Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

333/2021

Reglugerð um notkun Skráargatsins við markaðssetningu matvæla.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerðin gildir um valfrjálsa merkingu og markaðssetningu með Skráargatinu. Skráargatið er tengt við innihald fitu, sykurtegunda, trefja og salts í matvælum í þeim matvælaflokkum sem eru í viðauka II.

2. gr. Skilgreiningar.

Í þessari reglugerð merkir:

Fita eins og skilgreint er í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1169/2011 frá 25. október 2011 um miðlun upplýsinga um matvæli til neytenda.

Fita og fitublöndur til matargerðar eins og skilgreint er í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1308/2013 frá 17. desember 2013 um sameiginlegt markaðskerfi fyrir landbúnaðarafurðir skv. 78. gr. í VII. viðauka um smyrjanlega fitu og samsvarandi vörur.

Forpökkuð matvæli eins og skilgreint er í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1169/2011 frá 25. október 2011 um miðlun upplýsinga um matvæli til neytenda.

Glútenlaust eins og skilgreint er í framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 828/2014 frá 30. júlí 2014 um kröfur um miðlun upplýsinga til neytenda um að matvæli séu glútenlaus eða glútenskert.

Heilkorn er í reglugerð þessari allur frækjarni korns eða korntegunda (fræhvíta, kím og klíð). Frækjarninn má vera brotinn, malaður eða álíka en hlutarnir verða að vera í sömu hlutföllum og heili frækjarninn að því er varðar viðkomandi korntegundir. Heilkornaskilgreiningin nær yfir korntegundirnar hveiti, spelt, rúg, hafra, bygg, maís, hrísgrjón, hirsi, dúrru og aðrar Sorghum-tegundir.

Kjöt eins og skilgreint er í f-lið 1. mgr. 2. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1169/2011 frá 25. október 2011 um miðlun upplýsinga um matvæli til neytenda.

Lagarafurðir, tilreiddar lagarafurðir og lifandi samlokur eins og skilgreint er í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 853/2004 frá 29. apríl 2004 um sérstakar reglur um hollustuhætti sem varða matvæli úr dýraríkinu.

Mettaðar fitusýrur eins og skilgreint er í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1169/2011 frá 25. október 2011 um miðlun upplýsinga um matvæli til neytenda.

Nýfæði eða ný innihaldsefni matvæla með sætueiginleika eins og skilgreint er í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 frá 25. nóvember 2015 um nýfæði.

Plöntusteról, plöntusterólesterar, plöntustanól eða plöntustanólesterar eins og skilgreint er í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1169/2011 frá 25. október 2011 um miðlun upplýsinga um matvæli til neytenda.

Salt eins og skilgreint er í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1169/2011 frá 25. október 2011 um miðlun upplýsinga um matvæli til neytenda.

Sykurtegundir eins og skilgreint er í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1169/2011 frá 25. október 2011 um miðlun upplýsinga um matvæli til neytenda.

Transfitusýrur eins og skilgreint er í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1169/2011 frá 25. október 2011 um miðlun upplýsinga um matvæli til neytenda.

Trefjar eins og skilgreint er í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1169/2011 frá 25. október 2011 um miðlun upplýsinga um matvæli til neytenda.

Viðbætt bragð er í reglugerð þessari viðbætt krydd ásamt bragðefnum eða innihaldsefnum matvæla með bragðgefandi eiginleika eins og skilgreint er í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1334/2008 frá 16. desember 2008 um bragðefni og tiltekin innihaldsefni matvæla, sem hafa bragðgefandi eiginleika, til notkunar í og á matvæli.

Viðbættar sykurtegundir eru í reglugerð þessari allar ein- og tvísykrur sem er bætt í við framleiðslu matvæla. Sykurtegundir sem finnast náttúrulega í hunangi, sírópi, ávaxtasafa, ávaxtasaft og ávaxtaþykkni eru einnig meðtaldar.

Vinnsla og óunnar afurðir eins og skilgreint er í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 852/2004 frá 29. apríl 2004 um hollustuhætti sem varða matvæli.

3. gr. Útlit Skráargatsins.

Grafísk hönnun Skráargatsins kemur fram í viðauka I. Skráargatið skal prenta með grænum eða svörtum lit.

4. gr. Matvæli sem heimilt er að merkja með Skráargatinu.

Skráargatið má nota við merkingu og kynningu á matvælum ef matvælin uppfylla öll skilyrði matvælaflokka skv. viðauka II.

