50.000 tonnum af farmi síðustu sex mánuðina fyrir 1. apríl eða 1. október árið á undan.

Ef flugvöllur nær einu af lágmarksgildunum fyrir flutning farms án þess að ná samsvarandi lágmarksgildum fyrir ferðir farþega gilda ákvæði þessarar reglugerðar ekki um þá flokka flugafgreiðslu sem miðast eingöngu við farþega.

Þegar flugvöllur nær einu af þeim lágmarksgildum sem skilgreind eru í 1. mgr. skulu viðeigandi ákvæði reglugerðarinnar eiga við frá upphafi næsta árs þar á eftir.

Samgöngustofa skal fyrir 1. júlí ár hvert senda Eftirlitsstofnun EFTA skrá yfir flugvellina sem um getur í þessari grein.

2. gr. Skilgreiningar.

Þegar eftirfarandi orð og orðasambönd eru notuð í reglugerð þessari hafa þau þá merkingu sem hér segir:

Flugvöllur (e. Airport): afmarkað landsvæði, að meðtöldum byggingum og búnaði sem ætlaður er til afnota við komur, brottfarir og hreyfingar loftfara á jörðu niðri auk þeirrar þjónustu og nauðsynlegrar aðstöðu til handa aðilum í flugþjónustu í atvinnuskyni;

Flugvallarkerfi (e. Airport system): tveir eða fleiri flugvellir sem til samans þjóna tiltekinni borg eða þéttbýlissvæði.

Rekstraraðili flugvallar (e. Managing body of the airport): aðili sem hefur það verksvið, jafnvel í tengslum við aðra starfsemi, samkvæmt lögum eða reglugerðum, að annast umsýslu og rekstur mannvirkja á flugvelli og samræmir og stýrir starfsemi allra rekstraraðila á flugvelli eða í viðkomandi flugvallarkerfi;

Flugvallarnotandi (e. Airport user): einstaklingur eða lögaðili sem stundar flutninga í lofti á farþegum, pósti og/eða farmi til eða frá viðkomandi flugvelli;

Flugafgreiðsla (e. Groundhandling): þjónusta sem flugvallarnotendum er veitt á flugvöllum, eins og lýst er í viðauka við reglugerð þessa;

Eigin afgreiðsla (e. Self-handling): þær aðstæður að notandi annast eigin flugafgreiðslu í einni eða fleiri myndum og gerir ekki samning af neinu tagi við þriðja aðila um þessa þjónustu. Í þessari skilgreiningu teljast flugvallarnotendur ekki þriðju aðilar ef:

  1. annar á meirihlutaeign í hinum, eða
  2. einn aðili á meirihlutaeign í báðum;

Veitandi flugafgreiðsluþjónustu (e. Supplier of groundhandling services): einstaklingur eða lögaðili sem sér um að veita þriðja aðila eina eða fleiri tegundir flugafgreiðsluþjónustu.

3. gr. Eftirlitsstjórnvald.

Tilnefnt eftirlitsstjórnvald samkvæmt reglugerð þessari er Samgöngustofa og annast hún tilkynningar til Eftirlitsstofnunar EFTA á grundvelli reglugerðarinnar nema annað sé tekið fram.

4. gr. Rekstraraðili flugvallar.

Ef það er ekki einn heldur margir séraðilar sem reka flugvallarkerfi skal hver þessara aðila teljast hluti af rekstraraðila flugvallar að því er þessa reglugerð varðar.

Ef aðeins ein stjórn er yfir fleiri en einum flugvelli eða flugvallarkerfi telst hver þessara flugvalla eða flugvallarkerfa á sama hátt séraðili að því er þessa reglugerð varðar.

Aðili sem vill hefja rekstur flugafgreiðsluþjónustu skal afhenda rekstraraðila flugvallar þar sem hann óskar að starfa, fullnægjandi gögn til staðfestingar á því að hann uppfylli kröfur reglugerðar þessarar til starfseminnar og kröfur 14. gr. reglugerðarinnar varðandi reglur flugvallarins, áður en hann getur hafið starfsemi.

