Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

350/1993

Reglugerð um starfsemi faggiltra vottunarstofa.

Gildissvið og skilgreiningar.

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um almenn skilyrði fyrir starfsemi vottunarstofa sem faggiltar eru af faggildingardeild Löggildingarstofunnar.

Notkun þessarra reglna á að tryggja að faggilt vottunarstofa uppfylli hið minnsta ákvæði sem lýst er í viðeigandi staðli:

-ÍST EN 45011:1989 Almennar reglur um aðila sem votta vörugæði -

-ÍST EN 45012:1989 Almennar reglur um aðila sem votta gæðakerfi

-ÍST EN 45013:1989 Almennar reglur um aðila sem votta hæfni starfsmanna.

2. gr.

Í reglugerð þessari hafa eftirfarandi orð merkingu sem hér greinir:

Vottun: Aðferð sem felst í því að þriðji aðili staðfestir skriflega að vara, ferli eða þjónusta uppfylli tilgreindar kröfur.

Vottunarstofa: Aðili sem framkvæmir vottun.

Þriðji aðili: Einstaklingur eða aðili sem er viðurkenndur sem óháður málsaðilum að því er varðar viðkomandi viðfangsefni.

Vísun í staðla.

3. gr.

Faggilt vottunarstofa sem vottar vörugæði skal uppfylla öll ákvæði í íslenska staðlinum ÍST EN 45011 Almennar reglur um aðila sem votta vörugæði.

4. gr.

Faggilt vottunarstofa sem vottar gæðakerfi skal uppfylla öll ákvæði í íslenska staðlinum ÍST EN 45012 Almennar reglur um aðila sem votta gæðakerfi.

5. gr.

Faggilt vottunarstofa sem vottar hæfni starfsmanna skal uppfylla öll ákvæði í íslenska staðlinum ÍST EN 45013 Almennar reglur um aðila sem votta hæfni starfsmanna.

Ýmis ákvæði.

6. gr.

Ef faggilt prófunar-, vottunar- eða skoðunarstofa er hluti af gæðakerfi sem skal votta, þá skal gæðakerfi þeirrar starfsemi talið uppfylla vottunarkröfur.

7. gr.

Faggiltri vottunarstofu er heimilt að fela undirverktaka prófun, eftirlit og úttektir. Vottunarstofan skal tryggja að undirverktakinn uppfylli sömu kröfur og vottunarstofan skal uppfylla við framkvæmd sömu verkefna. Vottunarstofa og undirverktaki skulu gera skriflegan samning um undirverktöku og skulu í honum einnig vera ákvæði um trúnað undirverktaka.

8. gr.

Upplýsingar um kvartanir sem berast vegna starfsemi faggiltrar vottunarstofu skulu skráðar ásamt úrbótum sem gerðar voru.

9. gr.

Stjórn vottunarstofu skal reglulega ganga úr skugga um að vottunarstofan uppfylli ákvæði reglugerðar þessarar. Slík athugun ásamt úrbótum sem gerðar eru skal vera skjalfest.

10. gr.

Faggilt vottunarstofa hefur rétt á því að nota faggildingarmerki. Merkið má einungis nota á skjölum sem að öllu leyti eða hluta varða vottunarstarfsemina.

Faggilt vottunarstofa getur aldrei framselt rétt til notkunar faggildingarmerkis.

12. gr.

Faggilding gildir til allt að fimm ára og skal í síðasta lagi að þeim tíma liðnum fara fram mat á vottunarstofu, eins og um fyrsta mat sé að ræða. Eftirlit af hálfu faggildingardeildar Löggildingarstofunnar með faggiltri vottunarstofu skal fara fram a.m.k. einu sinni á ári.

13. gr.

Þegar faggilt vottunarstofa vísar til faggildingar sinnar skal hún tryggja að enginn vafi sé á umfangi faggildingarinnar né því í hverju hún felst.

Faggilt vottunarstofa skal tilkynna faggildingardeild Löggildingarstofunnar skriflega og án tafar allar þær breytingar og frávik sem geta valdið því að faggildingarkröfur séu ekki uppfylltar. Vottunarstofan skal tilnefna starfsmann sem annast samskipti við faggildingardeild Löggildingarstofunnar.

Ef faggilt vottunarstofa uppfyllir ekki gildandi reglur, þá er faggildingardeild Löggildingarstofunnar heimilt að krefja vottunarstofuna tafarlausra úrbóta, breyta umfangi faggildingar eða afturkalla faggildingu. Sé faggilding vottunarstofu afturkölluð, skal hún í framhaldi af því þegar hætta allri tilvísun til áður faggiltrar stöðu sinnar. Kostnaður sem af hlýst greiðist af vottunarstofunni.

14. gr.

Ef faggilt vottunarstofa óskar eftir að segja faggildingu sinni upp, þá skal það gert með a.m.k. þriggja mánaða fyrirvara. Sé uppsögn tilkynnt með skemmri fyrirvara er vottunarstofu skylt að greiða gjald sem nemur 50% af síðast greiddu eftirlitsgjaldi.

15. gr.

Kostnað við faggildingu, árlegt eftirlit o.fl. sem tilgreindur er í gjaldskrá Löggildingarstofunnar, og viðskiptaráðherra setur, skal vottunarstofan greiða á gjalddaga.

16. gr.

Faggilt vottunarstofa skal hafa fullnægjandi ábyrgðartryggingar.

Gildistaka.

17. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er skv. 12. gr. laga nr. 100/1992, um vog, mál og faggildingu, öðlast gildi þegar við birtingu.

Viðskiptaráðuneytið, 20. ágúst 1993.

F. h. r.

Björn Friðfinnsson.

Sveinn Þorgrímsson

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.