Fara beint í efnið

Prentað þann 2. maí 2024

Eldri útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 26. júní 2021 – 24. jan. 2023 Sjá núgildandi
Sýnir breytingar gerðar 26. júní 2021 af rg.nr. 745/2021

221/2001

Reglugerð um bólusetningar á Íslandi.

1. gr.

Reglugerð þessi tekur til bólusetninga (ónæmisaðgerða) og framkvæmdar þeirra á Íslandi. Allar bólusetningar skal skrá. Sóttvarnalæknir er ábyrgur fyrir því að halda skrá um bólusetningar. Sóttvarnalæknir skipuleggur og samræmir bólusetningar um land allt.

2. gr. Bólusetningar barna.

Bólusetningum barna er ætlað að verja börn gegn alvarlegum smitsjúkdómum. Börnum með lögheimili hér á landi skal boðin bólusetning gegn eftirtöldum sjúkdómum þeim að kostnaðarlausu:

  1. barnaveiki
  2. hettusótt
  3. H. influenzae b sjúkdómi
  4. kíghósta
  5. mænusótt
  6. mislingum
  7. rauðum hundum
  8. stífkrampa
  9. meningókokkasjúkdómi C
  10. pneumókokkasjúkdómi
  11. leghálskrabbameini af völdum HPV
  12. hlaupabólu

3. gr. Bólusetningar fullorðinna.

Bólusetningum fullorðinna er ætlað að viðhalda endingu barnabólusetninga eða bæta slíka bólusetningu hafi hún ekki verið gerð á barnsaldri. Skal fullorðnum gefinn kostur á bólusetningum gegn eftirtöldum sjúkdómum:

  1. Stífkrampa
  2. barnaveiki
  3. kikhósta
  4. lömunarveiki.

Öllum sem eru í sérstökum áhættuhópum, og sóttvarnalæknir tilgreinir, skal gefinn kostur á bólusetningum gegn pneumókokkasýkingum og kíghósta.

Öllum sem eru í sérstökum áhættuhópum, og sóttvarnalæknir tilgreinir, skal gefinn kostur á bólusetningum gegn árstíðabundinni inflúensu og er bóluefni þeim að kostnaðarlausu.

Greiðsluhlutdeild fullorðinna samkvæmt 1. og 2. mgr. skal fylgja lögum og reglugerðum um sjúkratryggingar.

4. gr. Aðrar bólusetningar.

Bólusetningar vegna opinberra sóttvarnaráðstafana skv. 12. gr. sóttvarnalaga þegar hætta er á alvarlegum farsóttum vegna eftirtalinna sjúkdóma eða þegar sérstök smithætta er fyrir hendi innan lands skal vera mönnum að kostnaðarlausu:

  1. berklaveiki
  2. lifrarbólgu A
  3. lifrarbólgu B
  4. meningókokka sjúkdómi
  5. öðrum sjúkdómum sem unnt er og brýnt að beita virkri bólusetningu gegn.

 4. gr. a. Bólusetning gegn COVID-19. 

 Þrátt fyrir önnur ákvæði þessarar reglugerðar gildir ákvæði þetta um bólusetningar gegn COVID-19.

 Eftirfarandi einstaklingum verður, í þeirri röð sem þeir eru taldir upp hér að neðan, gefinn kostur á bólusetningu gegn COVID-19, eins og unnt er:

  1.  Heilbrigðisstarfsmönnum og öðrum starfsmönnum sem starfa á bráðamóttöku og gjörgæsludeild Landspítala og gjörgæsludeild Sjúkrahússins á Akureyri.
  2.  Heilbrigðisstarfsmönnum og öðrum starfsmönnum sem starfa á COVID-19 göngudeild og legudeild Landspítala og sambærilegum deildum á Sjúkrahúsinu á Akureyri, heilbrigðisstarfsmönnum og öðrum starfsmönnum sem starfa í heilsugæslu og framkvæma sýnatökur vegna gruns um COVID-19, og starfsmönnum hjúkrunar- og dvalarheimila.
  3.  Einstaklingum sem dvelja á hjúkrunar- og dvalarheimilum og öldrunardeildum sjúkrahúsa.
  4.  Sjúkraflutningamönnum og bráðatæknum sem fengið hafa starfsleyfi landlæknis í samræmi við reglugerð nr. 1110/2012, og starfa við sjúkraflutninga, starfsmönnum Landhelgisgæslu Íslands sem sinna störfum á vettvangi, starfsmönnum slökkviliðs sem sinna störfum á vettvangi, fangavörðum og útkallslögreglumönnum.
  5.  Öðrum heilbrigðisstarfsmönnum sem sinna sjúklingum með beinum hætti og nauðsynlegt er að hljóti bólusetningu gegn COVID-19 samkvæmt nánari ákvörðun sóttvarnalæknis.
  6.  Einstaklingum sem eru 60 ára og eldri. Þeim einstaklingum sem falla undir þennan lið og eru inniliggjandi sjúklingar á heilbrigðisstofnunum skal fyrst gefinn kostur á bólusetningu.
  7.  Einstaklingum með undirliggjandi langvinna sjúkdóma sem eru í sérstökum áhættuhópi vegna COVID-19 samkvæmt nánari ákvörðun sóttvarnalæknis.
  8.  Starfsmönnum í leik-, grunn- og framhaldsskólum. Starfsmönnum félags- og velferðarþjónustu sem eru í beinum samskiptum við notendur, svo sem félagslegri heimaþjónustu.
  9.  Einstaklingum sem eru í viðkvæmri stöðu vegna félagslegra- og efnahagslegra aðstæðna og eru í sérstakri áhættu.
  10.  Öllum öðrum einstaklingum sem óska bólusetningar gegn COVID-19 samkvæmt nánari ákvörðun sóttvarnalæknis.

 Börnum fæddum árið 2006 og síðar er ekki boðin bólusetning gegn COVID-19 nema þeim börnum sem falla undir 7. tölul. 2. mgr. þessa ákvæðis.

 Sóttvarnalækni er heimilt að víkja frá forgangsröðun 2. mgr. ef nauðsynlegt er, svo sem vegna stöðu faraldursins hverju sinni eða tegund bóluefnis, en skal taka mið af þeirri forgangsröðun sem kveðið er á um í 2. mgr. og tilkynna það ráðherra með rökstuðningi eins fljótt og hægt er.

 Sóttvarnalæknir ber ábyrgð á skipulagningu og samræmingu bólusetningar samkvæmt ákvæði þessu, svo sem hvaða bóluefni er notað og fyrir hvaða hópa. Sóttvarnalæknir ber ábyrgð á forgangsröðun innan þeirra hópa sem taldir eru upp í 2. mgr. ef nauðsyn krefur og er heimilt að forgangsraða einstaklingi framar ef hann fellur undir fleiri en einn tölul. í 2. mgr.

 Bólusetning samkvæmt ákvæði þessu skal vera gjaldfrjáls.

5. gr.

Gefa skal kost á bólusetningum, sem hinn bólusetti greiðir sjálfur fyrir, gegn viðeigandi sjúkdómum vegna ferða fólks úr landi.

6. gr.

Bólusetningar samkvæmt þessari reglugerð annast heilsugæslustöðvar eða aðrir þeir sem sóttvarnalæknir ákveður að geti haft þær með höndum. Sóttvarnalæknir skal bjóða út innkaup á bóluefnum. Heilbrigðisráðherra annast þó kaup á bóluefnum við COVID-19, sbr. 6. tölul. 4. gr.

7. gr.

Heilsugæslustöðvar skulu í samráði við sóttvarnalæknigera almenningi kunnugt, hvernig bólusetningum er hagað.

8. gr.

Sóttvarnalæknir lætur heilsugæslustöðvum í té sérstakt skírteini sem afhent eru þeim sem bólusettir eru. Skal skrá í skírteinið allar bólusetningar sem viðkomandi gengst undir samkvæmt reglugerð þessari.

9. gr.

Sá sem bólusetur skal skrá bólusetninguna í sjúkraskrá. Þar skal koma fram hvaða bóluefni var gefið, hvenær það var gefið og hvort aukaverkanir hlutust af. Ef ekki er bólusett skv. 2. gr. skal skrá ástæðu þess.

10. gr.

Heilsugæslustöðvar, og aðrir þeir sem bólusetja skulu senda sóttvarnalækni skýrslur um þær, sbr. 1 gr., a.m.k. árlega eða oftar samkvæmt ákvörðun hans. Senda skal sóttvarnalækni tilkynningar um hver var bólusettur, með hvaða bóluefni og hvenær, samkvæmt ákvörðun sóttvarnalæknis. Tilkynna skal um aukaverkanir bólusetningar samkvæmt ákvörðun sóttvarnalæknis.

11. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 18. gr., sbr. 17. gr., sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingu, öðlast þegar gildi.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.