5. gr. Nefnd flugvallarnotenda.

Rekstraraðili flugvallar skal, fyrir hvern flugvöll sem reglugerð þessi tekur til, stofna nefnd fulltrúa flugvallarnotenda eða fulltrúasamtaka þeirra.

Hver flugvallarnotandi á rétt á að sitja í þessari nefnd eða láta samtök koma þar fram fyrir sína hönd.

Rekstraraðili flugvallar skal upplýsa flugvallarnotendur um rétt sinn.

Samgöngustofa skal upplýst um fundarstað og tíma hverju sinni af rekstraraðila flugvallar.

Rekstraraðili flugvallar skal tilkynna nefnd flugvallarnotenda um ákvarðanir sem eru teknar samkvæmt 11.-13. gr.

6. gr. Flugafgreiðsla til þriðja aðila.

Rekstraraðili flugvallar skal tryggja veitendum flugafgreiðslu frjálsan aðgang að markaðinum til að veita þriðja aðila þessa þjónustu. Rekstraraðili flugvallar getur óskað eftir því við Samgöngustofu að hún takmarki fjölda þeirra sem hafa leyfi til að veita flugafgreiðslu í eftirfarandi flokkum, til þriðja aðila:

  1. farangursafgreiðslu,
  2. hlaðafgreiðslu,
  3. afgreiðslu eldsneytis og olíu,
  4. flutning á farmi og pósti milli flugstöðvar og loftfars, hvort sem um er að ræða farm sem er að koma, fara eða er í umflutningi.

Ekki má takmarka fjölda flugafgreiðsluaðila skv. 1. mgr. við færri en tvo fyrir hvern flokk flugafgreiðslu.

Að minnsta kosti einn af leyfishöfum flugafgreiðslu má hvorki vera beint eða óbeint undir stjórn:

  1. rekstraraðila flugvallar,
  2. flugvallarnotanda sem hefur flutt meira en 25% farþega eða farms sem skráð er á flugvellinum árinu áður en framangreindir leyfishafar flugafgreiðslu voru valdir,
  3. aðila sem beint eða óbeint stýrir eða er stýrt af rekstraraðila flugvallar eða slíkum flugvallarnotanda.

Ef Samgöngustofa samþykkir umsókn rekstraraðila flugvallar um takmörkun fjölda þeirra sem fá leyfi til að veita þjónustu skal tryggt að flugvallarnotandi, sama hvaða hluta flugvallarins hann hefur til ráðstöfunar, hafi val, fyrir hvern flokk flugafgreiðslu sem háður er takmörkunum, milli að minnsta kosti tveggja veitenda flugafgreiðslu.

7. gr. Eigin afgreiðsla.

Á flugvöllum sem eru opnir fyrir flugumferð í atvinnuskyni óháð umferðarmagni skal rekstraraðili flugvallar tryggja frelsi til að annast eigin afgreiðslu.

Á flugvöllum þar sem árleg umferð nemur ferðum fleiri en einnar milljónar farþega eða meira en 25.000 tonnum af farmi getur rekstraraðili flugvallar óskað eftir því við Samgöngustofu að fækkað verði þeim sem heimild hafa til að annast eigin afgreiðslu, þó ekki í færri en tvo flugvallarnotendur, að því er varðar eftirfarandi flokka flugafgreiðslu:

  1. farangursafgreiðslu,
  2. hlaðafgreiðslu,
  3. afgreiðslu eldsneytis og olíu,
  4. flutning á farmi og pósti milli flugstöðvar og loftfars, hvort sem um er að ræða farm sem er að koma, fara eða er í umflutningi, að því tilskildu að þeir séu valdir með aðferðum sem eru hlutlægar, gagnsæjar og án mismununar.

Nemi árleg umferð ferðum færri en einnar milljónar farþega eða minni en 25.000 tonnum af farmi er heimilt að takmarka tilgreinda flokka flugafgreiðslu við einn flugvallarnotanda.

