Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 5. maí 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 14. apríl 2015 – 31. okt. 2015 Sjá núgildandi

340/2015

Reglugerð um gagnatengingaþjónustu í samevrópska loftrýminu.

1. gr. Markmið.

Markmið reglugerðar þessarar er að kveða á um kröfur um gagnatengingaþjónustu (e. data link services) í samevrópska loftrýminu.

2. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um öll flug sem starfrækt eru í tengslum við almenna flugumferð í samræmi við blindflugsreglur innan loftrýmis sem skilgreint er í 1. gr. reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 29/2009 frá 16. janúar 2009 um kröfur um gagnatengingaþjónustu fyrir samevrópska loftrýmið, ásamt síðari breytingum.

3. gr. Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirfarandi reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (EB), með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins og bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 29/2009 frá 16. janúar 2009 um kröfur um gagnatengingaþjónustu fyrir samevrópska loftrýmið, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 85 frá 3. júlí 2009, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26 frá 20. maí 2010, bls. 123.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 441/2014 frá 30. apríl 2014 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 29/2009 um kröfur um gagnatengingaþjónustu fyrir samevrópska loftrýmið, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 235 frá 24. október 2014, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 73 frá 4. desember 2014, bls. 1072.

4. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 57. gr. a, 5. mgr. 75. gr. og 76. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Um leið fellur brott c-liður 4. gr. reglugerðar nr. 601/2008 um kröfur um sjálfvirkt kerfi til að skiptast á fluggögnum milli flugstjórnardeilda.

Reglugerðin kemur til framkvæmda 5. febrúar 2016.

Innanríkisráðuneytinu, 26. mars 2015.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Gunnar Örn Indriðason.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.