Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 28. apríl 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 10. ágúst 1998
Sýnir breytingar gerðar 10. ágúst 1998 af rg.nr. 474/1998

271/1995

Reglugerð um meðferðarstöð ríkisins fyrir unglinga.

1. gr.

Undir yfirstjórn barnaverndarstofu skal starfrækja meðferðarstöð fyrir unglinga, sem eiga við hegðunarerfiðleika að stríða, sbr. 12. mgr. 22. gr. og 5. mgr. 51. gr. laga um vernd barna og ungmenna, nr. 58/1992, með síðari breytingum. Stöðin þjónar fyrst og fremst unglingum á aldrinum 12-1618 ára en heimilt er að víkja frá þeim aldursmörkum í sérstökum tilvikum.

2. gr.

Meðferðarstöðin skal veita eftirfarandi þjónustu:

a) Skammtímavistun í neyðar- og bráðatilvikum á lokaðri deild. Með því er átt við vistun vegna óupplýstra afbrota eða stjórnleysis sökum ölvunar eðaog annarrar vímuefnaneyslu og aðra bráðnauðsynlega vistun á meðan úrræði í máli unglings eru undirbúin á grundvelli laga um vernd barna og ungmenna. Hámarksvistunartími á lokaðri deild skal vera 14 dagar. Meginmarkmið með vistun á lokaðri deild er gæsla og í vistuninni felst að réttindi unglingsins eru takmörkuð. Vistun á lokaðri deild skal að jafnaði vera í afmörkuðum hluta meðferðarstöðvarinnar sem þó er heimilt að nýta með öðrum hætti ef þannig stendur á.

 b) Sérhæfða meðferð, þ.m.t.þar með talda vímuefnameðferð, með vistun í allt að fjóra mánuði á meðferðardeild. Gert er ráð fyrir að samhliða meðferðarstarfi fari fram greining á vanda unglingsins og að jafnframt sé gerð áætlun um frekari ráðstafanir í samráði við viðkomandi barnaverndarnefnd og forsjáraðila.

c) Vistun unglings sem þegar er vistaður á öðrum meðferðarheimilum sem rekin eru skv. 5. mgr. 51. gr. laga um vernd barna og ungmenna. Gert er ráð fyrir vistun unglinga á meðferðardeild ef þörf þykir að endurmeta meðferð unglingsins. Gert er ráð fyrir vistun unglinga á lokaðri deild eftir strok eða stjórnleysi sem ekki er unnt að stöðva með öðrum hætti og má í slíku tilviki færa ungling af meðferðardeild yfir á lokaða deild.

 Meðferð unglings skal ætíð endurskipulögð í kjölfar vistunar skv. ákvæðum þessa liðs.

 d) Eftirmeðferð að aflokinni vistun, að jafnaði í allt að 6 mánuði. Megináhersla skal lögð á hópmeðferð þar sem fylgt er eftir því sem áunnist hefur í meðferð unglingsins. Sérstaka áherslu skal leggja á vinnu með fjölskyldum unglinganna, eftir því sem við á þannig að hjálparúrræði í nánasta umhverfi unglingsins séu virkjuð sem mest.

 Í meðferðarstöðinni skal vera sérstök aðstaða vegna vistunar og meðferðar unglinga sem eru vistaðir gegn eigin vilja.

3. gr.

Meðferðarstöðin hefur aðsetur á höfðuborgarsvæðinuhöfuðborgarsvæðinu, en þjónar öllu landinu.

Óheimilt er að vista ungling skv. a-lið 2. gr. nema samkvæmt ósk barnaverndarnefndar þar sem hann er dvalfastur, sbr. 8. gr. laga um vernd barna og ungmenna og með samþykki forsjáraðila, ef við á. Þó getur lögregla vistað ungling skv. a-lið 2. gr., enda geritilkynni hún jafnframtvistun án undandráttar ráðstafanirtafarlaust til forsjáraðila aflaunglingsins samþykkisog þessaraviðkomandi aðilabarnaverndarnefndar fyrirsem vistunþá tekur við ábyrgð á vistuninni. Meðferðarstöðin skal jafnframt tilkynna barnaverndarstofuBarnaverndarstofu um allar vistanir skv. a-lið 2. gr. Barnaverndarnefndir

skuluÓheimilt sendaer umsóknir umvista vistunungling skv. b-lið 2. gr. nema að ósk barnaverndarnefndar þar sem hann er dvalfastur. Barnaverndarnefnd skal senda umsókn um vistun til barnaverndarstofuBarnaverndarstofu sem tekur ákvörðun um vistun.