8. gr. Sérstök flugvallarmannvirki.

Þrátt fyrir ákvæði 6. og 7. gr. reglugerðarinnar er rekstraraðila flugvallar heimilt að reka eða fela öðrum aðila rekstur miðstýrðra mannvirkja sem notuð eru við flugafgreiðslu og er svo flókinn, kostnaðarsamur eða hefur svo mikil umhverfisáhrif í för með sér að ekki er unnt að skipta honum, niður eða bjóða upp á fleiri en einn rekstraraðila fyrir slíkt, svo sem stjórn farangursflokkunar, afísingar, vatnshreinsunar og eldsneytisdreifingar. Við þær aðstæður þar sem sérstök flugvallarmannvirki hafa verið afhent öðrum aðila en rekstraraðila flugvallar skal stjórnun þessara mannvirkja og gjaldtaka vegna aðgengis að þeim vera gagnsæ, hlutlæg og án mismununar. Enn fremur skal tryggt skal að aðgangur þeirra aðila sem veita flugafgreiðslu eða flugvallarnotenda sem annast eigin afgreiðslu sé óhindraður að mannvirkinu.

9. gr. Heimild til takmörkunar á flugafgreiðslu.

Ef takmarkað ráðstöfunarrými eða afkastageta á flugvelli, sem stafar einkum af þrengslum og vanda við nýtingu svæðisins, gera það ókleift að koma við eigin afgreiðslu að því marki sem kveðið er á um í þessari reglugerð getur Samgöngustofa ákveðið, að beiðni rekstraraðila flugvallar:

  1. að takmarka fjölda þeirra sem veita einn eða fleiri flokka flugafgreiðslu, aðra en þá sem um getur í 2. mgr. 6. gr., á öllum flugvellinum eða hluta hans; í þeim tilvikum gilda ákvæði 2. og 3. mgr. 6. gr.;
  2. að láta aðeins einn aðila veita einn eða fleiri flokka flugafgreiðslu eins og um getur í 2. mgr. 6. gr.;
  3. að leyfa aðeins ákveðnum fjölda flugvallarnotenda að annast eigin afgreiðslu fyrir alla aðra flokka flugafgreiðslu en þá sem um getur í 2. mgr. 7. gr.; að því tilskildu að þessir notendur séu valdir með aðferðum sem eru hlutlægar, gagnsæjar og án mismununar;
  4. að banna eigin afgreiðslu eða takmarka hana við einn flugvallarnotanda fyrir þá flokka flugafgreiðslu sem um getur í 2. mgr. 7. gr.

Sérhver undanþága samkvæmt 1. mgr. skal:

  1. tilgreina flokk eða flokka flugafgreiðslu sem undanþágan nær til og þau vandamál í sambandi við ráðstöfunarrými eða afkastagetu svæðisins sem eru forsenda undanþágunnar;
  2. að fylgja áætlun um viðeigandi ráðstafanir til að ráða bót á þessum vandamálum.

Að auki mega undanþágurnar ekki:

  1. ganga gegn markmiðum reglugerðar þessarar;
  2. valda röskun á samkeppni milli veitenda flugafgreiðslu annarra og/eða flugvallarnotenda sem annast eigin afgreiðslu;
  3. ná lengra en nauðsyn krefur.

Hyggist Samgöngustofa veita undanþágu á grundvelli þessa ákvæðis skal tilkynna Eftirlitsstofnun EFTA þar um a.m.k. þremur mánuðum áður en þær taka gildi og tilgreina rök fyrir þeim.

Eftirlitsstofnun EFTA rannsakar ítarlega ákvarðanir um undanþágur. Með nákvæmri greiningu á aðstæðum og rannsókn á viðeigandi ráðstöfunum sem Flugmálastjórn leggur til, sannreynir stofnunin hvort meintar hömlur séu fyrir hendi og ómögulegt sé að opna markaðinn og/eða koma við eigin afgreiðslu að því marki sem kveðið er á um í þessari reglugerð.

