Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

224/1999

Reglugerð um greiðslu bóta fyrir eignir skipverja á íslenskum skipum, sem eyðileggjast við sjóslys eða bruna.

1. gr.

Útgerðarmanni ber að greiða bætur fyrir eignir skipverja á íslenskum skipum, sem eyðileggjast við sjóslys eða bruna og greiðast bæturnar eftir eftirfarandi reglum.

2. gr.

Bæturnar skulu nema sannvirði eigna þeirra sem eyðilögðust, og þó aldrei fara fram úr upphæðum skv. reglugerð þessari, nema samið hafi verið um hærri bætur.

A. Á skipum í utanlandssiglingum, á flutninga- og farþegaskipum, 75 brúttótonn eða stærri, í innanlandssiglingum, svo og varðskipum ríkisins, björgunarskipum, dæluskipum og dýpkunarskipum:

I. Til skipstjóra kr. 240.000
II.

Til annarra yfirmanna, að meðtöldum brytum og fjar-

skiptamönnum

kr. 227.000
III. Til annarra skipverja kr. 214.000

B. Á togurum og öðrum fiskiskipum, 75 brúttótonn eða stærri í innanlandssiglingum og á veiðum:

I. Til skipstjóra kr. 211.000
II. Til annarra yfirmanna, að meðtöldum brytum og fjarskiptamönnum kr. 199.000
III. Til annarra skipverja kr. 189.000

C. Á fiskiskipum 18 - 75 brúttótonn í innanlandssiglingum og á veiðum:

I. Til yfirmanna kr. 146.000
II. Til annarra skipverja kr. 137.000
III.

Á skipum 18 brúttótonn eða stærri, er skipverjar búa ekki

í, til skipverja

kr. 73.000

Upphæðir skv. þessari grein skulu breytast skv. vísitölu neysluverðs. Grunnupphæðir miðast við vísitölu neysluverðs í mars 1999.

3. gr.

Nú hefur skipverji misst bækur, sjófræðiáhöld, smíðatól eða annað slíkt, er hann þurfti að hafa á skipi til þess að geta innt þar af hendi starf sitt, og hann átti sjálfur að leggja sér til, og skal þá útgerðarmaður bæta honum þessar eignir, umfram bætur þær er um ræðir í 2. gr.

4. gr.

Nú er sá maður látinn sem átti eignir þær sem bæta skal og ganga þá bæturnar til bús hans eða erfingja. Skal er þannig stendur á greiða hámark bóta skv. 2. gr.

Sé sá sem eignirnar átti, hins vegar á lífi, skal honum skylt að gefa að viðlögðu drengskaparvottorði, skýrslu um muni þá, er hann hefur misst og sennilegt verð þeirra.

5. gr.

Reglugerð þessi sem sett er skv. 69. gr. sjómannalaga nr. 35/1985 með síðari breytingum öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt falla úr gildi reglur um greiðslur bóta fyrir eignir íslenskra skipverja, þær er farist hafa við sjóslys eða bruna nr. 31/1964.

Samgönguráðuneytinu, 19. mars 1999.

Halldór Blöndal.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.