Skráargatið má nota á:

  1. Forpökkuð matvæli sem falla undir viðauka II.
  2. Matvæli sem eru ekki forpökkuð og tilheyra eftirtöldum matvælaflokkum:

    1. Grænmeti o.fl. sem er óunnið (matvælaflokkur 1).
    2. Ávextir og ber (matvælaflokkur 2).
    3. Brauð (matvælaflokkar 8a og b).
    4. Hrökkbrauð (matvælaflokkur 9).
    5. Ostar, aðrir en ferskir ostar (matvælaflokkur 16).
    6. Jurtavalkostir við osta (matvælaflokkur 17).
    7. Lagarafurðir og lifandi samlokur (matvælaflokkur 21).
    8. Kjöt (matvælaflokkur 23).

Skráargatið má ekki nota á:

  1. Matvæli sem eftirfarandi innihaldsefnum hefur verið bætt í:

    1. Sætuefni (aukefni).
    2. Samþykkt nýfæði og ný innihaldsefni með sætueiginleika.
    3. Plöntusteróla, plöntusterólestera, plöntustanóla eða plöntustanólestera.
  2. Matvæli sem eru sérstaklega ætluð börnum undir þriggja ára aldri.

5. gr. Almenn skilyrði.

Matvæli sem merkt eru með Skráargatinu mega ekki innihalda meira en 2 grömm af iðnaðarframleiddum transfitusýrum í hverjum 100 grömmum af heildarfitumagni.

Eingöngu má bæta fitu, sykurtegundum eða salti í þá matvælaflokka sem hafa skilyrði um fitu, sykurtegundir eða salt í viðauka II. Engu að síður má bæta þessum næringarefnum í aðra matvælaflokka, þó eingöngu að því lágmarksmagni sem nauðsynlegt er til að ná æskilegum áhrifum.

6. gr. Notkun Skráargatsins á matvælum sem ekki eru forpökkuð.

Þegar Skráargatið er notað við markaðssetningu matvæla sem ekki eru forpökkuð skulu upplýsingar varðandi grundvöll fyrir notkun Skráargatsins vera aðgengilegar sé þess óskað.

Ákvæði 1. mgr. gilda ekki um:

  1. Grænmeti o.fl. sem er óunnið (matvælaflokkur 1).
  2. Aldin og ber (matvælaflokkur 2).
  3. Lagarafurðir (matvælaflokkur 21).

7. gr. Ábyrgð matvælafyrirtækja.

Matvælafyrirtæki sem nota Skráargatið, skulu tryggja að notkun þess sé í samræmi við reglugerð þessa. Öll notkun Skráargatsins við markaðssetningu verður að vera skýr og má hún ekki vera villandi eða blekkjandi fyrir neytendur.

8. gr. Eftirlit og gjaldtaka.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. gr. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

Ef eftirlitsaðili óskar eftir, skal stjórnandi matvælafyrirtækis leggja fram niðurstöður úr faggiltum prófunum sem staðfesta að notkun merkisins sé í samræmi við viðkomandi skilyrði í viðauka II.

Matvælafyrirtæki skal greiða fyrir eftirlit samkvæmt reglugerð þessari í samræmi við 25. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli. Það sama á við um prófun opinberra eftirlitssýna.

9. gr. Þvingunarúrræði og viðurlög.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr. 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

10. gr. Lagastoð, gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 18. gr. b og 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli. Við gildistöku reglugerðarinnar fellur úr gildi reglugerð nr. 428/2015 um notkun Skráargatsins við markaðssetningu matvæla.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Ákvæði til bráðabirgða.

Þrátt fyrir gildistöku reglugerðar þessarar er framleiðsla og merking matvæla í samræmi við ákvæði eldri reglugerðar nr. 428/2015 um notkun Skráargatsins við markaðssetningu matvæla heimil til 1. september 2022. Leyfilegt er að dreifa matvælum framleiddum og merktum í samræmi við reglugerð nr. 428/2015 þar til birgðir eru uppurnar.

Þá er heimilt að merkja og markaðssetja matvæli sem framleidd eru í samræmi við reglugerð þessa, með Skráargatinu ásamt tákninu ® í samræmi við 3. gr. og I. viðauka við reglugerð nr. 428/2015 um notkun Skráargatsins við markaðssetningu matvæla til 1. september 2024. Heimilt er að markaðssetja matvæli, sem merkt eru Skráargatinu ásamt tákninu (®) fyrir 1. september 2024, þar til birgðir eru uppurnar.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 11. mars 2021.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.