Í framhaldi af þessari rannsókn og að höfðu samráði við hlutaðeigandi ríki getur Eftirlitsstofnun EFTA samþykkt ákvörðunina eða staðið gegn henni telji hún að ekki hafi verið færðar sönnur á að meintar hömlur séu fyrir hendi eða að þær séu nógu strangar til að réttlæta undanþágu. Að höfðu samráði við viðkomandi ríki getur Eftirlitsstofnunin einnig krafist þess að umfangi undanþágunnar sé breytt eða hún takmörkuð við þann hluta flugvallarins eða flugvallarkerfisins þar sem sannað hefur verið að meintar hömlur hvíli á.

Eftirlitsstofnun EFTA skal taka ákvörðun ekki síðar en þremur mánuðum eftir að tilkynning berst.

10. gr. Gildistími undanþágna.

Undanþágur sem veittar eru samkvæmt a- og c-liðum 1. mgr. 9. gr. og 3. mgr. 7. gr. mega ekki gilda lengur en þrjú ár. Eigi síðar en þremur mánuðum fyrir lok þess tíma skal Samgöngustofa meta á ný þær undanþágur sem veittar hafa verið.

Undanþágur samkvæmt b-lið 1. mgr. 9. gr. mega ekki gilda lengur en tvö ár. Heimilt er á grundvelli ákvæða 1. mgr. 9. gr., að ákveða, að fengnu samþykki Eftirlitsstofnunar EFTA að þessi frestur verði lengdur um önnur tvö ár í eitt skipti.

11. gr. Val þeirra sem veita þjónustu.

Í þeim tilvikum þar sem sett eru takmörk fyrir fjölda þeirra er veita þjónustu, sbr. 2. mgr. 6. gr. eða 9. gr., skal val þeirra fara fram á grundvelli 12. gr.

Rekstraraðila flugvallar er heimilt undir þessum kringumstæðum og að höfðu samráði við nefnd flugvallarnotenda samkvæmt 5. gr. að setja stöðluð skilyrði eða tækniforskriftir sem veitendur flugafgreiðslu skulu uppfylla. Hin stöðluðu skilyrði eða tækniforskriftir skulu bornar undir ráðherra til samþykktar. Þær valaðferðir sem mælt er fyrir um í þessum skilyrðum eða forskriftum skulu vera viðeigandi, hlutlægar, gagnsæjar og án mismununar.

Ráðherra er heimilt, að undangenginni tilkynningu til Eftirlitsstofnunar EFTA, að mæla fyrir um skyldu til opinberrar þjónustu í þessum skilyrðum eða forskriftum sem veitendur flugafgreiðslu skulu uppfylla á flugvöllum sem þjóna jaðarsvæðum eða þróunarsvæðum og hafa ekki viðskiptalega þýðingu.

Rekstraraðili flugvallar skal sjá til þess að útboð fari fram og skal boð um að gera tilboð birt í Stjórnartíðindum Evrópubandalaganna. Skulu allir þeir sem áhuga hafa og eru veitendur flugafgreiðslu eiga þess kost að svara boðinu.

12. gr. Samráð við val.

Veitendur flugafgreiðslu skulu valdir eftir að rekstraraðili flugvallar hefur haft samráð við nefnd flugvallarnotenda, sbr. þó 2. mgr.

Bjóði rekstraraðili flugvallar fram svipaða flugafgreiðslu eða stjórni beint eða óbeint fyrirtæki sem veitir slíka þjónustu eða eigi ítök í slíku fyrirtæki skulu veitendur flugafgreiðslu valdir af Samgöngustofu að höfðu samráði við nefnd flugvallarnotenda, samkvæmt 5. gr. og rekstraraðila flugvallar.

Veitendur flugafgreiðslu skulu valdir til að hámarki sjö ára.