 Forstöðumaður meðferðarheimilis og/eða barnaverndarnefnd skal senda ósk um vistun unglings á meðferðardeild skv. c-lið 2. gr. til Barnaverndarstofu sem tekur ákvörðun um vistun. Forstöðumaður meðferðarheimilis skal senda ósk um vistun á lokaðri deild skv. c-lið 2. gr. beint til meðferðarstöðvarinnar, leita samþykkis viðkomandi barnaverndarnefndar vegna slíkrar ráðstöfunar hið fyrsta og tilkynna vistun til Barnaverndarstofu.

 Vistun unglinga á meðferðarstöðinni er á ábyrgð viðkomandi barnaverndarnefndar. Barnaverndarnefnd aflar samþykkis forsjáraðila fyrir vistun, kveður upp úrskurð eftir atvikum og tekur tillit til sjónarmiða unglings ef vistun er gegn vilja hans í samræmi við ákvæði 2. mgr. 22. gr. laga um vernd barna og ungmenna. Þá tekur viðkomandi barnaverndarnefnd ákvörðun um umgengni og önnur samskipti unglings við nákomna meðan á vistun stendur. Barnaverndarnefnd skal leita umsagnar meðferðarstöðvarinnar áður en ákvörðun er tekin.

Vistun lýkur þegar hámarksvistunartíma er náð, eða fyrr ef forstöðumaður Meðferðarstöðvarinnar eða barnaverndarnefnd teljatelurvistunargrundvöllur fyrir vistun sé ekki lengur þörffyrir hendi, að höfðu samráði við forstöðumann meðferðarstöðvarinnar.

Meðferðarstöðin skal að lokinni vistun senda hlutaðeigandi barnaverndarnefnd svo og barnaverndarstofuBarnaverndarstofu skýrslu um dvöl unglingsins og hagi hans, ásamt tillögum um áframhaldandi aðstoð og meðferð ef þörf er á því.

4. gr.

FélagsmálaráðherraForstjóri Barnaverndarstofu ræður forstöðumann meðferðarstöðvarinnar að fenginni tillögu barnaverndarstofu. Forstöðumaður fer með faglega og fjárhagslega stjórn stöðvarinnar. Hann ákveður, með samþykki barnaverndarstofu, deildaskiptingu innan stöðvarinnar.

Forstöðumaður skal annað hvort vera sálfræðingur eða hafa lokið háskólaprófiháskólamenntun í sálfræði, félagsráðgjöf, uppeldisfræði eða hliðstæðu námi með viðbótarmenntun og reynslu af meðferðarstarfi. Hann skal enn fremurennfremur að jafnaði hafa reynslu af meðferðarstarfi og/eða reynslu eða menntun í stjórnunarstörfum.

5. gr.

Forstöðumaður ræður deildarstjóra meðferðarstöðvarinnar í samráði við barnaverndarstofu og meðskulu samþykki félagsmálaráðuneytisins. Þeir skuluþeir hafa sérmenntun í uppeldisfræði, sálarfræðisálfræði, félagsráðgjöf eða aðra sambærilega menntun. Deildarstjórar hafa yfirumsjón með faglegu starfi innan sinnar deildar. Forstöðumaður ræður jafnramt annað starfsfólk, þ.m.t.þar með talda sálfræðinga, félagsráðgjafa og aðra sérfræðinga.

 Allir ráðningarsamningar eru háðir staðfestingu Barnaverndarstofu.

6. gr.

Unglingar, sem vistaðir eru á meðferðarstöðinni, skulu eiga aðgang að skóla sem fyrst og fremst er ætlað að annast kennslu þeirra sem dvelja á stöðinni. Barnaverndarstofa setur vinnureglur um tengsl stöðvarinnar og þess skóla sem þjónar henni. Vinnureglur þessar skulu settar að höfðu samráði við menntamálaráðuneytið og skulu endurskoðaðar reglulega.

7. gr.

Meðferðarstöðin skal í störfum sínum hafa náið samstarf við barnaverndarstofu og barnaverndarnefndir sveitarfélaga og samráð við úrlausn mála svo sem frekast er kostur.

8. gr.

Rekstrarkostnaður meðferðarstöðvarinnar greiðist úr ríkssjóði.

9. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 51. gr. laga um vernd barna og ungmenna, nr. 58/1992, með síðari breytingum, öðlast gildi hinn 1. júní 1995. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um móttöku- og meðferðarstöð ríkisins fyrir unglinga, nr. 553/1994.

 Félagsmálaráðuneytið, 10. apríl 1995. 

 Rannveig Guðmundsdóttir. 

 Húnbogi Þorsteinsson. 

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.