Hætti veitandi flugafgreiðslu starfsemi sinni fyrir lok tímabilsins sem hann var valinn til skal nefna annan í hans stað með sömu aðferð.

13. gr. Undanþága frá valaðferð.

Ef fjöldi þeirra sem veitir flugafgreiðslu er takmarkaður í samræmi við 2. mgr. 6. gr. eða 9. gr. er rekstraraðila flugvallar heimilt að veita flugafgreiðsluna sjálfur án þess að valaðferðinni sem mælt er fyrir um í 11.-12. gr. sé beitt.

Á sama hátt getur rekstraraðili flugvallar heimilað fyrirtæki að veita flugafgreiðslu á viðkomandi flugvelli án þess að valaðferðinni sé beitt í neðangreindum tilvikum:

  1. ef hún stjórnar fyrirtækinu beint eða óbeint; eða
  2. ef fyrirtækið stjórnar henni beint eða óbeint.

14. gr. Reglur um þjónustu.

Rekstraraðili flugvallar skal að höfðu samráði við nefnd flugvallarnotenda skv. 5. gr. setja reglur sem nauðsynlegar eru í því skyni að tryggja hagkvæman rekstur flugvallarins og þjónustu sem veitendur flugafgreiðslu skulu uppfylla. Heimilt er að gefa reglurnar út á ensku.

Reglurnar skulu vera viðeigandi, hlutlægar, gagnsæjar og án mismununar og verða að samræmast eftirfarandi meginmarkmiðum:

  1. beiting þeirra sé án mismununar gagnvart öllum þeim sem sjá um flugafgreiðsluþjónustu og flugvallarnotendum;
  2. þær skulu bera með sér það markmið sem ætlunin er að ná;
  3. þær mega á engan hátt leiða til þess að markaðsaðgangur eða frelsi til að annast eigin afgreiðslu takmarkist.

Stjórnvald skv. 3. gr. getur krafist þess að þeir sem sjá um flugafgreiðslu taki á sanngjarnan hátt og án mismununar þátt í að rækja skyldur um opinbera þjónustu sem mælt er fyrir um í lögum og reglum, að meðtalinni þeirri kvöð að sjá fyrir samfelldri þjónustu.

Rekstraraðila flugvallar er heimilt að banna aðila sem sér um flugafgreiðsluþjónustu eða flugvallarnotanda sem annast eigin afgreiðslu að starfrækja afgreiðsluna á flugvellinum ef sá aðili eða notandi fer ekki eftir reglunum skv. 1. mgr. Rekstraraðili flugvallar skal veita aðila eða notanda hæfilegan frest til að úrbóta.

15. gr. Samráð.

Rekstraraðili flugvallar skal a.m.k. einu sinni á ári hafa samráð um flugafgreiðsluna við nefnd flugvallarnotenda og fyrirtæki sem veita flugafgreiðslu. Þetta samráð skal meðal annars ná til verðs á þeirri flugafgreiðslu sem fengist hefur undanþága fyrir samkvæmt b-lið 1. mgr. 9. gr. og til skipulagningar á þessari þjónustu.

16. gr. Aðgangur að aðstöðu.

Rekstraraðili flugvallar skal gera nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja að veitendur flugafgreiðslu og flugvallarnotendur sem hafa hug á að annast eigin afgreiðslu hafi aðgang að flugvallaraðstöðu eins og þeir þurfa starfsemi sinnar vegna.

Ef sett eru skilyrði fyrir þessum aðgangi verða skilyrðin að vera viðeigandi, hlutlæg, gagnsæ og án mismununar.

Það rými sem er til ráðstöfunar fyrir flugafgreiðslu skal skiptast á milli allra veitenda flugafgreiðslu og flugvallarnotenda sem annast eigin afgreiðslu, þar með taldir þeir sem eru að hasla sér völl á þessu sviði, að því marki sem nauðsynlegt er til að þeir geti nýtt sér réttindi sín og til að tryggja skilvirka og réttmæta samkeppni á grundvelli reglna og viðmiða sem eru viðeigandi hlutlæg, gagnsæ og án mismununar.

Ef greiða þarf fyrir aðgang að flugvallaraðstöðu skal ákveða gjöldin samkvæmt viðmiðum sem eru viðeigandi, hlutlæg, gagnsæ og án mismununar.

17. gr. Gagnkvæmni við þriðju ríki.

Þegar svo virðist sem þriðja ríki, að því er varðar aðgang að markaði fyrir flugafgreiðslu eða eigin afgreiðslu:

  1. veitir ekki, að lögum eða í reynd, aðilum sem staðfestu hafa á Evrópska efnahagssvæðinu og sjá um flugafgreiðslu eða eigin afgreiðslu, sambærileg kjör og ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins veita þeim sem sjá um flugafgreiðslu og flugvallarnotendum, sem annast eigin afgreiðslu, fá frá viðkomandi ríki; eða
  2. veitir ekki, að lögum eða í reynd, aðilum sem staðfestu hafa á Evrópska efnahagssvæðinu og sjá um flugafgreiðslu eða eigin afgreiðslu, innlend kjör;

    eða
  3. veitir aðilum, frá öðrum þriðju ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins, sem sjá um flugafgreiðslu eða flugvallarnotendum sem annast eigin afgreiðslu betri kjör en veitt eru aðilum með staðfestu innan Evrópska efnahagssvæðisins;

er Samgöngustofu heimilt, í heild eða að hluta, að veita tímabundna undanþágu frá ákvæðum reglugerðar þessarar gagnvart þeim aðilum sem sjá um flugafgreiðslu og flugvallarnotendum frá viðkomandi þriðja ríki utan Evrópska efnahagssvæðisins, Sviss og Færeyja.

Undanþágur skulu tilkynntar til Eftirlitsstofnunar EFTA.

18. gr. Öryggi og flugvernd.

Ákvæði reglugerðar þessarar hafa engin áhrif á réttindi og skyldur aðila að því er varðar lög og reglu, öryggi og flugvernd á flugvöllum.

Rekstraraðila flugvallar er heimilt að banna aðila sem sér um flugafgreiðsluþjónustu eða flugvallarnotanda sem annast eigin afgreiðslu að starfrækja afgreiðsluna á flugvellinum ef sá aðili eða notandi uppfyllir ekki lög og reglur um öryggi og flugvernd. Rekstraraðili flugvallar skal veita aðila eða notanda hæfilegan frest til úrbóta.

19. gr. Aðskilið bókhald.

Veitandi flugafgreiðslu, hvort sem það er rekstraraðili flugvallar, flugvallarnotandi eða annar aðili, skal halda bókhaldi um flugafgreiðslu skýrt aðgreindu frá bókhaldi um aðra starfsemi, í samræmi við ríkjandi viðskiptavenjur.

Sjálfstæður löggiltur endurskoðandi, samþykktur af Samgöngustofu, skal hafa reglubundið eftirlit með aðgreiningu bókhalds vegna flugafgreiðslu frá bókhaldi um aðra starfsemi og fylgjast með því að fjármagn flæði ekki milli flugafgreiðslu og annars reksturs flugvallarins.

20. gr. Málskotsréttur.

Ákvarðanir rekstraraðila flugvallar á grundvelli 14., 16. og 18. gr. eru kæranlegar til Samgöngustofu.

21. gr. Gildistaka og innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi tilskipun ráðsins (EB) nr. 96/67/EB frá 15. október 1996 um aðgang að flugafgreiðslumarkaðinum á flugvöllum bandalagsins með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið og bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 79/2000.

22. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 57. gr. b, sbr. 145. gr. loftferðalaga nr. 60/1998 og öðlast gildi 15. apríl 2018. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1186/2008 um aðgang að flugafgreiðslu á flugvöllum.

Samþykki sem gefin hafa verið út af Samgöngustofu falla niður við gildistöku reglugerðar þessarar.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 22. mars 2018.

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.